Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 60
Af hverju ekki að
smella saman gömlum
töktum við nú tímann?
Blanda saman
Techno. is og Volume.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
AFGREIÐSLUTÍMI NÆSTU DAGA
Gamlársdagur og nýársdagur - LOKAÐ
2. janúar 11-18
er hafin
60%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
Skannaðu QR
kóðann og skoðaðu
útsöluvörurnar
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
ninarichter@frettabladid.is
„Saltað kjöt hefur einkennt vikuna
sem er að líða og eins og mörg önnur
hef ég f lakkað milli jólaboða með
fjölskylduna í eftirdragi þar sem
hver veislan rekur aðra,“ segir Atli
Fannar. „Þetta er auðvitað búið að
vera yndislegt þó að við þurfum
auðvitað að endurskoða þetta kerfi
þar sem atvinnurekendur komast
upp með að sleppa því að gefa okkur
almennilegt jólafrí, þegar það hittir
svona á,“ segir hann og vísar til þess
að aðfangadagur hittir á laugardag
þetta árið og því er frí launafólks í
algjöru lágmarki. „Fyrir utan eftir
köst jólanna hefur vikan aðallega
einkennst af stressi fyrir sjónvarps
þættinum Árið með Gísla Marteini,“
segir hann. Þátturinn Árið með
Gísla Marteini var sýndur á RÚV í
gærkvöldi.
„Í þættinum fór ég yfir árið sem
er að líða í máli og myndum en
þegar vikan hófst var ég kominn
styttra í undirbúningi en ég ætlaði
mér eftir að hafa legið í f lensu og
magakveisu í fyrri hluta desem
ber. Þetta reddaðist þó allt saman
og innslagið var tekið upp en í
spennufallinu keyrði ég norður
á Sauðárkrók þar sem ég ætla að
fagna áramótunum í faðmi fjöl
skyldunnar,“ segir Atli Fannar.
„Um áramótin er hefðin að hoppa
inn í nýja árið þegar klukkan
slær tólf en það hefur oft
endað með drykkjum á
gólfi og brotnum hús
gögnum – eitthvað sem
við neitum að læra af.“ n
Saltað kjöt og stresskast vegna áramótaþáttar
n Frétt vikunnar
Atli Fannar Bjarkason,
fjölmiðlamaður
Atli Fannar Bjarka-
son óskar launa-
fólki lengra frís
um jólin.
Rúm tíu ár eru síðan Techno. is
hélt sitt síðasta klúbba kvöld
á skemmti staðnum Fakt orý í
Reykja vík en nú hafa Arn viður
Snorra son, betur þekktur sem
plötu snúðurinn Addi Exos,
og raftónlistarmaðurinn Sam
Wise á kveðið að kveikja líf í
senunni á ný með risa ára
móta partíi á Ægis garði í kvöld.
mhj@frettabladid.is
Ekkert hefur spurst til Techno.is
síðan síðasti maður tók bassa boxið
úr sam bandi á Faktorý en í nótt
verður haldið allra síðasta kvöld
Techno.is í sam starfi við Volume.
Volume hefur verið að hasla
sér völl í raf tón listar senunni á Ís
landi síðustu ár og mun því gamli
og nýi skólinn blandast saman á
rúmum 140 slögum á mínútum úti
á Granda.
„Ég og Addi ætluðum alltaf að
henda saman í ára móta ball og hugs
uðum með okkur: Af hverju ekki að
smella saman gömlum töktum við
nú tímann? Blanda saman Techno.is
og Volume,“ segir Sam Wise spurður
um hvernig sú hug mynd kviknaði
að vekja Techno.iskvöldin af
værum svefni.
Sam segist mjög með vitaður
um að Techno.is veki upp nost
algíu hjá djammþyrstum Reyk
víkingum en kvöldin réðu lofum
og lögum í skemmtana lífi borg
arinnar fyrir efna hags hrunið.
Straum hvörf urðu þegar Techno. is
hélt fjöl mennasta klúbba kvöld sem
haldið hafði verið á Ís landi, þegar
Sander Kleinenberg fyllti skemmti
staðinn Broadway, en yfir 2.000
manns sóttu við burðinn. Í kjöl farið
stóð Techno.is fyrir komu tón listar
manna eins og Fedde Le Grand,
Pendulum, Dirty South, Timo Maas,
Dj Tiesto, Benny Benassi og Sander
Van Doorn.
Á sama tíma hóf út var ps
þátturinn Techno.is göngu sína á
Flass 104,5 og lifði vel og dafnaði
næstu árin. Árið 2007 var Techno. is
búið að þre falda, jafn vel fjór falda
að sókn sína að meðal tali og tók
þá starf semin upp á því að halda
ekki einungis technokvöld, heldur
opnaðist gátt fyrir aðrar tón listar
stefnur á borð við House, Drum and
Bass, Trance og hið svo kallaða Mini
mal sem að var að tröll ríða er lendu
dans senunni á þessum tíma.
Met mæting var mánaðar lega
á stærstu skemmti stöðum lands
ins, Nasa og Broadway en Techno.
is f lutti mánaðarlega inn erlenda
plötusnúða til að trylla lýðinn.
Þegar Nasa og Broadway lögðu upp
laupana færðust kvöldin á Grand
Rokk sem síðar varð Faktorý en sem
fyrr segir kvöddu klúbbakvöldin
með Faktorý.
Gestir áramótaveislunnar í kvöld
mega búast við nostalgíu í bland við
ferska tóna en bæði Addi Exos og
Pluggd munu stíga á stokk en tónar
þeirra voru brautryðjandi í senunni
hérlendis á árum áður.
Á samt þeim koma síðan fram
Volumeliðs fé lagarnir, Samwise,
Sbeen Around, BenniThor og Hall
dóra.
Sam segir að fólk megi búast
við sam bæri legri stemmingu með
ferskari tónum og enn betra hljóð
kerfi en áður. Miðasala á viðburðinn
fer fram á Tix.is og eru allir vel
komnir á meðan húsið leyfir. n
Endurvekja Techno.is
með áramótasprengju
Sam Wise (t.v.) og strákarnir í Pluggd ætla að sjá um alvöru klúbbastemningu á áramótunum í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Benny Benassi tryllir lýðinn fyrir
techno.is 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
48 Lífið 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréTTablaðið