Morgunblaðið - 08.09.2022, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 8. S E P T E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 210. tölublað . 110. árgangur .
á Heilsu- & lífsstílsdögumNettó
Sigraðu innkaupin á
Ofurtilboð
og app-
tilboð alla
dagana
1.-11. september
50%
afsláttur
Allt að
HANDBOLTINN
BYRJAÐUR AÐ
RÚLLA Á NÝ INNRÁSIN HAFI ÁHRIF
SPENNANDI
VINNINGAR
Í BOÐI
ANDREJ KÚRKOV 22 ERTU VISS?SPÁÐ Í SPILIN 54
_ „Okkur ber skylda til að gera
eitthvað í þessum málum. Á að bíða
eftir næsta slysi þangað til eitthvað
verður gert eða skipa aðra nefnd?“
spyr Friðrik Rafnsson, formaður
Leiðsagnar, félags leiðsögumanna,
en Friðrik gagnrýnir öryggismál
við Reynisfjöru harðlega í samtali
við Morgunblaðið í dag. „Mér kom
mjög á óvart þegar ég var þarna í
síðustu viku að ekkert hefur gerst,“
segir formaðurinn og krefst úrbóta
áður en fleiri harmleikir eigi sér
stað. »2
Morgunblaðið/Eggert
Reynisfjara Fögur dauðagildra þeim sem
ekki þekkja náttúru Íslands svo gjörla.
Segir getu- og and-
varaleysið óboðlegt
_ Björn S. Lár-
usson, sveitar-
stjóri Langanes-
byggðar, fundaði
í vikunni með
fulltrúa skoska
eldflaugafyrir-
tækisins Skyrora
um fyrirhugað
tilraunaskot þess
á Langanesi.
Samgöngustofa
hefur loks gefið út leyfi fyrir
skotinu en fyrirtækið hafði beðið
mánuðum saman eftir grænu ljósi
frá yfirvöldum hér. »4
Skjóta brátt upp
eldflaug á Langanesi
Eldflaug Stórt
skot á Langanesi.
_ Framleiðsla á
jógúrt og skyri
úr höfrum ein-
göngu er ávöxtur
mikils þróunar-
starfs hjá Örnu
mjólkurvinnslu í
Bolungarvík.
Framleiðslu-
tæknin er nýjung í heiminum. Vör-
urnar fara á markað síðar í mánuð-
inum undir heitinu Vera Örnu-
dóttir. »2
Fjölskylda Veru Örnu-
dóttur á markað
Afurðir Tvær af
dætrum Örnu.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hleypti af
stokkunum átakinu Göngum í skólann með sér-
stakri athöfn í Melaskóla. Þetta er í 16. sinn sem
sambandið stendur fyrir átakinu en að athöfninni
lokinni var brugðið á leik. Hér má m.a. sjá Sigurð
Inga Jóhannsson innviðaráðherra, Sigríði Björk
Guðjónsdóttur lögreglustjóra og Willum Þór
Þórsson heilbrigðisráðherra syngja „Höfuð,
herðar, hné og tær“ með börnunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sungu Höfuð, herðar, hné og tær með börnunum
Stefán Einar Stefánsson
Baldur Arnarson
Ríflega átta af hverjum tíu erlendum
ríkisborgurum sem flutt hafa til
landsins frá ársbyrjun 2010 og fram
á mitt þetta ár eru undir fertugu.
Þetta kemur fram í tölum Hag-
stofunnar sem býður nú upp á
sundurliðun eftir aldri og kyni.
Miðað er við aðflutta umfram
brottflutta en frá upphafi hagvaxtar-
skeiðsins, sem hófst 2011, hafa fleiri
flust til landsins en dæmi eru um í
nútímasögu landsins.
Flutningsjöfnuðurinn er hins veg-
ar neikvæður hjá íslenskum ríkis-
borgurum en brottfluttir eru mun
fleiri en aðfluttir og eru þar af um
átta af hverjum tíu yngri en 40 ára.
Þá vekur athygli að karlar eru um
sex af hverjum tíu aðfluttum umfram
brottflutta á tímabilinu.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir þessar
tölur vitna um að hingað flytjist fyrst
og fremst fólk á vinnualdri, sem
komi hingað til að vinna. Það sé önn-
ur aldursdreifing meðal innflytjenda
en í mörgum ríkjum Evrópu.
Aðflutningurinn hafi knúið hag-
vöxtinn undanfarinn áratug.
„Fjöldinn undirstrikar hversu
mikilvægur aðflutningurinn hefur
verið fyrir hagvöxt, þ.e. fyrir aukna
verðmætasköpun íslenska hagkerf-
isins. Vinnuaflsþörf hagvaxtarins á
þessum tíma hefur að stórum hluta
verið mætt með erlendu vinnuafli,“
segir Ingólfur um framlag þeirra.
Kallar á þúsundir íbúða
Magnús Árni Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Reykjavík Econom-
ics, segir í samtali við Dagmál Morg-
unblaðsins í dag að hröð íbúafjölgun
vegna aðflutnings erlendra ríkis-
borgara hafi sett mikinn þrýsting á
fasteignamarkaðinn.
„Ef við segjum sem svo að þetta
séu 40 þúsund manns og tveir séu
um hverja íbúð þá kallar það á 20
þúsund íbúðir. Ef það eru þrír þá eru
það færri. En svo er það önnur leitni.
Það eru færri sem búa í hverri íbúð.
Það er þróun sem við höfum séð í ná-
grannaríkjunum,“ segir Magnús
Árni um fjölgunina.
Meirihluti yngri en 40 ára
- Margir innflytjendur eru á þrítugsaldri - Aðflutningur kallar á fleiri íbúðir
MLangflestir aðfluttra ... »6 og 26