Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 42

Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 21. september nk. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is. Hafnarstjóri Faxaflóahafnir leita að leiðtoga með gott orðspor, getu til að takast á við margvíslegar aðstæður og brennandi áhuga á verkefnum Faxaflóahafna. Hafnarstjóri er framkvæmdastjóri Faxaflóahafna, ber ábyrgð á daglegum rekstri og leiðir starfsemi Faxaflóahafna í samráði við stjórn. Hlutverk hans er að stuðla að stöðugum umbótum í takt við framsækna og nútímalega hafnarþjónustu. Ábyrgðarsvið hafnarstjóra • Daglegur rekstur félagsins í umboði hafnarstjórnar • Yfirmaður allra starfsmanna Faxaflóahafna • Ábyrgð á að fjárhags- og fjárfestingaáætlun sé fylgt og ábyrgð á fjárreiðum félagsins • Samskipti og upplýsingagjöf til hafnarstjórnar • Samskipti við eigendur, sveitarstjórnir, ríkisvaldið og atvinnulífið • Vinnur störf sín að öðru leyti í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerða og samþykktir hafnarstjórnar Hæfniskröfur • Þekking á hafnarmálum, opinberri stjórnsýslu, skipulags- og umhverfismálum æskileg • Víðtæk reynsla af stjórnun og rekstri, þar með talið breytingastjórnun • Reynsla af stjórnun viðamikilla verkefna og áætlana • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri • Leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til samstarfs og samvinnu • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum • Hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti á íslensku og ensku • Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur hagvangur.is Faxaflóahafnir sf. eru sameignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar sem er stærsti eigandinn, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Faxaflóahafnir sf. eiga og reka fjórar hafnir, Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Hjá fyrirtækinu vinna um 70 manns en Faxaflóahafnir sf. annast almenna hafnarþjónustu við skip og eiga m.a. fjóra dráttarbáta. Allar nánari upplýsingar má finna á faxafloahafnir.is Sótt er um starfið á hagvangur.is Verkefnastjóri til starfa í Nuuk Verkefnastjórnun og framleiðslustjórnun í samvinnu við yfirstjórn verksins Samskipti við verkstjóra og undirverktaka Útfærsla á tæknilegum lausnum Áætlanagerð og eftirfylgni Helstu verkefni: Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun í Verk- eða tæknifræði. Mikil reynsla af stjórnun á framkvæmdum í byggingariðnaði nauðsynleg. Góðir samskiptahæfileikar og lausnarmiðað hugarfar. Ensk og Íslensk tungumálakunnátta nauðsynleg, kostur að hafa góð tök á pólsku og/eða dönsku. Mjög góð tölvufærni. Frumkvæði, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð. Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Ístaks www.istak.is Upplýsingar um starfið veitir Bjarki Þór Iversen, mannauðsstóri Ístaks bjarki@istak.is Hjá Ístaki starfa rúmlega 500 manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis. Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag. Ístak byggir um þessar mundir stóra skólabyggingu í hjarta höfuðstaðar Grænlands, Nuuk, sem mun setja svip sinn á bæinn um ókomna tíð. Ístak leitar að hæfileikaríku fólki til að taka þátt í að leiða framkvæmdavinnuna og leysa tæknileg mál á verkstað. Spennandi tækifæri fyrir þau sem langar til að vinna á norðurslóðum og starfa við stórar framkvæmdir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.