Fréttablaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 69
Fjölbreytni í matarmenn-
ingu er eitt af því sem
einkennir stórborg og þó
Reykjavík sé ekki með fjöl-
mennari borgum þá hýsir
hún sannarlega fjölbreytta
matarmenningu.
Matargerð frá Havaí haslar sér
völl með veitingastaðnum Kualua
á Hafnartorgi þar sem Kolbeinn
Nói Ölduson, rekstrarstjóri og
eigandi, framreiðir dýrindis poké
skálar sem fólk fær bara ekki nóg
af.
„Nafnið Kualua kemur frá Havaí
líkt og aðalrétturinn okkar, Poké
skálar. Okkur fannst nafnið passa
vel við hugmyndina um staðinn
og það hljómar skemmtilega í
framburði. Merking nafnsins fær
að liggja á milli hluta,“ segir Kol-
beinn og bætir við að Poké skálar
hafi upphaflega verið matur fiski-
manna sem snæddu hráan fisk
beint úr hafinu með grænmeti og
sósum. Japanskir innflytjendur á
Havaí bættu svo hrísgrjónunum
við og þannig hefur rétturinn
náð hylli um heim allan undan-
farin ár. „Við sérhæfum okkur í
Poké skálum sem einnig er talað
um sem sushi í skál. Rétturinn er
sem sagt þannig að það eru sushi
hrísgrjón í botninum og síðan er
raðað ferskum og góðum hrá-
efnum yfir líkt og í sushibita. Með
þessu má síðan bæði drekka hvítt
og rautt og við erum einnig með
bjór í dósum og á dælu.“
Hann segir Íslendinga vera
sólgna í skálarnar. „Við opnuðum
okkar fyrsta sölustað í Hafnartorg
Gallery núna síðastliðið sumar og
gengið hefur vonum framar. Við
leggjum mikla áherslu á stöðug-
leika og gæði ásamt því að geta
afgreitt skálarnar hratt.“ Kualua
býður upp á aðeins óhefðbundn-
ari poké skálar en hafa sést hér
á landi. „Við förum aðrar leiðir
þegar kemur að samsetningu
skálanna og framreiðslu þeirra,“
segir Kolbeinn og segir lykilatriði
að hafa skapandi fólk í brúnni.
„Hann Haukur Már Hauksson,
einn af eigendum hamborgara-
keðjunnar Yuzu og fyrrverandi
yfirkokkur á Grillmarkaðnum,
er yfirkokkur og meðeigandi
Kualua Poké Bar. Haukur setti
saman matseðilinn á Kualua og
var hann í þróun í rúmt ár fyrir
opnun staðarins. Allir réttirnir
á matseðlinum eru ólíkir en allir
virkilega bragðgóðir á sinn hátt.
Og við lofum því að allir geta
fundið sér eitthvað við sitt hæfi á
matseðlinum.“
Sushi er mikill uppáhaldsmatur
sumra en það er sannarlega ekki
að allra smekk og sumir setja
fyrir sig að snæða hráan fisk sem
er aðaluppistaðan í sushi. „Þeir
sem að borða ekki sushi þurfa
ekki að vera hræddir við að prófa
Poké skálarnar á Kualua,“ segir
Kolbeinn. „Það eru aðeins tvær
skálar á matseðli sem innihalda
hráan fisk en við erum einnig
með kjúkling, rækjur og tofu.
Poké skálar eru frábær máltíð og
maður fær eiginlega ekki nóg af
þeim. Þær henta vel í hádegismat
og/eða í kvöldmat. Ég mæli með
Wasabi-rækjuskálinni, hún er
alveg geggjuð.“
Eins og áður sagði er Kualua
staðsett í mathöllinni á Hafnar-
torgi Gallery. Kolbeinn er afar
sáttur við staðsetninguna. „Þetta
er að mínu mati f lottasta mat-
höll landsins og það er virkilega
skemmtilegt að fá að taka þátt í
uppbyggingu hennar.“ n
Poké skálar eru frábær máltíð
Kolbeinn Nói
Ölduson, eig-
andi og rekstrar-
stjóri Kualua, er
ánægður með
viðtökurnar
en staðurinn
var opnaður
á Hafnartorgi
Gallery í sumar.
Frettabladid/
anton
Heilsuréttastaðurinn
Maika'i á Hafnartorgi hefur
slegið svo hressilega í gegn
að nú flytja eigendur hans
inn Açaí-ber í gámavís.
„Açaí-ber eru ofurfæða. Þau vaxa
bara á einum stað í heiminum,
sem er á trjám í Amazon-frum-
skóginum í Brasilíu. Þau líta út
eins og bláber en eru með steini
og ákaflega heilnæm, stútfull af
andoxunarefnum og ómega 3, 6 og
9-fitusýrum. Açaí-ber hafa víðtæk
áhrif til betri heilsu; þau eru góð
fyrir sálina, líkamann og hugann,“
segir Elísabet Metta Ásgeirs-
dóttir, eigandi heilsuréttastaðarins
Maika‘i á Hafnartorgi.
Elísabet Metta var stödd á para-
dísareyjunni Balí árið 2016 þegar
hún kynntist alvöru açaí-skál.
