Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 52
Mannýgari en verðlaunahrútur úr Mývatns- sveit og tannhvassari en indverskt tígrisdýr kom völvan Ingibjörg Lára Ayawazka sérlega illa undan kófinu en eftir að búið var að gauka að henni kartoni af filterslausum Camel, þriggja mánaða korti í World Class og gjafabréfi á Aktu taktu tókst Fréttablaðinu eina ferðina enn að fá hana til þess að rýna eina í þokuna sem hylur komandi ár. Sem fyrr er allt undir og áður en völvan stokkaði tarot- spilin, dustaði rykið af kristalskúlunni og rótaði í botn- falli kaffibollans braust Ingibjörg Lára út úr geðlægðinni með því að bruna í svett í Hvalfirði þar sem hún víkkaði huga sinn með heimabrugguðu Ayahuasca-kakói. Ekki gat hún þó séð það fyrir að seyðið myndi brenna hana svo illa á tungunni að orðaflauminn sem frá henni kom í transinum reyndist illskiljanlegur en flest þau undur og stórmerki sem hún sér í kortunum virðast þó miður falleg. Annað árið í röð spáir hún lukkudýri Miðflokksins, Uppspuna frá Rótum undan Þvælu frá Upphafi, blóð- ugum dauða en þeim bráðfeiga gæðingi hefur þó hingað til ekki verið í hel komið. Ekkert frekar en langþreyttri þjóðinni sem berst um í hlekkjum hugarfars síns í hrjáðu landi og má, ef spáin er rétt skilin, búa sig undir fram- hald á andlegum og efnahagslegum kreppum umkringd hraun- og snjósköflum og áframhaldandi myglufaraldri í innviðum og stjórnmálum. Vituð þér enn eða hvað? n Seint verður Uppspuna frá Rótum í hel komið Frú Ayawaska kveikti á kerti og skoðaði sín tarotspil áður en hún dustaði rykið af kristalskúlunni. Eldgos ógnar vísindamönnum Náttúran leikur við hvurn sinn fingur á nýja árinu svo landslýð mun sem oft áður þykja nóg um. Fyrir utan stórhríðarveður og frosthörkur munu ósköpin fyrst byrja fyrir alvöru með snjóflóði á Austfjörðum sem varnargarðar munu þó naum- lega beina fram hjá byggðinni fyrir neðan og íbúum þar. Reykjanesskaginn hefur ekki sungið sitt síðasta og náttúru- öflin rumska þar að nýju með vorinu. Skjálftavirknin virðist í fyrstu benda til þess að um- brotin færist nær höfuðborgar- svæðinu en á endanum hættir jörð að skjálfa – um sinn. Óvæntustu tíðindin úr nátt- úrunni varða þó veðráttuna í sumar. Eftir afburða milt vor eiga landsmenn ekki von á góðu og búa sig undir svalt sumar en annað verður upp á teningnum og búast má við að hitamet falli víða í júlí, til dæmis í uppsveitum sunnanlands og vestan. Þótt stutt rigningar- skeið verði bæði í júní og ágúst mun sólin að mestu ráða ríkjum og suðrænir vindar ylja fram undir haust. Veðurblíðan mun þó koma hressilega í bakið á borgarstjórn Reykjavíkur sem bókfærir fyrirsjáanlegan sparnað í snjó- mokstri snarlega sem hagnað. Ísland mun þó að sjálfsögðu koma bæði innfæddum og erlendu ferðafólki á óvart með því að standa undir nafni í vetur sem verður miklum mun snjó- þyngri en árin á undan. Samgöngur í borginni fara í algera steik enda hvorki mann- skapur né tæki tiltæk til þess að mæta fannferginu. Alexandra Briem setur í snatri fram stýrihóp til þess að fara yfir hvað klikkaði og eftir tveggja mánaða þrotlausa vinnu finnst fundargerð sérstaks stýri- hóps sem var kallaður saman í desember 2022 og í ljós kemur að ekkert hefur verið unnið í málaflokknum síðastliðið ár þar sem sá hópur náði aldrei að funda vegna ófærðar. Eldgos sem hefst í Bárðar- bungu með stuttum fyrirvara í sumarlok yfirskyggir þó öll önnur tíðindi af náttúrunni og uppátækjum hennar. Tvísýnt verður um hóp erlendra jarð- vísindamanna og íslenskan fylgdarmann þeirra sem verða innlyksa norðan jökuls. Reykjanesskaginn neitar að syngja sitt síðasta og rumskar á ný. Engin lognmolla í kringum Lilju Einhver þreytumygla liggur yfir pólitíkinni árið 2023 en ríkisstjórnarflokkarnir munu þó ekki sigla lygnan sjó. Það er skandall í kortunum sem mun þó líklega ekki sprengja hagsmunasamband flokk- anna þriggja. Nafn Lilju Alfreðsdóttur kemur oftast upp í handanheimum í þessu sambandi og næsta víst að engin lognmolla verður í kringum hana á þessu ári. Ósætti hennar við Sjálfstæð- ismenn verður í forgrunni. Enda magnast einhver pirringur í Framsóknarfólki á árinu þar sem sigurvegurum síðustu kosninga finnst þeir eiga skilið meira. Einnig glittir í vandræði í einkalífi pólitíkusa og for- maður eins stjórnmálaflokks mun skilja að borði og sæng. Fjölmiðlar munu fara offari í málinu enda munu við- komandi munnhöggvast fyrir opnum tjöldum. Líklegt er að þetta verði í kringum Þjóð- hátíð í Eyjum. Vinátta Katrínar Jakobs- dóttur og Bjarna Benedikts- sonar