Fréttablaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 71
Hið gamalgróna íslenska
vörumerki og heimstísku-
merki 66°Norður er komið á
kunnuglegar slóðir. Í sumar
var opnuð verslun 66°Norð-
ur á Hafnartorgi.
Verslunin er staðsett á nýja hafnar-
svæðinu við hlið Edition-hótelsins
og nýrra höfuðstöðva Landsbank-
ans við Hörpu.
Basalt arkitektar hönnuðu nýju
verslunina og sóttu innblástur
sinn í íslenskt veður og umhverfi.
Búðarborðið er með íslenskri
flóru eftir hönnuðinn Rögnu
Ragnars. Í borðplötunni eru þurrk-
aðar blómajurtir og hliðarnar eru
steyptar úr svörtum sandi.
Í mátunarklefum verslunar-
innar má finna Erm-stólana eftir
hönnuðina Valdísi Steinars og
Arnar Inga. Stólarnir, sem voru
frumsýndir á HönnunarMars 2022,
eru gerðir úr ermum af úlpum sem
ekki er hægt að gera við.
Sjálf staðsetningin er bein
skírskotun í söguna og arfleifð
66°Norður, en fyrirtækið hóf fram-
leiðslu á skjólfatnaði fyrir sjómenn
fyrir tæplega einni öld.
Sagan hófst sumarið 1924 þegar
Hans Kristjánsson frá Suðureyri
við Súgandafjörð fékk styrk frá
Fiskifélagi Íslands til að ferðast til
Noregs og kynna sér sjóklæðagerð.
Á þessum tíma klæddust flestir
sjómenn skósíðum stökkum frá
Noregi og Bretlandi.
Þegar Hans sneri aftur hóf hann
sjóklæðagerð á Suðureyri og tókst
að halda framleiðslunni úti heilan
vetur við erfiðar aðstæður. Hann
hafði háleitar hugmyndir og vildi
búa til sjóklæði fyrir alla lands-
menn svo ekki þyrfti að reiða sig á
innflutt föt. Hann vissi að til að svo
mætti verða þyrfti hann að geta
dreift vörunni greiðlega til allra
landshluta.
Því fór svo að Hans Kristjáns-
son flutti með fjölskyldu sína til
Reykjavíkur og stofnsetti Sjó-
klæðagerð Íslands í bakhúsi við
Laugaveg 24 árið 1926.
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar.
Verslunin við Hafnartorg er 300
fermetrar og með stærstu versl-
Hátíska í vöggu sögu og arfleifðar
Aldís Arnardóttir stýrir verslunarsviði 66°Norður. MYNDir/AÐSENDArVerslunin á Hafnartorgi er rúmgóð og glæsileg.
Búðarborðið hyllir íslenska náttúru.
Glæsileg verslun 66°Norður á Hafnartorgi.
unum 66°Norður. Í versluninni er
að finna handverk eftir íslenska
hönnuði og er megináherslan
á sjálfbærni. 66°Norður hefur
markvisst unnið í því að draga úr
umhverfisáhrifum og er kolefnis-
hlutlaust frá árinu 2019.
Víða um búðina má finna stóra
skúlptúra sem eru hluti af sýningu
listakonunnar Öldu Ægisdóttur,
Útópíu. Verkin eru innblásin af
frumum, bakteríum, plöntum
og skordýrum, og draga fram
litlu heimana sem leynast allt í
kringum okkur.
„Það er margt um að vera á
Hafnartorgi Gallery í aðdraganda
hátíðanna og fjölbreytt dagskrá
á svæðinu,“ segir Aldís Arnar-
dóttir, sem stýrir verslunarsviði
66°Norður. „Við leggjum okkur
fram við að taka þátt í að skapa
góða jólastemningu í aðdraganda
jólanna og núna á laugardaginn (í
dag) verðum við til að mynda með
kynningu í verslun okkar á Hafn-
artorgi á vörulínu sem við unnum
í samstarfi við Fischersund, sem
samanstendur af ilminum Útilykt
og kerti og tei í sömu línu.“
Að sögn Aldísar er desember stór
mánuður hjá 66°Norður. „Það er
alltaf mikil stemning sem skapast
í aðdraganda jólanna. Verslunin á
Hafnartorgi er frábær viðbót við
aðrar verslanir okkar, enda í hjarta
borgarinnar þar sem er að byggjast
upp sterkur og skemmtilegur versl-
unar- og þjónustukjarni sem við
hvetjum alla til að heimsækja núna
í aðdraganda jóla.“ n
„Það var ávallt
keppikefli hjá
okkur að opna
verslun þarna
við gömlu
höfnina enda
var upphaf
Sjóklæða-
gerðarinnar í
beinni tengingu við sjóinn og
við framleiðslu á skjólfatnaði
fyrir íslenska sjómenn sem
við sinnum enn þá í dag.“
Helgi Rúnar Óskarsson,
forstjóri 66°Norður
kynningarblað 15LAUGARDAGUR 17. desember 2022 Hafnartorg