Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 60
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Komandi starfsár einkennist af
blöndu af gömlu og nýju. Þannig má
segja að endurvinnsla, endurnýting,
umbreyting, frjósemi, tíminn og
hringrás náttúrunnar séu ákveðin
leiðarstef. En einnig hugmyndir um
afmælisveislur og spurningar eins
og hvernig stofnun eldist og þrosk-
ast í samanburði við manneskjuna
og líkamann,“ segir Erna Ómars-
dóttir, listdansstjóri Íslenska dans-
flokksins (Íd). Á komandi starfsári
frumflytur Íd þrjú ný verk, þ.e.
Geigengeist eftir dúóið Geigen sem
þau Gígja Jónsdóttir og Pétur Egg-
ertsson skipa; Hringrás eftir Þyri
Huld Árnadóttur og Urði Hákonar-
dóttur tónskáld og vorsýningu eftir
Tom Weinberger. Frá fyrri
sýningarárum eru aftur tekin til
sýningar verkin Ball eftir Alexander
Roberts og Ásrúnu Magnúsdóttur;
Hvíla sprungur eftir Ingu Maren
Rúnarsdóttur, Dagdraumar eftir
Ingu Maren Rúnarsdóttur og Black
Marrow eftir Damien Jalet og Ernu.
„Við hefjum starfsárið á því að
taka upp sýningar frá síðasta starfs-
ári, sem við upplifum að eigi enn
mikið inni,“ segir Erna og vísar þar
til Ball sem fer aftur í sýningu frá og
með 23. september og Hvíla sprung-
ur þar sem sýningar hefjast 20.
október. „Ball býður elskendum á
öllum aldri, með ólíka líkama, mis-
munandi bakgrunn og reynslu, að
stíga upp á svið og dansa saman.
Dansinn snýst því ekki um afburða-
tækni eða ómælda hæfileika hvers
og eins heldur um þá upplifun að
dansa alla þessa dansa saman. Það
er svo mikil dans- og leikgleði sem
einkennir þessa sýningu og gaman
að sjá hvað hún nær til ólíkra hópa,“
segir Erna og tekur fram að gaman
hafi verið að verða vitni að því
hversu vel sýningin spurðist út.
„Þetta er ótrúlega falleg sýning, sem
heiðrar dansinn í allri sinni mynd.“
Í sýningunni Hvíla sprungur
dansa fjórir dansarar í landslagi af
myndum eftir RAX, Ragnar Axels-
son, sem Júlíanna Steingrímsdóttir
hannaði búninga og leikmynd út frá.
„Myndirnar gefa dönsurunum tæki-
færi á að hverfa inn í sviðsmyndina
með áhrifaríkum hætti,“ segir Erna.
Vinnusmiðjur með nemendum
Síðustu ár hefur Íd iðulega verið á
ferð og flugi erlendis í sýningarferð-
um. „Í ár verður sú breyting að við
erum að horfa meira inn á við og
munum fara í sýningarferð innan-
lands með barnasýninguna Dag-
drauma, en sýnt verður á Aust-
fjörðum í október,“ segir Erna og
tekur fram að það hafi lengi verið
draumur sinn að geta sinnt lands-
byggðinni betur þegar komi að sýn-
ingarhaldi. „Markmið okkar er að
mæta ekki bara til að sýna hérlendis
heldur nýta sýningarferðina til að
bjóða upp á vinnusmiðjur með nem-
endum á staðnum, tengjast betur
landsbyggðinni, kynna Íd, og hvað
það er sem við stöndum fyrir,“ segir
Erna og tekur fram að hún vonist til
að geta farið í aðra landsfjórðunga á
næstu árum. Þess má geta að Dag-
draumar verða í framhaldinu sýndir
í Borgarleikhúsinu í desember.