styrkist. Þau hafa aldrei verið nánari. Viðræður um samstarf þeirra á milli að loknum stjórnmálaferlinum munu hefjast á þessu ári. Völvan sér þó ekki hvort það verði á bókmenntasviðinu eða í kringum stofnun alþjóð- legrar stofu sem mun beita sér fyrir auknu alþjóðlegu samstarfi stjórnmálamanna gegn popúlisma. Ríkisstjórnin mun eiga fremur volgt 2023 miðað við. Sameinuð andstaða og feigur Uppspuni Þreytan sem völvan sér í kortum stjórnmálanna mun einnig gera vart við sig meðal stjórnarandstöðunnar. Kristrún Frostadóttir mun eiga erfitt þegar nýjabrumið fer af henni en þegar hún sest við slaghörpuna á ögur- stundu og Inga Sæland brest- ur í tárvotan söng dregur heldur betur til tíðinda. Þær eiga í framhaldinu einlægt spjall á kaffistofu Alþingis um hversu mikla athygli Samfylkingin fær á kostnað Flokks fólksins sem rennur út í formlegar viðræður um sameiningu flokkanna. Völvan sér ekki fyrir sér að þrátt fyrir að hafa öreiga allra landa að baki sér verði Sósíalistum boðið í partíið og Gunnar Smári Egilsson mun fara mikinn á Facebook vegna málsins. Völvan sér hins vegar fyrir sér að Kristrún bjóði Pírötum að samningaborðinu en þeir hafi ekki áhuga þar sem tæknilegir ágallar séu á samningsdrögum Ingu og Kristrúnar. Þreytan sem liggur svo þungt yfir íslenska stjórn- málalandslaginu blindar völvunni því miður sýn í öðrum málum Pírata þótt öllum megi vera ljóst að flokkurinn muni gera miklar og tæknilegar athugasemdir við alls kyns mál sem gætu skipt almenning máli. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson fetar áfram óþægi- leg einstigi á árinu og völvan sér ekki fyrir sér að hann nái að rífa Miðflokkinn upp þrátt fyrir nokkrar kjarnyrtar breiðsíðugreinar til höfuðs alls konar minnihlutahópum í Morgunblaðinu. Þær vekja hvergi athygli nema á Twitter þar sem Miðflokkurinn á ekkert fylgi inni. Uppspuni frá Rótum undan Þvælu frá upphafi er því bæði haltur og blindur þótt þingflokkur Miðflokksins, Sigmundur og Bergþór Ólason, sé sá samheldnasti á þingi. Liðhlaupinn Birgir Þórarinsson heldur áfram að rekast á öll horn Sjálfstæðis- flokksins með endalausum útspilum sem afhjúpa hann sem hreinræktaðan Mið- flokksmann og Sigmundur Davíð reynir því að höfða til hans innri Talibana með örvæntingarfullri úrslitatil- raun þegar hann freistar þess að lokka týnda soninn heim með því að láta halal slátra Uppspuna frá Rótum. Allt kemur fyrir ekki. Þá eru óveðursský yfir Viðreisn á þessu ári. Andarnir telja flokkinn munu eiga erfitt uppdráttar þótt liðs- menn hans haldi áfram að tala um ESB. Kristrún Frostadóttir býður upp í pólitískan dans næsta ár. Lón í óláni Ný bylgja heimsfaraldursins hefur lítil áhrif á ferða- mannaflauminn sem mætir síhnerrandi til landsins með sjálfuprikin á lofti. Áfram- haldandi samdráttur, kreppa og algerlega óvæntur kostn- aður við snjóruðning verða til þess að Reykjavíkurborg neyðist til þess að flytja úr Ráðhúsinu og færa starfsemi sína í skrifstofuhúsnæði í Lindahverfinu í Kópavogi. Húsnæðið stendur þó ekki lengi autt því sívaxandi eftir- spurn eftir baðlónum leiðir til þess að Andalón (e. Duck Lagoon) opnar dyr sínar í fyrrverandi Ráðhúsinu. Túristarnir sprikla og sprella innan um endur og álftir á meðan borgarbúar keppast um að kaupa súrdeigsbrauð í nærliggjandi bakaríum svo þeir geti hent til ferðamann- anna sem eiga ekki fyrir mat í þessu agalega árferði. Ferðamenn verða ofan í nýju Andalóni við Ráðhúsið. Grimmir réttlætisenglar Ásgeir Jónsson seðlabanka- stjóri verður í einu aðalhlut- verka í einu fyrsta hneykslis- máli ársins þegar hann stenst ekki freistinguna og skellir sér til Tenerife úr margra vikna kulda- og snjómeti. Ekki vill þó betur til en svo að tásumynd af seðlabanka- stjóra á ströndinni birtist á Instagram ónefnds áhrifa- valds. Engu breytir að óvænt kuldakast á Tene verður til þess að Ásgeir kelur á tánum. Tíðindin fara sem eldur í sinu um samfélagsmiðlaheima og hans fyrsta verk þegar heim er komið verður að hækka stýrivexti enn frekar. Verðbólgan heldur engu að síður áfram að vaxa. Þetta verður vitaskuld til þess að verkalýðsfélögum vex ásmegin og kröfur um launahækkanir sem um mun- ar verða háværari. Völvan sér fyrir sér að Efling fylgi kröfum sínum eftir með uppfærðum ein- kennisjökkum stjórnarliða félagsins sem verða nú alvöru, hnausþykkir og svartir leddarar með áletruninni GRIMMIR ENGLAR RÉTT- LÆTIS. 40 Lífið 31. desember 2022 LAUGARDAGURFRéttablaðiðLífið FRéttablaðið 31. desember 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.