Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra ur br e Róm Ítalía 595 1000 www.heimsferdir.is At h. að ve rð et rb re 6. október í 4 nætur 129.850 Flug & hótel frá 4nætur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Á bara að bíða eftir næsta slysi?“ - Formaður Leiðsagnar gáttaður á ástandinu í Reynisfjöru - „Okkur ber skylda til að gera eitthvað“ Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Reynisfjörumálið er náttúrlega eitt af þessum stóru málum sem mér heyrist að allir séu sammála um að þurfi að laga,“ segir Friðrik Rafns- son, formaður Leiðsagnar, félags leiðsögumanna, í samtali við Morg- unblaðið. Umræðuefnið er pistill hans á Facebook 1. september þar sem hann segir frá ferð um Reynisfjöru daginn áður í hífandi roki með svo- felldum orðum: „Þurfti að smala fólki úr fjörunni. Og það sem verra er: viðvörunarskiltum hefur fækkað frá síðasta dauðaslysi. Fyrirgefið tuðið, en mér og mörgum öðrum leið- sögumönnum blöskrar getu- og að- gerðaleysi yfirvalda í þessu máli, eins og reyndar fleirum sem varða öryggi og gæðamál í ferðaþjónust- unni.“ Við Morgun- blaðið segir Frið- rik að skipuð hafi verið nefnd um öryggismál á veg- um hins opinbera en einnig hafi fé- lag hans, Leið- sögn, ályktað um málefni Reynis- fjöru. Þar hafa orðið mörg bana- slys þar sem erlendir gestir eiga í hlut sem ekki þekkja duttlunga og ógnarkrafta íslenskrar náttúru. Safna fyrir björgunarbát „Við höfum fundað með Lands- björg, almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra og þessum helstu aðilum. Allir eru sammála um að þetta sé hættulegur staður,“ heldur Friðrik áfram og er spurður út í leiðir til úr- bóta. „Því hefur verið velt upp að hafa fána þarna, rauða eða græna eftir því hvort fólki er óhætt að fara niður í fjöruna eða ekki. Nú er verið að safna fyrir björgunarbát sem á að vera mjög snöggur á staðinn og við leiðsögumenn tökum þátt í því,“ seg- ir Friðrik og nefnir enn fremur hug- myndir um að setja upp skilti með krossum við fjöruna sem sýni hve margir hafi látist þar og hvenær. Óboðlegt getu- og andvaraleysi „Mér kom mjög á óvart núna þeg- ar ég var þarna í síðustu viku, hafði þá ekki komið þangað í nokkrar vik- ur, að ekkert hefur gerst. Ég sá ekki betur en að skilti hefðu verið fjar- lægð. Kannski er verið að laga þau, ég veit það ekki. Þarna var brjálað veður og haugasjór. Ég þurfti að smala fólki burt. Þarna var maður að leika sér í flæðarmálinu með átta eða níu ára gömlum syni sínum og ég þurfti að reka þá burt,“ heldur leið- sögumaðurinn áfram. Hann segir kerfið í sjálfu sér standa sig vel, nefndarvinna sé í gangi og svo framvegis, „en það ger- ist ekki neitt“, segir Friðrik. En er þetta ekki allt spurning um peninga eins og svo víða? „Jú, það er það. Við myndum helst vilja hafa strandverði þarna, alla vega yfir sumarið. Það kostar auðvit- að peninga en að setja upp þetta skilti með krossunum kostar nú ekki mikið og það er vel hægt að grípa til aðgerða sem kosta ekki mikið. En getu- og andvaraleysi þeirra sem stjórna þessum málum er algjörlega óboðlegt. Það var alveg svakalegt að koma á þennan annars yndislega stað og fólk var bara að skemmta sér niðri í fjörunni,“ segir Friðrik með áherslu. „Okkur ber skylda til að gera eitt- hvað í þessum málum. Á bara að bíða eftir næsta slysi þangað til eitthvað verður gert eða skipa aðra nefnd?