Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 26
Staðan á Íslandi er um margt góð. Við- spyrnan eftir heims- faraldur var kröftug, atvinnu- leysið fór hratt niður og er nú í lágmarki. Undanfarin ár hafa ýmsir valið orð ársins. Þannig hefur Árnastofnun fylgst með málnotkun landsmanna en árið 2020 valdi stofnunin orðið sóttkví orð ársins og 2021 var orðið bólusetning. Hlustendur Ríkisút­ varpsins völdu óróapúls orð ársins 2021 en örvunarskammtur var skammt undan. Hvort tveggja segir okkur ýmislegt um stemninguna í samfélaginu, hvaða viðburðir hafa haft mest áhrif á okkur og hvað við höfum talað mest um; heims­ faraldur og eldgos hafa augljóslega verið okkur ofarlega í huga. Annars staðar á Norðurlöndum er sami háttur hafður á. Víða hafa ein­ mitt orð tengd heimsfaraldri orðið fyrir valinu – kórónupassi var þann­ ig orð ársins í Danmörku 2021 og í Svíþjóð var orðið zoomþreyta eitt af þeim orðum sem kom til greina en það felur ekki einungis í sér þreytu á að sitja við skjáinn heldur ekki síður að horfa stöðugt á sjálfan sig. Það er hressandi að sjá hvernig tungumálið lagar sig að samfélag­ inu hverju sinni en ekki síður að skynja stöðugan nýsköpunarkraft tungumálsins. Þó að ýmsar áskor­ anir blasi við íslenskri tungu – þar sem efni á ensku er orðið aðgengi­ legra börnunum okkar en efni á íslensku og þörf er á mun meiri íslenskukennslu fyrir öll þau sem hingað f lytja – þá höfum við alla burði til að snúa þeirri þróun við og tryggja að íslensk tunga geti tekist á við nýja tíma. Einmitt þess vegna stofnuðum við nýja ráðherranefnd um íslensku á árinu sem nú er að líða – til að vernda og efla íslenska tungu á umbrotatímum. Innrásin í Úkraínu Enn liggur ekki fyrir hvað verður orð ársins 2022 en kannski verður það innrás. Það er óhætt að segja að innrás Rússa í Úkraínu hafi breytt öllu fyrir frið og framtíð Evrópu. Milljónir Úkraínumanna hafa flúið heimili sín, þúsundir óbreyttra borgara hafa fallið og eyðileggingin er gríðarleg. Ömurlegur veruleiki stríðsins sýnir okkur svo áþreifan­ lega að friður er forsenda allra fram­ fara og farsældar. Ísland hefur talað skýrt; við höfum tekið fullan þátt í viðskipta­ þvingunum Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi, við höfum tekið á móti rúmlega 2.000 úkraínskum flóttamönnum og sett umtalsverða fjármuni í mannúðaraðstoð, efna­ hagsaðstoð og búnað til að styðja úkraínsku þjóðina. Íslensk stjórn­ völd hafa á alþjóðavettvangi lagt þunga áherslu á þann sjálfsagða rétt Úkraínumanna að vera frjáls og fullvalda þjóð og að þessu stríði Ávarp forsætisráðherra Framtíðin er björt Katrín Jakobs- dóttir forsætis- ráðherra segir óhætt að segja að innrás Rússa íí Úkraínu hafi breytt öllu fyrir frið og framtíð Úkraínu. Fréttablaðið/ Sigtryggur ari verði að linna. Það er forsenda far­ sældar í Evrópu þegar litið er fram á veginn. Efnahagsleg áhrif af heimsfaraldri voru gríðarlega víðtæk; aðfanga­ keðjur röskuðust í faraldrinum og ferðalög á milli landa féllu niður. Atvinnuleysi og af komuöryggi fjölda fólks var stærsta áskorunin og áhyggjuefnið og aðgerðir stjórn­ valda sneru að stórum hluta að því að vinna gegn því að þær áhyggjur rættust. Viðspyrnan í þessum efnum hefur verið öflugri en hægt var að sjá fyrir. Afkoma atvinnulífs­ ins er almennt góð og ferðaþjónusta sem fékk þungt högg hefur blómstr­ að að loknum faraldri. Þrátt fyrir þessa góðu stöðu vitum við að enn er ekki allt samt. Þannig heyrum við af áhyggjum úr menningarlíf­ inu, þar sem meira virðist þurfa til að fólk fari út úr húsi en áður. Þetta minnir okkur á að félagsleg áhrif faraldursins voru einnig umfangs­ mikil og líklegt er að lengri tíma taki fyrir samfélagið að jafna sig á þeim en þeim efnahagslegu. Eftir innrás Rússa hafa áskoran­ irnar breyst; það er orkukreppa víða