Fréttablaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 49
Eik fasteignafélag óskar eftir að ráða sjálfstæðan og lausnarmiðaðan einstakling í starf tölvu- og
tæknimanns. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, búa yfir framúrskarandi samskiptahæfni
og hafa gaman af notendaþjónustu auk kerfisreksturs.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) og Henrietta Þóra Magnúsdóttir
(henrietta@intellecta.is) í síma 511 1225. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Reynsla af kerfisrekstri er skilyrði
• Góð þekking á Windows og almennum
notendahugbúnaði
• Microsoft gráður í viðeigandi tækni er kostur
• Framúrskarandi samskiptahæfni og góð þjónustulund
• Reynsla af öryggis- og aðgangskerfum er kostur
• Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér
nýjungar
• Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
• Almennur kerfisrekstur
• Uppbygging og innleiðing tæknikerfa í byggingum
félagsins
• Rekstur á öryggis- og aðgangskerfum
• Umsjón með aðgangskortum og skjákerfum í byggingum
félagsins
• Umsjón með tæknibúnaði og notendaþjónustu á
skrifstofu og öðrum starfsstöðvum félagsins
Hæfniskröfur:Helstu verkefni og ábyrgð:
310
þúsund m²
440
leigutakar
Tölvu- og tæknimaður
Eik fasteignafélag var stofnað árið 2002. Frá
stofnun hefur félagið vaxið með áherslu á
fjárfestingar í helstu viðskiptakjörnum
höfuðborgarinnar og er á meðal stærstu
fasteignafélaga landsins. Hlutabréf
félagsins eru skráð á aðalmarkaði Nasdaq
Iceland hf.
Félagið býður upp á framúrskarandi starfs-
aðstöðu og góðan starfsanda. Hjá félaginu
starfa 36 starfsmenn með fjölbreytta
menntun og reynslu á fasteignamarkaði.
Markmið þess er að veita viðskiptavinum
fyrsta flokks þjónustu og bjóða húsnæðis-
lausnir í takt við mismunandi þarfir.
Sú viðleitni grundvallast á gildum félagsins:
fagmennsku, frumkvæði, léttleika og
áreiðanleika.
110
fasteignir
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára