Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 25
Lúpínan er eitt af uppáhalds
bitbeinum landans enda
allt í senn fögur, nytsöm
og skæð jurt. Rannsóknir á
trefjum plöntunnar benda
til þess að hana megi nýta
á fjölbreyttari hátt en áður
hefur verið gert.
Alaskalúpína (Lupinus nootka-
tensis) hefur um árabil verið nýtt
til uppgræðslu víða um land. Sem
slík kemur hún að miklu gagni,
en gallinn er sá að hún sáir sér og
breiðist út víðar en helst verður á
kosið.
Inga Kristín Guðlaugsdóttir
og Elín S. Harðardóttir kynntust
árið 2016 í námi í vöruhönnun í
Listaháskóla Íslands. Eftir að hafa
fengið styrk úr Nýsköpunarsjóði
námsmanna (NSN) árið 2017
fyrir verkefnið Lúpína í nýju ljósi,
lífrænt hráefni í umhverfisvæna
afurð, og Forsetaverðlaun Íslands
ári síðar, stofnuðu þær Efna-
smiðjuna í ágúst 2019. Þá fengu
þær úthlutað úr Tækniþróunar-
sjóði til þess að vinna verkefnið
áfram á tímabilinu 2020-2022. Að
auki hlutu þær styrk frá Matvæla-
sjóði 2022 fyrir samstarfsverkefnið
LuLam Wrap.
Spennandi möguleikar
„Í verkefninu gerum við tilraunir
og rannsökum nýtingarmöguleika
á lúpínutrefjum sem efnivið í ýmsa
vöruþróun,“ segir Inga Kristín.
„Fyrri rannsóknir okkar benda til
eiginleika í lúpínutrefjum sem gefa
von um alveg nýja notkunarmögu-
leika á þessari annars umdeildu
jurt,“ bætir hún við.
„Lúpínan sér sjálfri sér fyrir nitri
með aðstoð samlífsörvera í rótum
og þarf því engan tilbúinn áburð,
ræktunin er því sjálfbær. Eiginleik-
ar lúpínutrefja gera það að verkum
að engum aukaefnum þarf að bæta
í framleiðsluna og er hráefnið því
umhverfisvænt,“ segir Elín.
Þegar verkefnið var mótað
ákváðu Elín og Inga að hafa tvo
umsjónarmenn til að getað leitað
til við vinnu verkefnisins. „Það
þarf að setja á sig marga hatta í
svona verkefni og því er mikilvægt
að hafa umsjónarmenn sem geta
leiðbeint á breiðum grundvelli.
Við fengum Thomas Pausz fyrir
hönd Listaháskólans og Magnús H.
Jóhannsson frá Landgræðslunni til
liðs við okkur. Okkur þótti mikil-
vægt að tengjast Landgræðslunni
því þar liggur mikil þekking á
plöntunni og þar er faglega unnið
að verkefnum,“ segir Inga.
Umsóknin var góður skóli
Styrkurinn frá NSN var mikil
hvatning til að koma verkefninu
áfram og umsóknarferlið góður
skóli. „Forsetaverðlaunin voru
einnig stórkostleg viðurkenn-
ing á að við værum á réttri leið.
Reynslan við umsóknina, vinnan
við að klára verkefnið og ganga
frá skýrslu um það, nýttist okkur
svo til að sækja um aðra styrki til
frekari rannsókna. NSN er frábær
leið til að byrja á svona þróunar-
verkefni,“ segir Elín.
„Umsóknarformið fær mann
til þess að hugsa og skilgreina
þær fjölmörgu hliðar sem gætu
verið á verkefninu. Ekki einungis
um rannsóknarvinnuna sjálfa,
heldur líka um þætti eins og hver
sé nýjungin í hugmyndinni, hvort
hún stuðli að sjálfbærni og annað,“
segir Elín. „Við fengum nasaþefinn
af því hvernig fleiri sjóðir virka og
hvers þeir krefjast af styrkhöfum.
Í styrkhæfum verkefnum þurfa að
vera skilgreindir ábyrgðarmenn.
Einnig þarf að standa skil á tækni-
legri skýrslu og lokaskýrslu sem er
ekki bara gagnlegt fyrir sjóðinn,
heldur verkefnið sem slíkt. Þannig
er efni verkefnisins, hugmyndir,
kenningar, aðferðir, niðurstöður
og umræður allt rammað inn á
aðgengilegan hátt, allt eftir sam-
hengi verkefnisins,“ bætir Inga
við. „Styrkurinn gerði okkur enn
fremur kleift að standa undir
föstum kostnaði eins og vinnuað-
stöðu og efniskostnaði,“ segir Elín.
