Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 14
Slysa- og bráðamóttaka Land- spítala í Fossvogi n Opið allan sólarhringinn, alla daga. Aðalsímanúmer Land- spítala: 543-1000. Eitrunarmiðstöð 543-2222. Læknavaktin móttaka í Austurveri n Opið 9.00–23.30. n Símaráðgjöf fyrir allt landið er opin allan sólarhringinn. n Sími: 1770 og 1700. Rauði Krossinn 1717 er hjálparsími Rauða krossins og verður opinn allan sólarhring- inn. Neyðarvakt tannlækna á höfuð- borgarsvæðinu Opið gamlársdag og nýársdag 10–12 hjá Tannsetrinu, Hlíðasmára 17, Kópavogi. Sími: 780-8070. Neyðarlínan Neyðarsíminn 112 er opinn allan sólarhringinn yfir hátíðarnar og svarar fyrir slökkvilið, sjúkrabif- reiðar og lögreglu um allt land. Dýralækningamiðstöðin Grafarholti Gamlársdagur Opið 10–12. Nýársdagur Lokað. Ef um alvarlegt neyðartilvik er að ræða, utan opnunartíma, er hægt að ná í dýralækni á bakvakt. Bakvaktin er einungis hugsuð fyrir alvarlega veik eða slösuð dýr. Útkallið kostar um 35.000 krónur, sem bætist við almennt aðgerða- gjald. Símanúmerið hjá dýralækni á bakvakt er 530-4888. Kvennaathvarfið Opið allan sólarhringinn, alla daga. n Kvennaathvarfið í Reykjavík, sími: 561-1205. n Kvennaathvarfið á Norðurlandi, sími: 561-1206. Apótek Lyfja Gamlársdagur n Opið 10–12: Selfoss, Árbær, Garðatorg, Grafarholt, Mosfells- bær, Hafnarstræti, Hólagarður, Nýbýlavegur, Setberg, Skeifan, Spöngin, Borgarnes, Egilsstaðir, Höfn, Ísafjörður, Patreksfjörður, Neskaupstaður, Reyðarfjörður, Sauðárkrókur. n Opið 9–12: Reykjanesbær, Akureyri. n Opið 8–18: Lágmúli, Smáratorg. n Opið 8–15: Grandi. n Opið 10–13: Smáralind. n Opið 10–14: Þjónustuver, Lyfju- appið. Nýársdagur n Opið 10–24: Lágmúli, Smára- torg. Apótekarinn Gamlársdagur n Opið 9–18: Austurver. n Opið 10–12: Helluhraun, Mos- fellsbæ. n Opið 9–13: Fjarðakaup. Nýársdagur n Opið 9–23: Austurver. Lyf og heilsa Gamlársdagur n Opið 10–13: Grandi. n Opið 10–13: Kringlan. n Opið 10–12: Glerártorg. Nýársdagur n Lokað. Sundlaugar Gamlársdagur n Opið 8–12: Eskifjörður, Norð- fjörður, Sundlaug Kópavogs, Versalir, Hornafjörður. n Opið 8–12.30: Seltjarnarnes. n Opið 8–13: Ásvallalaug, Laugar- dalslaug, Sundhöll Reykjavíkur, Suðurbæjarlaug, Lágafellslaug, Varmárlaug. n Opið 8–11: Vestmannaeyjar. n Opið 8–11.30: Ásgarður, Garða- bær. n Opið 9–11: Patreksfjörður, Tálknafjörður, Akranes – Jaðars- bakkalaug. n Opið 9–12: Akureyri, Hofsós, Laugar Reykjadal, Sauðárkrókur, Garður, Flateyri, Suðureyri, Sundhöll Ísafjarðar, Borgarnes, Þorlákshöfn. n Opið 9–11.30: Álftaneslaug, Keflavík. n Opið 9–13: Árbæjarlaug, Breið- holtslaug, Dalslaug, Grafarvogs- laug, Vesturbæjarlaug. n Opið 10–11.30: Vogar. n Opið 10–12: Stokkseyri, Hólma- vík. n Opið 10–13: Klébergslaug. n Opið 10–14: Húsavík, Akranes – Guðlaug. n Opið 9.30–18: Secret Lagoon. n Opið 11–16: Fontana. n Opið 12–15: Sandgerði. Nýársdagur n Opið 12–18: Laugardalslaug, Sundhöll Reykjavíkur. n Opið 10–18: Sundlaug Kópa- vogs, Versalir. n Opið 11–15: Ylströndin. n Opið 10–19: Secret Lagoon. n Opið 11–21: Fontana. Strætó Gamlársdagur Ekið verður samkvæmt laugar- dagsáætlun. Ekið verður til ca. 15.00. Þjónustuver er opið frá 10–14. Nýársdagur Ekið verður samkvæmt sunnu- dagsáætlun. Þjónustuver er opið frá 10–14. Strætó á landsbyggðinni Gamlársdagur n Leiðir 51, 52, 55, 57, 88, 89 aka samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. n Innanbæjarvagnar í Reykja- nesbæ: Leiðir R1, R3 og R4 aka til 12.00. n Innanbæjarvagn á Akureyri: Leiðir A1, A2, A3, A4, A5 og A6 aka til 12.00. Nýársdagur Enginn akstur. Smáralind Gamlársdagur Opið 10–13. Nýársdagur Lokað. 2. janúar Hefðbundinn opnunartími. Kringlan Nýársdagur Opið 10–13. Nýársdagur Lokað. 