Fréttablaðið - 08.12.2022, Side 40
Sesar A hefur verið innvígður
meðlimur íslensku hiphop-
senunnar frá stofnun. Nýjasta
verkefni hans, hljómsveitin
Mæðraveldið, var stofnuð árið
2017. Sveitin leikur fyrir dansi
á skemmtistaðnum Lemmy í
kvöld.
ninarichter@frettabladid.is
Eyjólfur B. Eyvindarson, sem þekkt-
ur er undir sviðsnafninu Sesar A og
kallast í daglegu tali Eyjó, rekur sögu
sveitarinnar Mæðraveldisins á þá
leið, að hann hafi langað til að stofna
hljómsveit með kvenkyns hljóð-
færaleikurum eingöngu. „Með gítar,
trommur, bassa og hljómborð. Ætli
það séu ekki fimm ár síðan,“ segir
hann. „Þá kom í ljós að þær stelpur
sem spila á gítar og tromma eru það
umsetnar að þær eru í allt öðrum
geira eða á samningi hjá öðrum
böndum og ekki lausar,“ segir Eyjó.
Hann náði þó að lokum sam-
bandi við Þórdísi Claessen sem hann
segist hafa þekkt frá fyrri tíð. „Hún
var bassaleikari og áður slagverks-
leikari. Margréti Thoroddsen benti
frænka mín mér á. Þetta var árið
2017 og við fórum að hittast í róleg-
heitum,“ segir Eyjó. Hann forritaði
trommugrunna og segir þríeykið
hafa farið að „djamma yfir það.“
Hægt og rólega hafi lögin farið að
taka á sig mynd.
Mæðraveldið hafi eignast fjögur
lög, og segir Eyjó að tíma hafi tekið
að byrja að skrifa. Hann f lutti
vestur á Ísafjörð á tímabili og sinnti
listinni þar. „Svo bættist við eitt lag,
Til lukku, sem fjallar um stjórnar-
skrána,“ segir hann. Sveitin gerði
rafræna útgáfu í framhaldinu en
stefnir á vínylútgáfu með vorinu
2023.
Innblásturinn er fenginn utan úr
heimi. „Það er ekkert í gangi núna
sem mér finnst hljóma eins og
Mæðraveldið,“ segir Eyjó aðspurður
um hljóminn. „Innblásturinn hjá
mér er hiphop og danstónlist en
þetta er meira en það. Það er inn-
blástur frá Kúbu og vesturströnd
Bandaríkjanna. Afríku líka, tónlist
frá Angóla. Til lukku-lagið sækir
aftur í tíunda áratuginn, til nítján
hundruð níutíu og eitthvað,“ segir
hann. „En fólk þarf bara að hlusta
á þetta held ég,“ segir Eyjó og hlær.
„Hiphop er svo opið. Undir því
þaki er danstónlist og margt annað.
Ég rappa og þetta er fjórir fjórðu og
forritað eins og hophop. Og einhver
afrísk kúbönsk sveifla.“
Eyjó hefur ekki gefið út sólóplötu
undir merkjum Sesar A síðan árið
2008. „En ég gerði nokkur lög og
spilaði á Secret Solstice 2015,“ segir
hann.
„Þegar ég var að byrja var búið
að finna upp netið og svona, en
það þurfti að gefa út á disk eða
vínyl. Ég og Erpur gerðum demó
1997 á íslensku og vorum búnir að
taka eitthvað upp á spólu 1991 og
svona. Svo kom Stormurinn á eftir
logninu út 2001 sem var þá fyrsta
rapp-platan á íslensku,“ segir Eyjó
aðspurður um fyrstu skrefin í fag-
inu. „Það er það fyrsta sem er gefið
út. Og af því ég fékk ekki samning
þá stofnaði ég plötuútgáfu
af því að það hafði eng-
inn áhuga á að gefa
út rapp á íslensku
á sínum tíma,“
segir hann. En
það breyttist svo
sannarlega eins
og dæmin sýna á
vinsældarlistum
síðustu ára, en
í slen sk t h iphop
hefur verið vinsælasta
tónlistarstefnan síðasta
áratuginn. „Já eins og gerist í
öllum löndum þar sem rappað er á
frummálinu, það verður ofan á. Þó
að fólk hafi ekki áhuga á tónlistinni
þá hlustar fólk af því að það er á
móðurmálinu, og tengir við það,“
segir Eyjó.
