Fréttablaðið - 08.12.2022, Page 44
ragnarjon@frettabladid.is
Fyrsta orð ársins á vegum Oxford-
orðabókarinnar hefur verið valið og
er það orðið „Goblin mode“. Vissu-
lega eru það tvö orð en Oxford-
orðabókin hefur áður gefið út að
orð ársins þurfi ekki að vera eitt orð
heldur geti einnig verið hugtak eða
slangur.
Fólki hefur þó reynst erfitt að
skilgreina hvað orðið þýðir en það
er slangur sem merkir sérstaklega
letilega ástand sem einnig ein-
kennist af græðgi. Þá merki hug-
takið einnig andfélagslega hegðun
og minnkuð samskipti við aðra.
Orðið á sér ekki beina hliðstæðu
í íslensku en Leppalúði hefur verið
nefndur sem aðili í íslenskum þjóð-
sögum sem kjarnar þá hegðun sem
hugtakið lýsir. Þó væri hægt að
nefna orðið haugshátt sem líklega
hliðstæðu.
Starfsfólk Oxford segir að notkun
á Goblin mode hafi færst mikið í
aukana á þessu ári en talið er að
notkun á því hafi byrjað á netinu í
kringum árið 2009.
Talið er að aukning í notkun á
orðinu hafi komið til eftir að tak-
markanir á tímum Covid-19 voru
felldar niður en fólk átt erfitt með
að aðlagast venjulegu lífi aftur.
Því hafi verið mikil löngun hjá
mörgum til að fara í „drýsilham“
eða „púkaham“ og liggja í leti og
borða óholla fæðu. Fólk sé þann-
ig að leyfa sínum innri djöflum að
leika lausum hala.
Þátttakendur völdu á milli þriggja
orða eða myllumerkja sem tilnefnd
voru. Önnur orð sem komust hátt
voru Metaverse sem stendur fyrir
sýndarveruleika sem samfélags-
miðillinn Meta er með í hönnun og
lenti það í öðru sæti. Þá lenti myllu-
merkið #IStandWith eða #ÉgStend-
Með í þriðja sæti.
Þetta er í fyrsta sinn sem almenn-
ingi er leyft með einhverjum hætti
að taka þátt í vali á orði ársins og
var þátttaka vonum framar að sögn
starfsmanna Oxford. n
Goblin Mode
valið orð ársins
Þessi goblin Marvel-heimsins er
grænn en ekki vænn.
Einstök bók um ljósmyndir,
minningar og snertingu við
veruleikann eftir Sigrúnu
Ölbu Sigurðardóttur.
Setur heiminn í
nýtt samhengi
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
Margar af skærustu stjörnum
skemmtanaiðnaðarins vestan-
hafs voru samankomnar á
heiðurs-galakvöldi The Holly-
wood Reporter í gærkvöldi.
ninarichter@frettabladid.is
Meðal gesta voru ofurstjarnan Kim
Kardashian og leikkonan Charlize
Theron, sú síðarnefnda sérstak-
lega heiðruð við þetta tilefni, fyrir
framlag sitt til kvikmyndalistar-
innar.
Rótgróið bransatímarit
The Hollywood Reporter, skamm-
stafað THR, er bandarískt tímarit
sem kemur út í prent- og veformi.
Tímar itið leg g ur áherslu á
umfjöllun um skemmtanabrans-
ann, kvikmyndir, sjónvarp og
af þreyingu í allri sinni dýrð. Tíma-
ritið á sér langa sögu og var stofnað
árið 1930, upphaflega með áherslu
á viðskipti í kvikmyndaborginni.
Fyrstu starfsárin einkenndust
af hatrömmum málaferlum af
hálfu keppinautarins Variety, sem
sökuðu The Hollywood Reporter
um ritstuld. Stofnandi blaðsins og
fyrsti ritstjóri, William Wilkenson,
varð náinn vinur auðjöfursins og
ævintýramannsins Howard Hug-
hes, sem reyndist heppilegt á fyrstu
áratugum blaðsins.
Blaðið hefur síðan farið í gegnum
nokkur eigendaskipti og heyrir í
dag undir Penske Industries sem
fara meðal annars með rekstur
Variety, The Rolling Stone og f leiri
þekktra tímarita. n
Kraftmiklar
konur heiðraðar
á galakvöldi
Addison Rae er einn tekjuhæsti TikTokari sögunnar.
Janelle
Monaé hefur
verið tilnefnd
til Grammy
verðlauna átta
sinnum.
Denise Richards var ein skærasta
stjarna kvikmyndanna á níunda ára-
tugnum.
Heidi Klum er fyrsti Þjóðverjinn sem
situr fyrir hjá Victoria‘s Secret nær-
fatarisanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Jamie King sló í gegn í stórmyndinni Pearl Harbor árið 2001.
28 Lífið 8. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