„Samhliða auknu sýningarhaldi
innanlands ætlum við að efla
fræðslustarf okkar fyrir börn og
unglinga,“ segir Erna og vísar þar til
þess að Black Marrow, sem fer í
almennar sýningar frá og með 22.
febrúar, verði einnig skólasýning
fyrir 9. bekkinga í grunnskólum
Reykjavíkur. „Í fyrra hófum við
samstarf við framhaldsdeildir
þriggja dansskóla sem heldur áfram
í ár,“ segir Erna og vísar þar til List-
dansskóla Íslands, JSB og Klassíska
listdansskólans. „Í ár munum við
m.a. nota efni úr Hvíla sprungur til
að vinna með dansnemum,“ segir
Erna og tekur fram að samstarfið
við dansskólana hafi verið í þróun
mörg síðustu árin. „Okkur hafði
lengi langað að gera þetta samstarf
að veruleika, en við erum afar fálið-
uð á skrifstofunni sem þýðir að við
þurfum að setja á okkur marga hatta
og getum ekki gert allt í einu.“
Klúbbastemning og frjósemi
Fyrsta frumsýning starfsársins á
nýju verki verður á Geigengeist um
miðjan nóvember. „Geigengeist er
nýtt verk eftir teknófiðludúóið
Geigen,“ segir Erna og tekur fram
að verkið sé unnið í samstarfi við
Tönju Huld Levý búningahönnuð,
Sean Patrick O’Brien listamann og
Íslenska dansflokkinn, en Íd hafi
markað sér þá stefnu að vera með
eitt til tvö samstarfsverkefni á ári.
„Geigengeist er sjónræn upplifunar-
veisla, þar sem dans, tónlist, hönnun
og myndlist koma saman undir for-
merkjum dansklúbbs. Klúbburinn er
geimræn fiðluveröld sem áhorfand-
inn gengur inn í, ferðast um og tekur
þátt í,“ segir Erna og tekur fram að
klúbbastemningin birtist m.a. í því
að áhorfendur verða ekki í sætum á
sýningum.
Fyrsta frumsýning á nýju ári er
Hringrás eftir Þyri Huld sem frum-
sýnd verður í febrúar. „Verkið sam-
tvinnar myndlist, tónlist og dans
sem mynda heildræna hringrás. Öll
erum við í sömu hringrásinni,
plöntur, dýr og við mannfólkið,“ seg-
ir Erna og tekur fram að Hringrás
sé dansverk til heiðurs kvenlíkam-
anum. „Við lifum öll í hringrás sem
einkennist af fæðingu, þroska,
blómstrun, hrörnun og loks dauða,“
segir Erna og bendir á að það sé
magnað að fylgjast með þeim breyt-
ingum sem verða á líkömum kvenna
þegar þær ganga með og eignast
barn. „Hringrás á uppruna sinn í
örverki sem Þyri Huld vann fyrir Íd
í samstarfi við Urði Hákonardóttur
tónlistarkonu og Sögu Sigurðar-
dóttur ljósmyndara í Covid, en þá
dansaði hún fyrir framan myndavél
með óléttubumbuna út í loftið,“ segir
Erna og bendir á að mikil frjósemi
hafi einkennt dansara og danshöf-
unda Íd síðustu ár „Sem betur fer
hafa tímarnir breyst frá því sem var
þegar ég var yngri. Nú er ekki leng-
ur litið svo á að ferill dansara sé bú-
inn um leið og hún eignast barn. Það
er svo fallegt að í dag erum við dug-
legri að heiðra líkamann í allri sinni
mynd og þær breytingar sem hann
gengur í gegnum,“ segir Erna.
Sýningar hefjast á ný á Black
Marrow eftir Ernu og Damien Jalet
í febrúar með tónsmíði Bens Frost,
en bæði er um almennar sýningar að
ræða og skólasýningar. „Við hlökk-
um til að fá nemendur hingað í hús,“
segir Erna og bendir á að sýningin
bjóði upp á gott umræðuefni og
sterk sjónræn áhrif. „Sýningin hef-
ur fengið að þróast svo fallega með
dönsurunum, því hver dansari sem
tekur við af öðrum dansara fær allt-
af tækifæri til að þróa efnið og gera
það að sínu. Þetta er verk sem end-
urspeglar samband okkar við jörð-
ina,“ segir Erna og tekur fram að
frá því þau Jalet sömdu sýninguna
2009 hafi fókusinn á náttúruvernd
og meðferð manneskjunnar á jörð-
inni aukist til muna.