Aðspurður hvernig íslensk hip-
hop sena standi í dag, svarar hann.
„Þegar ég var í menntaskóla, níutíu
og eitthvað, þá var sveitaballatón-
list það sem allir hlustuðu á. Í dag
hefur hiphopið tekið við af þessu.
Það eru börn að vaxa úr grasi sem
hlusta ekki á tónlist með rafmagns-
gítar, það er mjög fyndið. Eitthvað
sem var óhugsandi á þeim tíma.
Íslenskt hiphop hefur vaxið mjög
mikið. Þessi Atlanta trap-hljómur
er að verða búinn. Núna er ekki
tómarúm, en ný staða. Við vitum
ekki alveg hvað er að gerast næst,“
segir hann.
Hvað varðar ástæðurnar svarar
Eyjó. „Ég held að það sé svo misjafnt
hvernig fólk semur tónlist og texta.
Það getur verið rosa auðvelt að gera
fyrstu plötuna, það er aðdragandi
að því. En að halda áfram og þróa
sig áfram getur tekið tíma. Ég held
að þetta sé samblanda af því og að
trap-hljómurinn hafi klárast. Svo
getur verið að þetta blandist inn í
annað og meira. En það kemur bara
í ljós,“ svarar Eyjó.
Mæðraveldið stígur á stokk á
Lemmy klukkan tíu í kvöld. n
Mæðraveldið með kúbanska sveiflu í myrkrinu
Mæðraveldið var stofnað árið 2017 og sendir frá sér vínylútgáfu með vorinu. MYND/AÐSEND
Eyjó, Þórdís og
Margrét skipa
Mæðraveldið.
Eitt af verkum
CozyBoy sem
sýnt er á Hafnar-
torgi í dag.
MYND/SKJÁSKOT ninarichter@frettabladid.is
„Þessi sýning hjá mér, CozyBoy,
fjallar um þetta sem er stolin list,
appropriation art,“ segir kvik-
myndaframleiðandinn og lista-
maðurinn Sigurjón Sighvatsson.
Á annan í jólum í fyrra opnaði
Sigurjón sýninguna Becoming Rich-
ard á 287 auglýsingaskiltum víðs
vegar um Reykjavík. Nú hefur sýn-
ingin af útiskiltunum verið aðlöguð
öðru rými og verið fundinn staður
í mánuð, frá og með deginum í dag
til áttunda janúar, í pop up-galleríi
á Hafnartorgi.
„Þetta er svolítið tengt því sem
við köllum ready made,“ segir
Sigurjón og rifjar upp sambærileg
verk Jeff Koons og Andy Warhol,
þegar sá síðarnefndi tók ljósmynd
af söngvaranum Prince, skar hana
til og bjó til listaverk. Mál Prince-
seríunnar þykir fordæmisgefandi í
sambærilegum málum fyrir banda-
rískum dómstólum og
enn er ekki útkljáð í
dómskerfi vestra
hvar línan liggur
milli hugverka-
þjófnaðar og
sköpunar.
„Þessi lista-
maðu r sem
ég t ek f r á
heitir Richard
Prince. Hann
er þekktur fyrir
málaferli þar sem
hann hafði tekið
ljósmyndir, sem ljós-
myndari hafði tekið
in the seventies fyrir
Malboro-auglýsingar,“ segir Sigur-
jón. „Hann málaði þær án þess að
gefa ljósmyndaranum kredit og
ljósmyndarinn fór í mál. Hann
settlaði þau málaferli sem þýddi að
eitthvað var hann að viðurkenna
fyrst að hann borgaði,“ segir Sigur-
jón. „Ég tók textann frá
honum og bjó til mín
eigin verk.“
Í bæklingi við-
burðarins segir
að spurningin
um höfund og
höfundarrétt
haf i lík lega
aldrei verið
áleitnari en
nú. Þar segir
en n f r emu r :
„ S a n n a r l e g a
hafa þessi varan-
legu verk sterkari
höfundareinkenni en
þau upphaf legu. Eru
slík einkenni næg til að hann geti
kallað þau sín eigin eða eru þau
bara ólistræn aðlögun að hinum
upprunalegu verkum Prince sem
eru þegar allt kemur til alls hreint
ekki upprunaleg, sama hvað hann
segir sjálfur?“ n
Sigurjón aðlagar þjófnað frá þjófi
Sigurjón Sighvatsson
24 Lífið 8. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 8. desember 2022 FIMMTUDAGUR