2. janúar Opið 10–18.30. Vínbúðin Gamlársdagur Opið 9–14. Nýársdagur Lokað. Vínbúðin á landsbyggðinni Gamlársdagur n Opið 9–14: Akureyri, Reykjanes- bær, Selfoss. n Opið 10–13: Akranes, Borgarnes, Egilsstaðir, Hveragerði, Ísafjörð- ur, Sauðárkrókur, Vestmanna- eyjar, Blönduós, Mývatn, Dalvík, Flúðir, Grindavík, Hella, Húsavík, Hvolsvöllur, Höfn, Neskaup- staður, Ólafsvík, Patreksfjörður, Reyðarfjörður, Siglufjörður, Stykkishólmur, Búðardalur, Djúpivogur, Fáskrúðsfjörður, Grundarfjörður, Hólmavík, Hvammstangi, Kirkjubæjar- klaustur, Kópasker, Seyðisfjörð- ur, Vík í Mýrdal, Vopnafjörður, Þorlákshöfn, Þórshöfn. n Opið 10–12.30: Hrísey. Nýársdagur Lokað. Opnunartímar yfir áramót Flugeldasýningar og brennur munu eflaust lita fyrstu áramót eftir að öllum samtökuafmörkunum vegna COVID-19 faraldursins var aflétt. fréttablaðið/Vilhelm Eru ostur og rjómi mikilvægasti hluti atvinnulífsins? Valdimar Haf- steinsson, for- stjóri Kjöríss Forstjóri Kjöríss segir MS hafa eitt fyrirtækja á Suðurlandi fengið fylgdarakstur frá Vega- gerðinni. Hann segir þetta vera mismunun. bth@frettabladid.is SAmGöNGuR Valdimar Hafsteins- son, forstjóri Kjöríss og formaður Félags atvinnurekenda á Suður- landi, segir að Vegagerðin hafi hyglað MS og mismunað öðrum fyrirtækjum. Vegagerðin hafi leyft nokkrum vöruflutningabílum frá MS að fara yfir Hellisheiði mánudag fyrir jól í fylgdarakstri á sama tíma og önnur fyrirtæki komust hvergi og urðu fyrir sölutjóni. Valdimar segir að ólga og órói hafi skapast hjá fyrirtækjum á Suður- landi í aðdraganda jóla þegar ófært varð á höfuðborgarsvæðið. Vega- gerðin hafi verið spurð hvort hægt væri að komast í fylgdarakstur á þriðjudegi til að koma vörum á markað fyrir jólin. Vegagerðin hafi tekið ágætlega í það en Hellisheiði hafi opnast allri umferð þannig að ekki kom til þess. „Hins vegar virðist okkur sem MS, eitt fyrirtækja, hafi fengið að fara með bíla yfir heiðina á mánu- deginum í fylgdarakstri,“ segir Valdimar. „Það kallast mismunum, ef rétt er. Mér finnst þetta alvarlegt mál ef Vegagerðin ætlar að halda trúverðugleika sínum. Eru ostur og rjómi mikilvægasti hluti atvinnu- lífsins?“ Valdimar segir að Vegagerðin eigi hrós skilið fyrir að skoða mögulegan fylgdarakstur fyrir atvinnuf lutningabíla þegar mikið liggur við en eitt verði yfir alla að ganga. Ýmis fyrirtæki hafi orðið fyrir sölutjóni vegna lokunar- innar, enda um stærstu söluviku ársins að ræða. Svör Vegagerðarinnar við fyrir- spurn Fréttablaðsins staðfesta að MS var eina fyrirtækið sem fékk forgangsfylgd yfir Hellisheiðina. MS hafði samband við verkstjóra Vegagerðarinnar seinnipart mánu- dagsins 19. desember með fjóra tilbúna bíla og var brugðist við erindinu. „Þar sem þá var talið fært fyrir fylgdarakstur fyrir stóra bíla fengu f lutningabílar MS að aka yfir heiðina á eftir mokstursbílum um kvöldið,“ staðfestir Sólveig Gísla- dóttir hjá samskiptadeild Vega- gerðarinnar. Vegagerðin segir að á sama tíma hafi átt sér stað samtal Vegagerðar- innar við formann atvinnurekenda á Suðurlandi með það fyrir augum að bjóða upp á fylgdarakstur. „Skipulagður var fylgdarakstur snemma daginn eftir fyrir fjölda framleiðenda og f lutningsaðila. Þegar til kom var búið að opna heið- ina á þeim tíma og því þurfti ekki fylgdarakstur.“ Sólveig segir stefnu Vegagerðar- innar að vera í góðu samtali við atvinnurekendur um fylgdarakstur á lokuðum vegum þegar sá mögu- leiki sé fyrir hendi. „Stundum þarf að skella á fylgd- arakstri með stuttum fyrirvara ef slíkt færi gefst og því ekki hægt að gefa langan umhugsunarfrest. Einn- ig getur verið erfitt að ná til allra þeirra sem gætu haft áhuga.“ Félag atvinnurekenda á Suður- landi unir ekki vinnubrögðum Vegagerðarinnar og ætlar að taka málið upp á fundi eftir áramót. n Kjörís segir Vegagerðina hygla MS á sinn kostnað MS hafði samband við Vegagerðina 19. desember með 4 tilbúna bíla og brugðist var við. fréttablaðið/Sigtryggur ari 14 Fréttir 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.