„Þá var dásamlegt að vakna og
geta fengið sér alvöru açaí-skál
sem var algjört lostæti að njóta en
á sama tíma líka afar hollt. Ég féll
því kylliflöt fyrir açaí-skálum á
Balí og datt í hug að gaman væri
að opna stað með alvöru açaí-
berjum heima á Íslandi. Þá þegar
var komið smá æði fyrir açaí hér
heima en alltaf með açaí-dufti í
stað alvöru açaí-berja,“ greinir
Elísabet Metta frá.
Úr varð að Elísabet Metta og
Ágúst Freyr Hallsson, unnusti
hennar og meðeigandi að Maika‘i,
hófu leit að ekta açaí-berjum fyrir
það sem seinna varð Maika‘i.
„Við prófuðum okkur áfram
með frosna açaí-kubba þar til
einn daginn að Ágúst rakst á rétta
birginn með fersk açaí-ber sem við
gætum flutt inn. Við drifum okkur
út til að prófa og leist svo vel á að
nú flytjum við berin inn sjálf og
milliliðalaust beint til Íslands. Við
byrjuðum smátt en flytjum nú inn
heilu gámana beint frá Brasilíu.
Það segir sitt um vinsældirnar,“
segir Elísabet Metta.
Maika’i nú í Nettó og Hagkaup
Maika‘i er einn af fyrstu stöðunum
sem opnuðu á Hafnartorgi og sá
eini sinnar tegundar sem býður
upp á alvöru açaí-skálar á Íslandi.
„Við opnuðum sumarið 2020,
þegar heimsfaraldurinn reið yfir
heimsbyggðina. Það var vissu-
lega áhætta en viðtökurnar voru
slíkar að ég þurfti að stökkva yfir
í hádegispásunni minni á öðrum
vinnustað til að afgreiða á Maika‘i
því þar var alltaf röð út úr dyrum,“
segir Elísabet Metta.
Skömmu síðar opnuðu þau
útibú í Smáralind og eru nú einnig
í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli.
„Þá höfum við einnig sett á
markað Maika‘i-vörulínu í Nettó
og Hagkaup, sem samanstendur
af açaí-grunninum okkar í 500
ml dollum, Maika‘i-hnetusmjöri,
granóla og saltkaramellu. Það
selst upp jafnóðum enda þykir
mörgum gott að eiga til þessi
hráefni heima og gera sína eigin
açaí-skál heima með ávöxtum
eða öðru sem það vill út á,“ segir
Elísabet Metta og afurðirnar eru
hollustan uppmáluð.
„Það eina sem við notum í
skálarnar okkar og gæti f lokkast
undir örlitla óhollustu er dökkt
súkkulaði út í vinsælustu skálina,
Freyju. Hún er með hnetusmjöri,
döðlum og dökku 70 prósent
súkkulaði, en einnig er hægt að
fá út á hana hvítt súkkulaði og
karamellu. Það er auðvitað aðeins
meira gotterí en hverjum og
einum er frjálst að velja fyrir sig í
skálina.“
Súper holl ofurfæða
Açaí-ber eru vanalega ekki borðuð
beint af trjánum enda ekkert sér-
staklega bragðgóð ein og sér.
„Því er sætuefnum blandað
saman við berjagrunninn og
notum við eingöngu lífræn
sætuefni sem eru þau hollustu og
hreinustu sem völ er á. Berja-
grunnarnir okkar eru unnir úti
og það gerir þjónustu hjá okkur
skjóta; við erum með tilbúna
grunna í skálarnar og tekur ekki
nema eina til tvær mínútur að
útbúa hverja açaí-skál. Það þykir
mikill kostur í annríki dagsins og
við höfum fengið mikið hrós fyrir
hvað við erum fljót að afgreiða
skálarnar á Maika‘i,“ segir Elísabet
Metta.
Hún segir jafnframt mikla
ánægju með að f lestallar skálar
Maika‘i eru vegan.
„Açaí-berjagrunnurinn okkar er
vegan og við notum ekki skyr né
aðrar mjólkurafurðir í skálarnar
okkar. Við vorum heppin að hitta
á þessa vöru og höfum líka verið
sniðug að blanda saman granóla
sem við lögum sjálf án viðbætts
sykurs, sem og hnetusmjöri sem
við lögum sjálf. Við útbúum því
sannarlega hollan kost en vitum
líka að skálarnar seljast ekki ef
þær eru ekki himneskt góðar á
bragðið. Við viljum ekki að fólk
sitji eftir með þá tilfinningu að
það hafi borðað óhollt þótt açaí-
skál bragðist eins og dýrindis
eftirréttur, því það skín í gegn að
þetta er súper holl ofurfæða.“ n
Maika‘i er á Kolagötu 1 á Hafnar-
torgi, beint á móti Kolaportinu
og við innkeyrsluna niður í bíla-
stæðahús Hafnartorgs frá Geirs-
götu. Frítt er í bílastæðahúsið
fyrstu 15 mínúturnar sem passar
vel fyrir afgreiðslu á gómsætri og
bráðhollri açaí-skál. Sjá meira á
maikai.is
Elísabet Metta Ásgeirsdóttir er eigandi Maika’i á Hafnartorgi.
Ofurfæða beint úr frumskógum Brasilíu
Açaí-skálarnar á Maika’i eru vegan.
FrÉttablaÐiÐ/ernir
kynningarblað 13LAUGARDAGUR 17. desember 2022 hafnartOrg