Dansandi karnivalstemning
Íslenski dansflokkurinn var stofn-
aður 1. maí 1973 en varð sjálfstæð
opinber stofnun árið 1992. „Það var
svo 2020 sem samþykkt voru ný
sviðslistalög sem setti flokkinn á
sama stall og systurstofnanir hans,
Þjóðleikhús og Sinfónínuhljómsveit
Íslands. Flokkurinn fagnar því 50
ára afmæli sínu á næsta ári og verð-
ur afmælishátíðin haldin laugardag-
inn 29. apríl. Við stefnum að því að
hafa hér opið hús og bjóða upp á við-
burði í ýmsum rýmum, enda ætlum
við að leggja undir okkur allt
Borgarleikhúsið með dansandi
karnivalstemningu. Þetta verður
afmælisritúal sem opnar þá veislu
sem við viljum bjóða upp á á
afmælisárinu,“ segir Erna og tekur
fram að stórafmæli gefi tækifæri til
að horfa samtímis fram og aftur.
„Okkur langar að heiðra söguna
með því að horfa til upprunans og
skoða hvernig flokkurinn varð til á
sínum tíma,“ segir Erna og tekur
fram að einnig væri áhugavert að
skoða hlutverk og stöðu dansins í
samhengi við aðrar listir í landinu.
„Og líka lífinu. Sem dansari að
atvinnu finnst mér allt vera dans, en
það deila kannski ekki allir þeirri
upplifun,“ segir Erna kímin.
Aðspurð segir Erna að besta
afmælisgjöfin sem Íd gæti fengið í
tilefni tímamótanna væri sitt eigið
heimili. „Það er löngu kominn tími
til að dansinn fái sitt eigið húsnæði
hérlendis,“ segir Erna og bendir á
að hún sæi fyrir sér að slíkt húsnæði
gæti þjónað bæði Íd og sjálfstæðu
senunni. „Slíkt húsnæði myndi opna
svo marga möguleika,“ segir Erna
og bendir á að danssenan hérlendis
fari sístækkandi. „Það er svo gaman
að það eru sífellt fleiri að uppgötva
dansinn og möguleika hans. Í mín-
um huga er öll listsköpun, og dans-
inn ekki síst, mikilvæg til að efla fólk
í samfélaginu og rækta bæði efnið
og andann,“ segir Erna og tekur
fram að vissulega sé mikill munur á
því að dansa fyrir sig eða fyrir
áhorfendur. „Dansinn er, líkt og
tónlistin, tengdur frumorkunni
sterkum böndum. Þarna birtast
ýmsar heimspekilegar og vísinda-
legar tengingar og svo eru tengslin
við ritúalið líka sterk.“
Síðasta frumsýning ársins verður
í maí á verki sem ísraelski danshöf-
undurinn Tom Weinberger semur.
„Hann er rísandi stjarna sem er að
semja fyrir öll stóru kompaní
heims,“ segir Erna sem kynntist
Weinberger í verkefni þar sem þau
voru bæði að dansa. „Draumur okk-
ar er að í tengslum við sýninguna
getum við boðið upp á vinnusmiðjur
sem væru opnar fyrir dansara úr
sjálfstæðu senunni. Það er mikið af
efnilegum dönsurum að útskrifast,
en sorglega fá tækifæri, sem okkur
langar að breyta,“ segir Erna og
bendir á að í Noregi hafi dans-
flokkur Bærum samið við bæinn um
að geta árlega boðið hópi nýútskrif-
aðra dansara samning um verkefni.
„Það væri frábært ef við gætum far-
ið svipaða leið hérlendis og gefið
fleirum tækifæri,“ segir Erna von-
góð að lokum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fræðslustarf „Samhliða auknu sýningarhaldi innanlands ætlum við að efla fræðslustarf okkar fyrir börn og
unglinga,“ segir Erna Ómarsdóttir, listdansstjóri Íslenska dansflokksins, um komandi starfsár flokksins.
Hringrás náttúrunnar leiðarstef
- Íslenski dansflokkurinn fagnar 50 ára afmæli næsta vor - Á starfsárinu verður skoðað hvernig
stofnun eldist og þroskast í samanburði við manneskjuna og líkamann - Þrjú ný verk frumflutt
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
MEÐ SJÁLFBÆRNI
AÐ LEIÐARLJÓSI