Fréttablaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 112

Fréttablaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 112
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun Torg ehf. dReifing Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Óttars Guðmundssonar n Bakþankar Bráðum koma blessuð jólin og allir eiga að hlakka til. Það er þó ekki einhlítt því að margir fara reglulega á jólablús. Það er þó engin ný saga. Gísli Súrsson var ekkert jóla- barn. Hann drap mág sinn í jólaboði í Dýrafirði, sem setti allt í bál og brand í fjölskyldunni. „Síðan þá þoli ég bara ekki jólin,“ sagði Gísli á dögunum á AA-fundi. Órækja frændi minn Snorrason Sturlusonar sagði að jólin í Reykholti hefðu alltaf verið leiðinleg. Eitt jólapartíið árið 1241 endaði með því að Órækja lét hálshöggva stjúp- bróður sinn Klæng Bjarnarson í hefndarskyni fyrir Snorra föður sinn. „Það voru reyndar skástu jólin,“ sagði Órækja. Klængur sjálfur sagðist alltaf fara á jóla- blús. „Mér leiddist í jólaboðum með Órækju. Hann var með ADHD og tók ekki lyfin sín í desember. Mér fannst líka miður að missa höfuðið í jólaboðinu!“ Egill afi minn Skallagrímsson tók alltaf mikla ógleði um jól og lagð- ist í rúmið og rifjaði upp hverjir skulduðu honum peninga. Sjálfur hef ég um árabil lagst í sjálfsvorkunn um jól. Ég hugleiði gamlar syndir og spila tónlist með sænskum raunsæisblúsur- um sem syngja um krabbamein og feðurna sem svíkja börnin sín og mæður sem drekka köku- dropa. Mér líður best illa undir þessari ljúfsáru eymd. Mestu skiptir að jólablúsinn er venjulega eigið val. Jólafýlupok- arnir stjórna öllu sínu umhverfi með svipbrigðum og sjálfsmeð- aumkun. Allir tipla á tánum í kringum blúsarann sem situr með frekjusvip og krefst athygli. „Góður blús er gulli betri,“ sagði Egill afi stundum í fjölskyldu- boðunum á Borg. n Jólablús 20% AFSLÁTTUR af öllum vörum frá Samsonite icewear.is RANGÁ kápa Íslensk ullareinangrun kr. 33.990,- Gleðilega útivist Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2 ALLT FYRIR HJÁ TÖLVUTEK GRÆJUJÓL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.