Fjöldi samstarfsaðila
„Það er frábær viðurkenning og
kynning fyrir verkefnið að vera
kynnt á viðburðinum á Bessa-
stöðum, þar sem forseti Íslands til-
kynnir hver hlýtur viðurkenningu
forsetans í það skiptið. Öll jákvæð
umfjöllun í miðlum er dýrmæt
fyrir ný verkefni og verkefnahafa
sem eru að stíga sín fyrstu skref
með hugmyndina sína,“ segir
Elín. „Umsóknarferlið stækkaði
tengslanet okkar sem gaf okkur
færi á spennandi samstarfstæki-
færum. Okkur var líka boðið að
hitta stuttlega þá starfsmenn sem
meta verkefnin hjá sjóðnum, til að
kynna verkefnið nánar. En það er
alltaf góð æfing að halda lyfturæð-
una af og til,“ segir Inga.
„Til að halda svona verkefni
úti er gott að geta leitað í opin-
bera styrki, en grundvöllur að
velgengni er ómælt eigið framlag,
ástríða fyrir verkefninu og vinna
að því af hugsjón,“ segir Inga.
„Fyrir tveggja ára Sprotastyrk frá
Tækniþróunarsjóði vorum við
með frábæra samstarfsaðila eins
og Matís, Össur, Kapp og fleiri.
Þeirri vinnu lauk í sumar,“ segir
Elín. „Í haust hlutum við styrk
frá Matvælasjóði og hófum eins
árs verkefni í október með sam-
starfsaðilum okkar Sedna Biopack,
Matís og Sölufélagi garðyrkju-
manna,“ segir Inga. n
Lúpínan í nýju og trefjaríku ljósi
Elín og Inga segja að styrkurinn frá Nýsköpunarsjóði námsmanna hafi verið
mikil hvatning til að koma verkefninu áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Fyrirtækið Genki Instru-
ments var stofnað árið 2015
af útskriftarnemum í raf-
magns- og tölvuverkfræði
við Háskóla Íslands.
Genki er í grunninn tækni-
fyrirtæki með sérþekkingu í gervi-
greind. Vörur fyrirtækisins eru
hannaðar fyrir tónlistarfólk og er
markaðssetning þeirra alþjóðleg.
„Við höfum verið einstaklega
lánsöm að hljóta styrki úr Nýsköp-
unarsjóði námsmanna (NSN) en
þann fyrsta hlutum við árið 2017
þegar Dagur Tómas Ásgeirsson
og Kristmundur Ágúst Jónsson
unnu verkefni sem átti að bæta
reiknirit sem metur afstöðu út
frá gögnum úr hreyfiskynjurum.
Verkefnið tókst vonum framar og
í lok sumars stóðum við uppi með
eitt nákvæmasta reiknirit í heim-
inum. Það keyrir á vörum félagsins
enn þann dag í dag,“ segir Ólafur
Bjarki Bogason, framkvæmdastjóri
Genki Instruments.
Hann segir styrki í sjóðnum hafa
leitt af sér ný verkefni.
„Svo sannarlega. Árið 2018
fengum við sérstaka viðurkenn-
ingu við veitingu Nýsköpunar-
verðlauna forseta Íslands fyrir
verkefni sem unnið var af Eddu
Pétursdóttur og Freyju Sigurgísla-
dóttur. Í verkefninu smíðuðu þær
hugbúnað sem gerði okkur kleift
að komast fyrr á markað en ella
og margfalda notkunarmöguleika
Wave, sem var okkar fyrsta vara.“
Nákvæmasta reiknirit í heimi
Árið 2020 var Genki með sex nema
í hönnun og tækniþróun.
„Þau unnu fyrsta verkefnið
innanhúss þar sem við nýttum
gervigreind. Verkefnið gekk
vonum framar, en alla tíð síðan
hefur gervigreind verið burðar-
stólpi í vöruþróun félagsins. Í
sumarlok gengu svo Anna Pálína
Baldursdóttir og Daníel Þór Wil-
cox, nemar úr hópnum, til liðs við
Genki,“ upplýsir Ólafur.
Í sumar fékk Genki sömu-
leiðis tvo frábæra nema, þá Bjarna
Bjarnason og Arnar Ágúst Krist-
jánsson.
„Í samstarfi við gervigreindar-
teymi Genki þróuðu þeir reiknirit
sem getur greint snertingu út frá
gögnum úr hreyfiskynjurum og er
afrakstur verkefnisins nákvæm-
asta reiknirit sem fyrirfinnst á
heimsvísu,“ greinir Ólafur frá
og bætir við að verkefni nema
hjá Genki séu fjölbreytt en eigi
það sameiginlegt að snúast um
vöruþróun, hvort sem það heitir
hönnun eða tækniþróun.
Verðmæt sérþekking
Án styrkja frá NSN kveðst Ólafur
ekki hafa haft tök á að ráða inn
sumarstarfsmenn á liðnum árum.
