Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 44
Okkar hugmyndafræði er sú að við mætum alltaf. 1759 Arthur Guinness byrjar að brugga Guin- ness-bjórinn. 1787 Tíma einokunarverslunar lýkur á Íslandi og 1. janúar 1788 er verslun frjáls öllum þegnum Danakonungs. 1791 Skólapiltar í Hólavallaskóla halda fyrstu áramótabrennu sem vitað er um með vissu á Íslandi. 1871 Fyrsta blysför er farin í Reykjavík að undirlagi skóla- pilta og á Tjörninni er álfadansleikur. 1874 Á síðasta degi þjóðhátíðarárs er skemmtisamkoma á Espihóli í Eyjafirði. Gerður veisluskáli úr snjó með borðum, bekkjum og ræðustól. 1914 Gleðskapur er með mesta móti í Reykjavík, en frá og með miðnætti er öll sala og framleiðsla áfengis bönnuð á Íslandi. 1948 Bandaríska tónlistarkonan Donna Summer fædd. 1959 Bandaríski leikarinn Val Kilmer fæddur. 1999 Vladímír Pútín settur forseti Rússlands eftir að Boris Jeltsín segir af sér. Merkisatburðir Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir og afi, Kristberg Snjólfsson Miðgarði 9, Reykjanesbæ, lést á Landspítalanum Fossvogi þann 17. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Margrét Linda Marísdóttir Alma Glóð Kristbergsdóttir, Lilja Björt Kristbergsdóttir Kristófer Már Þórhallsson, Vilborg Ósk Jónsdóttir Jóhann Helgi Þórhallsson, Aníta Rós Pétursdóttir Bjarni Freyr Þórhallsson, Arnór Snæland og barnabörn Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað Sverrir Einarsson S: 896 8242 Jón G. Bjarnason S: 793 4455 Jóhanna Eiríksdóttir Útfararstofa Íslands www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararstofa Hafnarfjarðar www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Brandur Fróði Einarsson Stillholti 21, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, sunnudaginn 25. desember. Útförin verður auglýst síðar. Þuríður Skarphéðinsdóttir Margrét Brandsdóttir Sveinbjörn Brandsson Birna Antonsdóttir Einar Brandsson Ösp Þorvaldsdóttir Magnús Daníel Brandsson Brynhildur Benediktsdóttir Kristín Sigurlaug Brandsdóttir Eiríkur Tómasson Soffía Guðrún Brandsdóttir Magnús Þór Ásmundsson Kristleifur S. Brandsson Heiðrún Hámundar afabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigrún Clausen Sólmundarhöfða 5, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, fimmtudaginn 15. desember. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju, fimmtudaginn 5. janúar kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Guðfinna Gróa Pétursdóttir Guðjón Pétur Pétursson María Sigurbjörnsdóttir Arinbjörn Pétursson Þorsteinn Gunnar Pétursson Hulda Sigurðardóttir ömmubörnin Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, tengdasonur og afi, Sigurður Þórir Sigurðsson kaupmaður í Blómatorginu við Birkimel, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 28. desember. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 5. janúar kl. 15.00. Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir Ragna Eiríksdóttir Rúnar Sigurðsson Stefanía Ragnarsdóttir Anna Jónsdóttir og afabörn Ástkær faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Gísli Ferdinandsson skósmiður, lést á hjúkrunarheimilinu Grund, 24. desember. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 13. janúar kl. 13. Fjölskylda hins látna 32 Tímamót 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðiðTímAmóT Fréttablaðið 31. desember 2022 LAUGARDAGUR Sumir hafa það fyrir sið að kíkja í sjóbað í kringum áramótin og þá skiptir sjaldan máli þótt sjórinn sé ískaldur. arnartomas@frettabladid.is Fólk fagnar áramótunum á ýmsa vegu og hafa sumir þann sið að skella sér í sjó- bað. Sjóbaðsleikjanámskeiðið Glaðari þú stendur í dag fyrir svokölluðu áramóta- gleðisjóbaði í Nauthólsvík þar sem 2022 verður kvatt með hrolli. „Sjóbaðið er náttúrulega svo góð leið til að endurræsa kerfið,“ svarar Guðrún Tinna Thorlacius hjá Glaðari þú, aðspurð hvers vegna fólk ætti að kveðja árið með þessum hætti. „Að fara út í sjóinn í með- vitund og skilja eitthvað eftir. Ég held að þegar við erum í sjóbaðinu þá sé ekki neitt pláss fyrir drasl í hausnum. Þú getur tekið stöðuna með sjálfum þér og hugsað í meðvitund hvað þú viljir taka inn í nýja árið.“ Eins og glöggir lesendur kunna að hafa gert sér grein fyrir hefur verið kalt á Íslandi upp á síðkastið. Það þarf enga kuldaskræfu til að viðurkenna að við- komandi þyrfti nánast að vera andsetinn til að hætta sér nærri sjónum í svona vetr- arhörkum, hvað þá ofan í hann. Guðrún Tinna segir þó að sjórinn sjálfur sé aldrei fyrirstaða þess að viðburðir séu haldnir heldur sé það frekar færðin í borginni. „Jú, þetta er kalt,“ segir Guðrún Tinna um sjóinn sem hefur að undanförnu verið í mínus tveimur gráðum. „Það er samt alltaf hægt að fara í sjóinn og við ætlum bara að fara mjög stutt. Okkar hugmyndafræði er sú að við mætum alltaf. Við frestum aldrei vegna þess að sjórinn sé eitthvað ómögulegur.“ Margra meina bót Samhliða viðburðinum í dag munu meðlimir í SJÓR, sund- og sjóbaðsfélagi Reykjavíkur, skella sér ofan í á morgun til að taka á móti nýja árinu – í spariföt- unum. Sjálf hefur Guðrún Tinna baðað sig í sjónum í um fjögur ár. „Ég byrjaði í Wim Hof kuldaþjálfun 2018 en hef undanfarin tvö ár verið með þessi námskeið,“ segir hún. „Við Margrét sem stýrir þessu með mér erum þá að fara í sjóinn allt að fimm sinnum á dag, þrisvar í viku.“ Og hvað er það svo við sjóbaðið sem gerir það svona heillandi? „Við höfum séð það á fólki sem stundar sjóinn hjá okkur að þetta hefur jákvæð áhrif á bólgur og verki,“ útskýrir Guðrún Tinna. „Rannsóknir hafa til dæmis sýnt fram á að þau séu góð gegn mildu þung- lyndi og kvíða. Ef þú hugsar að þú getir farið í sjóinn í mínus tveimur gráðum, horft inn á við og hugsað með þér að það sé samt í lagi með þig, þá er hægt að yfirfæra það í aðrar aðstæður eins og að eiga erfitt samtal í vinnunni eða að fara á krefjandi fund.“ Það hljómar eins og ágætis leið til að núllstilla sig fyrir árið. „Það er ekkert betra,“ segir Guðrún Tinna og hlær. Þegar þetta viðtal er tekið er enn í lausu lofti hvort viðburðurinn í dag fari fram en áhugasamir geta kíkt á Facebook- síðu Glaðari þú til að sjá stöðuna. Guð- rún Tinna vekur einnig athygli á því að ný námskeið hefjist hjá þeim Margréti 3. janúar. n Kaldur sjór er engin fyrirstaða Guðrún Tinna segir ekki vera til betri leið til að kveðja árið en stutt stopp í sjónum. Mynd/Aðsend
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.