Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 22
Ég ætlaði að vera íþróttamaður þangað til í menntaskóla, þá fór ég að leika í ein- hverjum leikritum þar og fannst það gaman. Halldór Gylfason Við fórum á Jómfrúna og fengum okkur að borða og vorum með áfeng- ismæli með okkur til að sjá hvaða áhrif þetta hefði á okkur. Hilmir Snær Guðnason Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragnarsson, Hall- dór Gylfason og Þorsteinn Bachmann eru spenntir fyrir sumrinu 2023, sem þeir segja að verði veiðisumarið mikla. Þeir leika í sýningunni Mátu- legir í Borgarleikhúsinu og lögðust meðal annars í rann- sóknarvinnu fyrir hlutverkin þar sem þeir drukku jafnt og þétt í heilan dag. Leikararnir Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragn- arsson, Halldór Gylfason og Þorsteinn Bachmann leika í verkinu Mátulegir sem frumsýnt var í Borgarleikhús- inu í gær. Það fer vel á með þeim og greinilegt er að þeir eru orðnir góðir vinir eftir æfingatímabilið. Kalla hver annan til að mynda gælunöfn- unum Himmi, Dóri og Steini – Jör- undur fær að halda sínu nafni. Halldór: Það er búinn að vera frá- bær stemmari hjá okkur. Hilmir: Já, sammála. Það er búið að vera frábært að vinna með þess- um strákum öllum og það er búið að vera voða gaman hjá okkur. Ég held að það verði mjög gaman hjá okkur að leika þetta líka. Eruð þið allir búnir að þekkjast í hundrað ár? Jörundur: Svona mislengi, ég held að ég sé búinn að þekkja Dóra og Himma alveg síðan ég útskrif- aðist úr leiklistarskólanum en ég er bara búinn að vera að kynnast Steina núna undanfarna tvo vetur, alla vega að vinna með honum. Þorsteinn: Ég er búinn að þekkja Himma lengi, alveg síðan áður en við fórum í leiklistarskólann. Hilmir: Já, já, já, við gerðum leik- hús saman áður en við urðum leik- arar. Fjórir jólasveinar Hilmir Snær var ungur þegar hann byrjaði að leika í ýmsum skólaleik- ritum og ákvað snemma að hann vildi verða leikari. Hvað með ykkur hina? Þorsteinn: Ekki ég, það var kannski seint á unglingsárunum sem ég fattaði að ég hefði áhuga á þessu. Halldór: Ég ætlaði að vera íþróttamaður þangað til í mennta- skóla, þá fór ég að leika í einhverjum leikritum þar og fannst það gaman. En fram að því var ég í handbolta og fótbolta og hestum, æfði sund líka. Það var alltaf planið að vera íþrótta- maður, ég hafði alveg sprellað og tekið þátt í einhverjum leikritum í skóla en þegar ég lék fyrst í leikriti í menntaskóla þá fattaði ég að þetta væri kannski eitthvað fyrir mig. Halldór rifjar upp söguna af því þegar hann kynntist Þorsteini fyrst. Hann var enn í leiklistarskólanum og fékk símtal frá Þorsteini einn daginn. Halldór: Hann spottaði mig þegar ég var í leiklistarskólanum og hringdi í mig, sagðist vera með jólasveinagigg í veislusal og að hann vantaði einn sniðugan með sér. Þorsteinn: Mér fannst hann svo ótrúlega fyndinn eitthvað. Og voruð þið bara að leika jóla- sveina um allan bæ? Þorsteinn: Já, þetta var mest í veislusal sem foreldrar mínir voru með, Akóges-salnum. Gamlárskvöld skemmtilegra en jólin Halldór, Hilmir, Jörundur og Þorsteinn hafa skemmt sér vel við æfingar á Mátulegum og eru orðnir góðir vinir. Fréttablaðið/Valli Halldór: Þetta var geggjað gaman, við bara í jólasveinabúningi að fíflast eitthvað. Þorsteinn: Og við vorum „all in“, límdum skeggið á okkur og svona. Það var rosa metnaður, meira að segja augabrúnirnar voru límdar á, það mátti alveg toga í og ekkert fór af. Halldór: Já, já, það voru mörg gigg á dag, spilað á gítar og dansað kringum jólatré. Halldór og Þorsteinn eru ekki þeir einu sem leikið hafa jólasveina heldur eiga fjórmenningarnir það allir sameiginlegt og allir eru þeir sammála um að hlutverk jólasveins- ins sé skemmtilegt. Jörundur: Jú, þetta var mjög skemmtilegt gigg. Ég man einmitt eftir þessu, að líma skeggið á, við límdum alltaf yfirvaraskeggið og það gerði gæfumuninn. Þorsteinn: Já, en það er svolítið vesen að ná þessu af. Halldór: Já, en þetta herðir mann. Hilmir: Við gerðum þetta þegar ég var í leiklistarskólanum. Þá söfnuðum við bekkurinn með jóla- sveinagiggum, flestir selja klósett- pappír en við lékum jólasveina. Lögðust í rannsóknarvinnu Sýningin Mátulegir, sem byggð er á dönsku kvikmyndinni Druk, fjallar um fjóra lífsleiða menntaskóla- kennara sem ákveða að sannreyna tilgátu norsks heimspekings um að manneskjan sé fædd með hálfu prómilli of lítið af áfengi í blóðinu. Kennararnir drekka áfengi til að halda réttu áfengismagni í blóðinu og eins og við er að búast fer ekki allt eins og það á að fara. Mynduð þið treysta ykkur í að prófa þetta? Halldór: Við höfum prófað þetta. Hilmir: Já, við fórum í rannsókn- arvinnu, við fórum á Jómfrúna og fengum okkur að borða og vorum með áfengismæli með okkur til að sjá hvaða áhrif þetta hefði á okkur, hvenær við værum með 0,5 í blóð- inu og hvenær við færum hærra. Þurftuð þið allir jafnmikið til að ná 0,5? Hilmir: Nei, það var eitthvað mis- jafnt eftir mönnum. Allir skella þeir upp úr og Halldór segir að sumir hafi þurft minna en aðrir. Hilmir: Já, það var þannig en þetta var mjög góður dagur og hann skilaði miklu. Jörundur: Já, svo vorum við svona að lesa handritið og tékka hvernig þetta hljómaði með 0,5 pró- mill og hversu miklu munaði þegar maður var kominn í 0,7 prómill og svo leystist þetta bara upp í trúnó og vitleysu. Þannig að þið fóruð kannski aðeins yfir mörkin? Hilmir: Já, við fórum yfir þessi 0,5 prómill, sko. Jörundur: Ég held að við höfum náð upp í einn. Hilmir: Já, við náðum held ég einum, við náðum ekki þessu algleymi sem er talað um í leik- ritinu. Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is 22 Helgin 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttabLaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.