Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 71

Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 71
Hið gamalgróna íslenska vörumerki og heimstísku- merki 66°Norður er komið á kunnuglegar slóðir. Í sumar var opnuð verslun 66°Norð- ur á Hafnartorgi. Verslunin er staðsett á nýja hafnar- svæðinu við hlið Edition-hótelsins og nýrra höfuðstöðva Landsbank- ans við Hörpu. Basalt arkitektar hönnuðu nýju verslunina og sóttu innblástur sinn í íslenskt veður og umhverfi. Búðarborðið er með íslenskri flóru eftir hönnuðinn Rögnu Ragnars. Í borðplötunni eru þurrk- aðar blómajurtir og hliðarnar eru steyptar úr svörtum sandi. Í mátunarklefum verslunar- innar má finna Erm-stólana eftir hönnuðina Valdísi Steinars og Arnar Inga. Stólarnir, sem voru frumsýndir á HönnunarMars 2022, eru gerðir úr ermum af úlpum sem ekki er hægt að gera við. Sjálf staðsetningin er bein skírskotun í söguna og arfleifð 66°Norður, en fyrirtækið hóf fram- leiðslu á skjólfatnaði fyrir sjómenn fyrir tæplega einni öld. Sagan hófst sumarið 1924 þegar Hans Kristjánsson frá Suðureyri við Súgandafjörð fékk styrk frá Fiskifélagi Íslands til að ferðast til Noregs og kynna sér sjóklæðagerð. Á þessum tíma klæddust flestir sjómenn skósíðum stökkum frá Noregi og Bretlandi. Þegar Hans sneri aftur hóf hann sjóklæðagerð á Suðureyri og tókst að halda framleiðslunni úti heilan vetur við erfiðar aðstæður. Hann hafði háleitar hugmyndir og vildi búa til sjóklæði fyrir alla lands- menn svo ekki þyrfti að reiða sig á innflutt föt. Hann vissi að til að svo mætti verða þyrfti hann að geta dreift vörunni greiðlega til allra landshluta. Því fór svo að Hans Kristjáns- son flutti með fjölskyldu sína til Reykjavíkur og stofnsetti Sjó- klæðagerð Íslands í bakhúsi við Laugaveg 24 árið 1926. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Verslunin við Hafnartorg er 300 fermetrar og með stærstu versl- Hátíska í vöggu sögu og arfleifðar Aldís Arnardóttir stýrir verslunarsviði 66°Norður. MYNDir/AÐSENDArVerslunin á Hafnartorgi er rúmgóð og glæsileg. Búðarborðið hyllir íslenska náttúru. Glæsileg verslun 66°Norður á Hafnartorgi. unum 66°Norður. Í versluninni er að finna handverk eftir íslenska hönnuði og er megináherslan á sjálfbærni. 66°Norður hefur markvisst unnið í því að draga úr umhverfisáhrifum og er kolefnis- hlutlaust frá árinu 2019. Víða um búðina má finna stóra skúlptúra sem eru hluti af sýningu listakonunnar Öldu Ægisdóttur, Útópíu. Verkin eru innblásin af frumum, bakteríum, plöntum og skordýrum, og draga fram litlu heimana sem leynast allt í kringum okkur. „Það er margt um að vera á Hafnartorgi Gallery í aðdraganda hátíðanna og fjölbreytt dagskrá á svæðinu,“ segir Aldís Arnar- dóttir, sem stýrir verslunarsviði 66°Norður. „Við leggjum okkur fram við að taka þátt í að skapa góða jólastemningu í aðdraganda jólanna og núna á laugardaginn (í dag) verðum við til að mynda með kynningu í verslun okkar á Hafn- artorgi á vörulínu sem við unnum í samstarfi við Fischersund, sem samanstendur af ilminum Útilykt og kerti og tei í sömu línu.“ Að sögn Aldísar er desember stór mánuður hjá 66°Norður. „Það er alltaf mikil stemning sem skapast í aðdraganda jólanna. Verslunin á Hafnartorgi er frábær viðbót við aðrar verslanir okkar, enda í hjarta borgarinnar þar sem er að byggjast upp sterkur og skemmtilegur versl- unar- og þjónustukjarni sem við hvetjum alla til að heimsækja núna í aðdraganda jóla.“ n „Það var ávallt keppikefli hjá okkur að opna verslun þarna við gömlu höfnina enda var upphaf Sjóklæða- gerðarinnar í beinni tengingu við sjóinn og við framleiðslu á skjólfatnaði fyrir íslenska sjómenn sem við sinnum enn þá í dag.“ Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður kynningarblað 15LAUGARDAGUR 17. desember 2022 Hafnartorg
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.