Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 31
Léttari og
ferskari áferð
Kinnalitur getur gert ótrúlegustu hluti ef hann er
rétt settur á andlitið og á réttum tímapunkti í förð-
uninni. Lengi vel var reglan sú að setja kinnalit und-
ir kinnbeinin en nú er komin ný tískubylgja; að setja
kinnalitinn ofar og draga hann meira upp á kinn-
beinin.
Ljósmynd/Chanel
Ferskur Kinnaliturinn
gefur svo létta áferð að
maður finnur ekki fyrir
honum á húðinni.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Með þessari aðferð er
hægt að lyfta andlitinu
upp og verður maður mun
frísklegri og hressilegri fyrir
vikið. Fullkominn kinnalitur í
þetta verkefni er fljótandi
kinnaliturinn Les Beiges Wat-
er-Fresh Blush frá Chanel.
Fljótandi kinnalitir hafa þann
kost að ljá andlitinu meiri ljóma
því þeir eru ekki þurrir eins og
púðurkinnalitir.
Formúlan í Les Beiges er ein-
stök, en hún er 75% vatn og sér
maður litarefnin þegar maður
sprautar honum út. Formúlan
var þróuð með Micro-
Fluid-tækni og veitir húð-
inni mikinn raka.
Blanda, blanda,
blanda
Best er að bera
kinnalitinn á með
bursta, helst með
miðlungslöngum
hárum og ekki of
þéttum. Þannig
næst einstaklega fal-
leg áferð. Ekki þarf að
nota mikið af honum, einn dropi
dugar í báðar kinnar og því ætti
varan að nýtast lengi. Ef eitthvað
fer úrskeiðis er gott að jafna það
út með hreinum svampi og dúmpa
svo aftur létt yfir með
afgangnum úr burstanum.
Mundu að það þarf að nudda
hann svolítið til að fá rétta áferð
og til að virkja litarefnin í formúl-
unni og því er mikilvægt að
blanda, blanda og blanda eins og
Heiðdís Rós Reynisdóttir stjörnu-
förðunarfræðingur segir.
Til að gera kinnalitinn enn
meira áberandi er sniðugt að fara
tvær umferðir. Setja fyrstu um-
ferð á áður en þú setur farða. Síð-
an seturðu léttan farða yfir, til
dæmis Miracle Pure frá Max Fac-
tor. Eftir það setur þú umferð
númer tvö og þá er kinnaliturinn
sterkari án þess að þú lítir út eins
og trúður í framan.
Einstök For-
múlan er falleg
en óvenjuleg.
Ljósmynd/Chanel
Nýtt Nú er í tísku að draga kinnalitinn upp á kinnbeinið en sú aðferð gefur andlitinu lyftingu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
Ve
13
Við to rét
Pe
21 reynsla
Við fe
pa 533 13
•Gefur samstundis aukinn ljóma
•Örvar kollagenframleiðslu
HOLLY
WOOOD
GLOW
Þéttir slappa húð
á andliti og hálsi
20%
afsláttur af
HOLLYWOOD
GLOW
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