Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 58
Aflétting er orð
ársins 2022
Fréttablaðið leitaði að orði ársins*. Orðin þurftu að eiga það
sammerkt að vera tíður gestur í umræðunni og einkenna með
einhverjum hætti tíðaranda, ástand eða samfélagsbreytingar.
Fréttablaðið útnefndi orðið aflétting sem orð ársins 2022.
ninarichter@frettabladid.is
Aflétting
Árið var ár afléttinga á takmörkunum af ýmsu
tagi sem tengdust heimsfaraldrinum. Öllum
sóttvarnatakmörkunum innanlands og á landa-
mærum var aflétt aðfaranótt föstudagsins 25.
febrúar. Covid-19 faraldurinn hefur litað orða-
lista síðustu ára og að sjálfsögðu vonum við að
þetta sé í síðasta sinn sem slíkt gerist.
Rafhlaupahjól
Orðin rafhlaupahjól, raf-
magnshlaupahjól og rafskúta
voru tíðir gestir á síðum
fjölmiðla á árinu sem nú er
að líða.
Inngilding
Þýðingin á enska orðinu inclusion. Orðið er helst
notað í tengslum við umræðu um mikilvægi þess
að tryggja aðgengi allra hópa að samfélaginu.
Afslaufun
Aflýsing og slaufun eru orð
notuð yfir höfnun samfélags-
ins gagnvart gerendum, í
tilfellum þar sem kynferðis-
brotamál hafa komið í dags-
ljósið. Orðin öðluðust sess
í almennri umræðu í kjölfar
#MeToo-byltingarinnar árið
2017.
Fljótlega fór þó að bera á
því að þvert á áhyggjuraddir
áttu margir hinna aflýstu eða
slaufuðu afturkvæmt í sviðs-
ljósið og atvinnulífið og vildu
sumir kalla slík tilfelli dæmi
um svokallaða afslaufun.
Verðbólga
Verðbólga hrjáði þjóðina á árinu sem leið og var
orðin tíður og heldur óvelkominn gestur í um-
ræðuna 2022.
Rafmyntaglæpir
Nútímalegir glæpir á borð við rafmyntaglæpi
og kortasvindl af ýmsu tagi hrjáðu landann og
fólk var ítrekað varað við því að láta glepjast af
undarlegum póstsendingum og beiðnum um
greiðslur og kortaupplýsingar.
Ferðamet
Ferðamet var slegið í sumar
og hálf þjóðin virtist skella
sér til Ítalíu, Tenerife eða á
báða staðina ef marka
má samfélagsmiðla.
Aðrar tilnefningar til orðs ársins hjá öðrum stofnunum
Vefsetrið Orðabók.is tilnefndi
eftirfarandi orð
Bókaþynnka
Saknaðartilfinning til sögu-
heimsins sem lesendur fá eftir
að hafa klárað bók.
Brottnámsbaukur
Kaffimál til að taka með sér
heitan drykk út af veitingastað.
Eyrnaspenar
Lítil þráðlaus heyrnartól sem á
ensku kallast airpods.
Gommugræja
Að sinna mörgum verkefnum
á sama tíma. Að gommugræja
eitthvað. Íslensk þýðing á enska
hugtakinu multitasking.
Hleðslukvíði
Kvíði gagnvart því að rafhlaðan í
símanum klárist á óheppilegum
tíma þegar ekki er hægt að
stinga tækinu í samband.
Hraðtíska
Fjöldaframleidd föt sem lítið
eru notuð og daga uppi í land-
fyllingum. Framleidd úr ódýrum
efnum af láglaunafólki sem
starfar við slæmar aðstæður.
Leghafi
Ókynjað hugtak yfir þá sem eru
með leg. Ekki allir sem hafa leg
eru konur og ekki eru allar konur
með leg.
Sófavitringur
Sá sem veit öll svör við spurn-
ingakeppnum í sjónvarpinu svo
lengi sem hann situr á sófanum
heima hjá sér.