„Eins og gefur að skilja hefðum
við ekki ýtt úr vör þróun á gervi-
greind, sem er í dag í heimsklassa
og félaginu dýrmæt. Svo ekki sé
minnst á tækifæri á að fá inn fersk-
ar hugmyndir á sumrin og kynnast
einstaklega skemmtilegum, dug-
legum og klárum nemum á leið
út í lífið,“ segir Ólafur í Genki sem
stendur á spennandi tímamótum.
„Þrotlaus vinna við þróun gervi-
greindar hefur skilað sér í sérþekk-
ingu sem er einstaklega verðmæt
og býður upp á óendanlega mögu-
leika. Bæði við vöruþróun Genki
Instruments, hluti sem Genki
þróar og markaðssetur gagnvart
tónlistarfólki, og Genki ML sem er
þjónusta sem tæknifyrirtæki geta
nýtt sér sérþekkingu Genki við
eigin vöruþróun og þannig sparað
tíma og bætt gæði gervigreindar.“
Frekari upplýsingar um Genki
má finna á genki.is og genkiml.
com. n
Burðarstólpinn er gervigreind
Ólafur Bjarki Bogason er framkvæmdastjóri Genki Instruments.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Rögnvaldur Jóhann
Sæmundsson, prófessor
í iðnaðarverkfræði við
Háskóla Íslands, segir að
Nýsköpunarsjóður náms-
manna sé ákaflega mikil-
vægur.
„Ég hef verið með í nokkrum
verkefnum sem hafa fengið styrki
í gegnum tíðina og nemendur
hafa ævinlega staðið sig mjög vel
og nokkur verkefni hafa verið
tilnefnd eða fengið Forsetaverð-
launin. Að veita styrki úr Nýsköp-
unarsjóði námsmanna er mjög
sniðugt og þarft. Verkefnin eru
góð og skemmtileg reynsla fyrir
nemendurna og fyrir okkur sem
að verkefnunum koma,“ segir
Rögnvaldur.
Spurður hvort svona styrk-
veitingar nýtist ekki nemendum
vel segir Rögnvaldur: „Jú, það
gerir það svo sannarlega. Við
höfum vanalega verið að vinna
með einhverjum utan háskólans
þannig að verkefnin snúast ekki
bara um rannsóknir og þekk-
ingu úr kennslubókum heldur
fyrst og fremst um hagnýtingu og
nýsköpun,“ segir Rögnvaldur.
Um hvað snerust þessi verkefni
nemanna sem fengu styrkinn?
„Síðustu misserin höfum við
verið mikið í samstarfi við Land-
spítala og aðrar heilbrigðisstofn-
anir. Þetta hafa verið verkefni
sem snúa að röðun skurðað-
gerða og gerð hugbúnaðar til að
aðstoða starfsfólk við að sjá áhrif
röðunar. Það er ekki nóg að raða
sjúklingum í skurðstofur og passa
upp á að þær séu vel nýttar heldur
þarf líka að passa að það sé pláss
fyrir sjúklingana á gjörgæslu eða
legudeildum þegar þau koma út af
skurðstofunum.
Við vorum líka með verkefni
sem tengdist Covid. Þar var um
að ræða spálíkan sem við gerðum
fyrir spítalann sem notað var til
að meta álag á gjörgæslu og legu-
deildir. Og svo var líka verkefni
þar sem ýmsar upplýsingar um
starfsemi gjörgæslu voru greindar
og gerðar aðgengilegar fyrir gjör-
gæslulækna. Síðast en ekki síst var
verkefni sem unnið var í samstarfi
við SÁÁ þar sem gerð var frum-
gerð að smáforriti til að SÁÁ gæti
verið í samskiptum við skjólstæð-
inga sína meðan þau biðu eftir
plássi í meðferð.
Í þessum verkefnum eru nem-
endurnir að nýta það sem þau
hafa lært, leysa praktísk vanda-
mál og gera nýja hluti. Þetta unga
og efnilega fólk hefur verið í
grunnnámi hjá okkur í verkfræði
og hagnýtri stærðfræði. Þegar
þau fara svo í framhaldsnám búa
þau að því að hafa unnið raun-
hæft verkefni á sjálfstæðan hátt
í samstarfi við fjölda aðila. Þetta
er bæði gagnlegt og hvetur þau
áfram í náminu,“ segir Rögn-
valdur. n
Hvetur þau í náminu
Rögnvaldur segir að nýsköpunar-
sjóður námsmanna sé ákaflega
mikilvægur.
Fyrri rannsóknir
benda til eiginleika
í lúpínutrefjum sem gefa
von um alveg nýja notk-
unarmöguleika á þessari
annars umdeildu jurt.
Inga Kristín
5FIMMTUDAGUR 8. desember 2022 NSN 30 ÁR A