í Evrópu og verðbólga er himinhá. Við hér á Íslandi getum verið þakk­ lát fyrir okkar innlendu grænu orku og eins þá stöðu að megnið af raforkukerfinu er í almanna­ eigu. Svona áföll sýna okkur mikil­ vægi slíkra innviða og að þeir séu í almannaeigu. En við fáum okkar skerf af verðbólgunni sem hefur áhrif á lífskjör okkar allra og meiri áhrif á tekjulægri hópa en aðra. Þess vegna hefur ríkisstjórnin miðað viðbrögð sín og stuðningsaðgerðir að þeim sem finna mest fyrir verð­ bólgunni. Við kjarasamningsborðið hefur verið horft til skemmri tíma vegna óvissunnar – þar hafa samnings­ aðilar lagt mikið á sig til að landa farsælum samningum á óvissu­ tímum. Stjórnvöld hafa gert sitt til að greiða fyrir samningum, stuðla að stöðugleika og bæta lífskjör almennings – lækka húsnæðis­ kostnað, auka framboð á íbúðarhús­ næði og styðja betur við barnafólk með hærri barnabótum sem ná til f leiri. Þá skiptir miklu máli að í svo­ kölluðum lífskjarasamningum og þeim skammtímasamningum sem nú liggja fyrir við meirihluta launa­ fólks á almennum vinnumarkaði er áherslan á hækkun lægstu launa. Samfélag sem leggur áherslu á jöfn­ uð og stuðning við þau sem minnst hafa á milli handanna er gott sam­ félag. Verðmætasköpun eykst Á undanförnum árum höfum við séð þekkingargreinar vaxa og er nú talað um hugverkageirann sem fjórðu stoð atvinnulífsins ásamt sjávarútvegi, stóriðju og ferðaþjón­ ustu. Fyrir auðlindadrifið hagkerfi eins og Ísland skiptir miklu máli að efla þennan hluta atvinnulífs­ ins og það hafa stjórnvöld gert með markvissum hætti. Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar hafa þar vegið þungt og aukið verðmæta­ sköpun á öllum sviðum atvinnu­ lífsins. Á næstu misserum þarf að huga enn betur að undirstöðunum – það er fjármögnun háskólanna og samkeppnissjóða og tryggja jafn­ vægi í stuðningskerfi rannsókna og nýsköpunar þannig að sókn á þessu sviði geti haldið áfram. Atvinnulífið mun gegna lykilhlut­ verki við að ná markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsa­ lofttegunda. Samtal stjórnvalda við sveitarfélög og atvinnugreinar um geiraskipt losunarmarkmið stendur yfir og þar munu tækni og nýsköpun skipta miklu til að ná okkar sam­ eiginlegu markmiðum. Nú þegar sjáum við merki þess að slíkar grænar lausnir geta skipt sköpum í baráttunni gegn loftslagsvánni – sem er þrátt fyrir öll önnur áföll stærsta einstaka áskorunin sem við stönd­ um frammi fyrir. Þar skiptir máli að við tökum öll höndum saman; stjórnvöld, verkalýðshrey f ing, atvinnurekendur, fræðasamfélag og almenningur og vinnum saman að því að Ísland geti náð markmiðum sínum og deilt þekkingu sinni með öðrum löndum og þannig stutt við baráttuna á heimsvísu. Framtíðin er björt Staðan á Íslandi er um margt góð. Viðspyrnan eftir heimsfaraldur var kröftug, atvinnuleysi fór hratt niður og er nú í lágmarki. Við höfum á sama tíma eflt velferðarkerfið; stytt vinnuvikuna, lengt fæðingarorlof, stutt betur við heilbrigðiskerfið, eflt barnabótakerfið og aukið stuðning ríkisins til að tryggja aukið framboð af íbúðarhúsnæði. Samfélag snýst nefnilega ekki um hagtölur heldur fyrst og fremst um það hvernig fólki líður, hvaða tækifæri það hefur til að nýta og þroska hæfileika sína og hvort það nær endum saman. Þar blasa líka við stór verkefni enda ljóst að heimsfaraldur hafði neikvæð áhrif á líðan okkar, ekki síst unga fólksins. Þar hafa stjórnvöld gert sérstakar ráðstafanir til að sporna gegn neikvæðum félagslegum afleið­ ingum faraldursins. Á komandi ári munum við leggja sérstaka áherslu á velsæld og allt það sem við getum gert til að við öll getum átt gott líf í okkar góða samfélagi. Tækifærin eru mörg og framtíðin björt fyrir íslenskt samfélag. Katrín Jakobsdóttir 26 Helgin 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.