Fréttablaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 2
Það er auðvelt að gúgla
vegan uppskrift að
einhverju sem fólki
finnst gott.
Valgerður Árna-
dóttir formaður
Samtaka græn-
kera á Íslandi
Stuð á skíðum
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað í gær. Snjóframleiðsla hefur gengið vel undanfarna daga og gert er ráð fyrir vænni sendingu um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Valgerður Árnadóttir, for-
maður Samtaka grænkera á
Íslandi, segir alla velkomna
á jólahlaðborð samtakanna
á morgun. Um sé að ræða
pálínuboð og því sé eina skil-
yrðið fyrir mætingu að koma
með eitthvað vegan á borðið.
lovisa@frettabladid.is
JÓL Jólahlaðborð Samtaka græn-
kera á Íslandi er á Hallveigarstöðum
á Túngötu á morgun á milli 18 og
20. Boðið er pálínuboð og er opið
öllum. Aðgangur er ókeypis og
hjólastólaaðgengi á staðnum.
„Hlaðborðið er hugsað fyrir græn-
kera og að þau geti borðað allt sem
er í boði vegna þess að það er mikil
vöntun á því. Án þess að fólk þurfi
að borga rosalega mikinn pening,“
segir Valgerður, en viðburðurinn er
hugsaður fyrir bæði grænkera og þá
sem eru forvitnir um grænkerafæði.
„Það er eina skyldan að koma með
eitthvað vegan á borðið,“ segir Val-
gerður. Hún mælir með því fyrir þau
sem eru góð að baka og elda að kíkja
í Facebook-hópinn Vegan Jól – upp-
skriftir og ráð, en svo sé líka í öllum
helstu matvöruverslunum hægt að
finna gott úrval vegan matar sem
hægt er að hita upp.
„Svo er hægt að koma með bakk-
elsi. Eitthvað tilbúið eða baka eitt-
hvað. Það er auðvelt að gúgla vegan
uppskrift að einhverju sem fólki
finnst gott. En við erum að miða við
að þetta sé nokkuð jólalegt þannig
að þetta er kannski ekki viðburður-
inn sem þú kemur með hummus og
kex á.“
Hún segir að almennt sé orðið
nokkuð auðvelt að vera grænkeri og
að fara út að borða en að það hafi
reynst grænkerum erfitt að fara á
jólahlaðborð.
„Það er mikilvægt að hrósa þeim
sem standa sig vel í að bjóða upp
á valkosti fyrir grænkera. Það eru
alveg nokkrir og þetta er að skána
en það eru margir stórir staðir, sem
taka á móti stórum vinnustöðum,
sem ekki huga nægilega vel að
þessu,“ segir Valgerður, en samtökin
sendu í haust áskorun á veitinga-
staði og hótel með hlaðborð um jól
og hvöttu þau til að taka betur tillit
til grænkera.
„Þar var að finna uppástungur
um hvað er hægt að gera vegan.
Þetta þarf ekki að vera erfitt. Það er
hægt að skipta út mjólkurvörunum
eða setja smjörlíki eða olíu í stað
smjörs,“ segir Valgerður og að hún
sakni þess sérstaklega þegar það er
engin sósa með hnetusteikinni. n
Saknar þess helst ef ekki
er sósa með hnetusteikinni
Samtök grænkera sendu í haust áskorun á veitingastaði og hótel með jóla-
hlaðborð að taka betur tillit til grænkera. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
bth@frettabladid.is
VEÐUR Það eru yfirgnæfandi líkur
á snjókomu í nótt og í fyrramálið,“
sagði Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur hjá Bliku í gær.
„Já, það eru allar líkur á hvítum
jólum á höfuðborgarsvæðinu.“
Ef spáin gengur eftir eru lesendur
Fréttablaðsins á suðvesturhorn-
inu nú með hvíta jörð í kringum
sig. Óhætt virðist fyrir foreldra að
segja ungviði að allar líkur séu á að
jólasnjórinn muni halda fram yfir
hátíðir.
Óvissa er þó með snjómagn. Einar
spáir 5–10 sentímetrum. Hann segir
yfirgnæfandi líkur á að hiti haldist
undir frostmarki til jóla og líklegt sé
að bæti í.
„Mér finnst áhugavert hvað þessi
kuldatíð ætlar að haldast,“ segir
Einar.
Frostakaflinn nú verður að lík-
indum einn sá lengsti á þessari öld.
Samkvæmt spánni gætu þrettán
frostkaldir dagar komið í röð.
„Þetta er mjög óvenjulegt. Svo í
næstu viku verður meiri næðingur
og þá bítur frostið enn frekar,“ segir
Einar. n
Allar líkur á hvítum jólum í Reykjavík
benediktboas@frettabladid.is
HVERAGERÐI Kostnaður sem fallið
hefur til vegna ráðgjafar, hönn-
unar og gerðar útboðsgagna vegna
uppbyggingar Hamarshallarinnar
í Hveragerði nemur tíu milljónum
króna. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
spurði um kostnaðinn sem hefur
fallið til við vinnu vegna uppbygg-
ingaáforma um nýja Hamarshöll en
sú fyrri fauk í ofsaveðri.
Verkfræðistofurnar Verkís og
Mannvit hafa fengið 2,9 milljónir
annars vegar og 3,5 milljónir hins
vegar. Arkitektastofan Alark hefur
fengið 3,6 milljónir. „Af þessu eru
tæplega þrjár milljónir sem féllu
til vegna hugmynda fyrrum meiri-
hluta um kaup á nýju loftbornu
íþróttahúsi og ráðgjafar vegna
tryggingabóta,“ segir í bókun Frið-
riks Sigurbjörnssonar. „Mikilvægt
er að vanda vel til verka áður en lagt
er af stað í stór og veigamikil verk-
efni og borgar það sig til lengri tíma
litið,“ segir þar enn fremur. n
Tíu milljóna
áform um höll
Hamarshöllin sem fauk á haf út.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Svo í næstu viku verð-
ur meiri næðingur og
þá bítur frostið enn
frekar.
Einar Svein-
björnsson,
veðurfræðingur
hjá Bliku
2 Fréttir 17. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