“ spyr Friðrik. „Viðbrögðin eru ótrú- lega sein og léleg við vandamáli sem allir eru sammála um að sé stóral- varlegt,“ segir hann enn fremur. Spurður út í léttari málefni kveður hann leiðsögumenn ekki kvarta und- an verkefnaskorti eftir faraldurinn. Fimm til tíu símtöl á dag „Nú eru allir sem vettlingi geta valdið að vinna og búnir að vera á fullu síðan í vor. Því miður voru margir sem hættu í Covid og bíl- stjórar líka svo ástandið hefur verið erfitt í sumar. Mörg okkar fá fimm til tíu símtöl á dag um hvort við get- um tekið ferðir og auðvitað fögnum við þessu en því miður fengu margir sér aðra vinnu og hika við að koma til baka, til dæmis vegna ótryggs ráðn- ingarsambands,“ segir Friðrik Rafnsson, formaður Leiðsagnar, að lokum. Friðrik Rafnsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Arna mjólkurvinnsla í Bolungarvík er að hefja framleiðslu á jógúrt sem eingöngu er búin til úr höfrum. Stefnt er að því að hafrajógúrtin komi á markað í lok mánaðarins og verður hún kynnt undir vörumerkinu Vera Örnudóttir. Arna er með fleiri járn í eldinum því á sama tíma hefst útflutningur á skyri til Frakklands. Markaður fyrir hafravörur, mjólk- urlausar „mjólkurvörur“, eins og stundum er sagt, vex stöðugt. Mikið er flutt af þessum vörum til landsins. Hálfdán Óskarsson, framkvæmda- stjóri Örnu, segir að fyrirtækið hafi lagt mikið í þróun á hafravörum og unnið að því verkefni í eitt og hálft ár í samvinnu við alþjóðlega pökkunar- fyrirtækið Tetra Pak. Með því hafi verið búin til ný tækni í framleiðslu á þessum vörum í heiminum. Við fram- leiðsluna eru notaðar nýjar vélar frá Tetra Pak. Í upphafi verður framleidd vegan hafrajógúrt í fjórum bragðtegundum og fimm tegundir af hafraskyri. Báð- ar þessar vörur eru eingöngu gerðar úr höfrum og engin bindiefni notuð. Hálfdán segir að áferð varanna sé svipuð og hefðbundinna hliðstæðra mjólkurafurða. Segir hann að með þessari þróun- arvinnu hafi áherslur breyst. Fram- leiðslan færist í auknum mæli inn á þessa línu. Skyr til Frakklands Arna hefur hingað til sérhæft sig í framleiðslu á mjólkurvörum án lakt- ósa. Nú hafa skapast aðstæður til að auka við framleiðsluna með útflutn- ingi. Gerður hefur verið samningur við verslanakeðju sem er með um 300 verslanir í Frakklandi um sölu á ís- lensku skyri í 150 gramma pappadós- um. Fyrsta sendingin fer út í lok mánaðarins. Hálfdán segir að fyrir- tækið hafi verið að færa sig yfir í pappaumbúðir og hafi tekist að minnka plastnotkun um 90%. Arna mjólkurvinnsla hefur nægt pláss í húsnæði sínu við höfnina í Bol- ungarvík til að útvíkka starfsemina. Starfsemin er í húsi þar sem áður var stærsti vinnustaður Bolungarvíkur, Hraðfrystihús Einars Guðfinnsson- ar. Vera Örnudóttir kynnir sig - Arna mjólkurvinnsla hefur framleiðslu á jógúrt og skyri úr höfrum - Útflutningur á skyri er að hefjast til Frakklands Úr höfrum Hluti af fjölskyldu Veru Örnudóttur stillir sér upp á mynd. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, sótti í gær hátíðarstund í listasmiðjunni Líf og list að Forsæti í Flóahreppi. Viðburðurinn var haldinn til heiðurs Sigríði Krist- jánsdóttur, tréskurðarmeistara og listakonu, sem oft er kölluð Sigga á Grund, en hann var haldinn í sýn- ingarsal í gamla fjósinu að Forsæti. „Ævistarf Sigríðar Kristjáns- dóttur, Siggu á Grund, er glæsilegt á alla lund, útskurður í tré sem ber fagmennsku hennar og kunnáttu öflugt vitni. Og umgjörðin í For- sæti er frábær, gamalt fjós sem ábúendurnir þar, hjónin Bergþóra Guðbergsdóttir og Ólafur Sig- urjónsson, breyttu í fyrirtakssýn- ingarsal,“ segir Guðni um heim- sóknina í dag, og var hann mjög ánægður. „Svo var ég leystur út með góðri gjöf, spónum sem Sigga hafði gert af sínum hagleik, merktum mér og Elizu. Maður segir eins og í göml- um sögum, mikils met ég gjafir þínar en meir þó vináttuna,“ segir forsetinn að lokum. sgs@mbl.is Forsetinn leiddur til Forsætis Ljósmynd/ forseti.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.