Váhrifaskvaldur
Sá sem fjasar á samfélags-
miðlum fáum til góðs.
Veðurstofusumar
Tímabilið 1. júní til 30. septem-
ber, sem Veðurstofa Íslands skil-
greinir sem sumar á Íslandi.
RÚV hefur ekki valið orð
ársins en eftirfarandi eru
tilnefnd
Armslengd
Kom oft upp í samhengi við
umdeilda sölu á Íslandsbanka.
Forsætisráðherra skilgreindi
armslengd, í samhengi opin-
berrar stjórnsýslu, sem fjar-
lægð milli stefnumótunar og
framkvæmdar í því skyni að
koma í veg fyrir að stjórnmál
hafi óæskileg áhrif á faglega
stjórnun og rekstur.
Hoppa
Í samhengi við rafskútuleigur.
Stærsta leigan á Íslandi heitir
Hopp og þeir sem nota ferða-
mátann tala gjarnan um að
hoppa á milli staða.
Húðrútína
Að sinna húð, yfirleitt húð í
andliti, með sérstökum með-
ulum og tækni.
Inngilding
Kom fram árið 2016. Höfundur
orðsins er sagður Berglind Rós
Magnúsdóttir sem þýðir enska
hugtakið inclusion í samhengi
við skólastarf.
Innrás
Innrás Rússa í Úkraínu í febrúar
leiddi til skelfilegra hörmunga
fyrir Úkraínumenn og fólks-
flótti brast á auk þess sem efna-
hagslegra áhrifa gætir um alla
álfuna.
Íþróttaþvætti
Tengist hugtökum á borð við
hvítþvott, grænþvott og bleik-
þvott, þar sem stórfyrirtæki
nota íþróttir til að beina athygli
frá spillingu. Orðið var notað
í tengslum við mannréttinda-
brot í Katar þar sem HM í knatt-
spyrnu var haldin á árinu.
Kaupmáttarbruni
Formaður BHM lét þau orð falla
í tengslum við kjaraviðræður
að markmiðið hlyti að vera að
stöðva kaupmáttarbrunann.
Mathöll
Mathallir verða fleiri en kind-
urnar í landinu með sama
áframhaldi. Fyrsta mathöllin
opnaði árið 2017 og nú eru mat-
hallirnar orðnar tíu.
Móttökubúðir
Metfjöldi flóttafólks kom til
landsins á árinu og dómsmála-
ráðherra sagði við fjölmiðla í
október að honum hugnaðist
vel að koma á fót móttökubúð-
um fyrir flóttafólk, og fullyrti
við sama tækifæri að það væri
ekki það sama og flóttamanna-
búðir.
Neyðarbirgðir
Nauðsynlegar birgðir til að
tryggja afkomu þjóðarinnar á
hættutímum. Kom til umræðu í
sambandi við yfirvofandi orku-
skort vegna stríðs í Úkraínu.
Orkuskipti
Aðgerðir til að auka hlutfall
endurnýjanlegra orkugjafa í
orkubúskap landsins.
Rampa
Í samhengi við verkefnið
Römpum upp Ísland.
Tenetásur
Seðlabankastjóri sagði í
október að tíðar tásumyndir
frá Tenerife væru merki um
kröftuga einkaneyslu á fyrri
árshelmingi.
Tilboðskvíði
Þegar fólki finnst það verða að
nýta sér tilboð á dögum á borð
við Svartan föstudag og sam-
bærilega tilboðsdaga.
Þriðja vaktin
Hugtak notað til að lýsa hug-
rænni byrði sem konur bera oft
frekar en karlar í heimilishaldi.
*Leitin að orði ársins hjá Fréttablaðinu fór fram með óformlegri könnun blaðamanns á
ritstjórn Fréttablaðsins í desember 2022.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
595 1000 www.heimsferdir.is
Tenerife
Flug aðra leið til
19.975
Flug aðra leið frá
Flugsæti
í janúar
46 Lífið 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttAblAðið