Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 45
Vilt þú hafa áhrif
á framtíð orkumála?
Orkstofnun leitar að færum sérfræðingum í leiðandi störf sem gefa tækifæri til að móta umgjörð orkumála
í takt við kröfur samtímans þar sem áhersla er lögð á orkuskipti, nýsköpun og loftslagsmál
os.is
Fjármála og rekstarstjóri
Leitað er að öflugum stjórnanda með mikla færni á sviði fjármála og
rekstrar til að leiða uppbyggingu og þróun á rekstri og innri þjón-
ustu. Starfið krefst reynslu af mannaforráðum, færni í rekstrar og
áætlanagerð, sem og af árangursríku umbótastarfi. Um er að ræða
krefjandi uppbyggingarstarf hjá stofnun sem gegnir lykilhlutverki í
sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda, orkuskiptum og innleiðingu nýrrar
orkutækni.
Nánari upplýsingar um ábyrgð, hæfniskröfur, umsóknafrest
og fleira má finna inn á vefsíðu Orkustofnunar:
os.is/Orkustofnun/laus-storf/
Sérfræðingur í beinni nýtingu
jarðhita og hitaveitum
Leitað er að sérfræðingi með brennandi áhuga á hitaveitum
og lífsgæðum landsmanna er tengjast beinni nýtingu jarðhita.
Viðkomandi þarf að hafa góða innsýn í rekstur hitaveitna og sjálf-
bæra jarðhitanýtingu, vera drífandi, geta miðlað upplýsingum um
málaflokkinn innan stofnunar og utan og sýnt frumkvæði er varðar
tækifæri til úrbóta. Starfið felur í sér mikilvægt hlutverk í erlendum
samskiptum og verkefnum á sviði stjórnsýslu og fræðslu um hitaveitur
og jarðhita. Spennandi tækifæri til að hafa áhrif á orkuskipti og
loftslagsmál í Evrópu og miðla íslensku hugviti í þeim efnum.
Lögfræðingur á sviði orku og auðlindamála
Leitað er að lögfræðingi með brennandi áhuga á sviði umhverfis-,
auðlinda- og orkumála og innsýn í stjórnsýslu til að hafa yfirsýn
yfir lagalega umgjörð stofnunarinnar og nýta þekkingu sína til rýni,
umsagna og álitsgerða. Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á
lögfræðilega kunnáttu og færni.
Umsjónarmaður niðurgreiðslna og styrkja
(!1 &-"%#*0)%',,.* +*2&$/&,.*
Leitað er að sérfræðingi til að halda utan um niðurgreiðslur á raf-
hitun og verkefni sem lúta að fjölbreyttum leiðum til að draga úr
rafhitunarþörf til húshitunar. Viðkomandi þarf að hafa brennandi
áhuga á málaflokknum, vera drífandi, geta miðlað upplýsingum innan
stofnunar sem og utan og sýna frumkvæði er varðar tækifæri til
úrbóta innan málaflokksins. Starfið krefst góðra samskiptahæfileika
og áhuga á að koma með virkum hætti að verkefnum sem snúa að
möguleikum til umhverfisvænnar orkuöflunar og raforkuframleiðslu
sem dregið geta úr raforkuþörf til hitunar.
Orkustofnun starfar í þágu samfélagsins og í takt við orkustefnu
Íslands. Hlutverk hennar er að skapa skýra umgjörð um orkumál,
stuðla að nýsköpun og upplýstri umræðu og að veita stjórnvöldum
faglega ráðgjöf í þágu almannaheilla. Stefna Orkustofnunar er að
byggja upp þekkingu á fagsviðum stofnunarinnar svo sem á sviðum
orkuvinnslu, orkunýtingar og loftslagsmála, stunda skilvirka og
gagnsæja stjórnsýslu, sem og sjálfstætt vandað eftirlit.
Orkustofnun leggur áherslu á að vera framsýn, traust og skilvirk
stofnun, með sem jafnast kynjahlutfall.