Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
Hörkupenninn Gunnar Rögn-
valdsson, sem er ekki að
óþörfu sammála síðasta ræðu-
manni, segir m.a. þetta:
- - -
Það er grát-
broslegt að
horfa upp á ESB-
Evrópu þessa dag-
ana, mánuðina og
árin. Árum saman
hafa vindmyllu-
valdamenn þar tíst
um töframátt hins
mjúka valds (e. soft power) og þul-
ið þær kennisetningar upp yfir
veröldinni að stríð séu úrelt fyr-
irbæri og að aðeins aumingjahátt-
ur af þriðju gráðu og almennt
tannleysi geti komið í veg fyrir
þau.
- - -
Skilningurinn á að mátturinn,
valdið og ríkidæmið flæði af
sverðinu er horfinn – og nú álitinn
eins konar zappþústapasta nýrra
sítístandi grænsápumanna alls-
herjar-vinstrisins, en sem væru
ekki til ef máttur sverðsins hefði
ekki verndað og varðveitt forfeður
þeirra, dýrðina, söfnuðinn, ættina
og þjóðirnar, Og árum saman hafa
sömu sérfróðu vindbarningsmenn
(hámenntaðir imbahalar) frætt
heiminn um hversu „lítið, smátt og
vesælt“ rússneska hagkerfið sé.
- - -
En núna sitja þessir sömu sér-
fróðu háskólamenn valda-
stéttarinnar skjálfandi og vind-
myllubarðir í valdastólum sínum,
íklæddir rúlluskautum og snjó-
þrúgum til að geta forðað sér sem
hraðast.
- - -
Þeir reyndu allt hvað þeir gátu
að halda á sér hita með rúss-
nesku gasi til að geta tíst út til um-
heimsins hversu vondir Rússar
værufyrir að voga sér að neita að
samþykkja sökklana fyrir NATO
inni í sjálfri forstofu Rússlands.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Vindmylluvalda-
menn skjálfa
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Rekstur Faxaflóahafna var með
miklum blóma fyrri hluta ársins.
Þetta kemur fram í greinargerð B-
hluta fyrirtækja við framlagningu
árshlutareiknings borgarinnar.
Fyrstu sex mánuði ársins voru
rekstrartekjur samtals 2.346 millj-
ónir og voru 334 m.kr. yfir áætlun. Í
fyrra voru tekjur 1.853 m.kr. fyrir
sama tímabil. Tekjur af öllum liðum
rekstrarins jukust frá sama tíma í
fyrra. Fjárhagsáætlun gerði ekki
ráð fyrir þeirri fjölgun skemmti-
ferðaskipa í ár sem raun varð á. Var-
lega var farið í að meta aukningu á
milli áranna. Vörugjöld voru aðeins
undir áætlun en aflagjöld yfir áætl-
un, sem að stærstum hluta orsakast
af meira aflaverðmæti. Skipagjöld
og hafnarþjónusta skiluðu saman-
lagt 715 m.kr. í tekjur, sem var um
30% heildartekna. Gert var ráð fyrir
492 m.kr. tekjum og skiluðu þessir
liðir því 223 m.kr. umfram áætlun. Á
tímabilinu jókst umferð skipa frá
fyrra ári og að auki var tonnastærð
þeirra skipa sem komu til landsins
meiri. Þá voru færslur innan hafnar
tíðari en undanfarin ár.
Hagnaður fyrstu sex mánuði árs-
ins 2022 nam 2.554 milljónum, sem
má að mestu leiti rekja til sölu á
Hafnarhúsinu en það var afhent
Reykjavíkurborg 1. júlí. sisi@mbl.is
Blómlegur rekstur Faxaflóahafna
- Aukin umferð og stærri skip en áður
- Tekjur af öllum liðum hafa hækkað
Morgunblaðið/sisi
Sundahöfn Hefur fært Faxaflóa-
höfnum mestar tekjur á árinu.
Breytingar á lífeyrisréttindum sam-
eignardeildar Lífeyrissjóðs verzlun-
armanna (live.is), sem áttu að taka
gildi í þessum mánuði, frestast.
Ástæðan er sú að breytingarnar eru
enn til skoðunar hjá stjórnvöldum,
að sögn lífeyrissjóðsins.
Breytingarnar varða aðlögun rétt-
indakerfis sameignardeildar að
hækkandi lífaldri sjóðfélaga, aukna
tryggingavernd sjóðfélaga og auk-
inn sveigjanleika við lífeyristöku,
ásamt auknum réttindum vegna
góðrar stöðu sjóðsins.
Stjórn LIVE samþykkti breyting-
arnar 25. febrúar 2022 og ársfundur
sjóðsins samþykkti þær 29. mars
2022. Breytingarnar áttu að taka
gildi 1. september síðastliðinn. Þær
bíða staðfestingar fjármálaráðherra
og taka gildi fyrsta virka dag næsta
mánaðar eftir staðfestingu ráð-
herrans.
Kjör sjóðfélaga batna
Sem kunnugt er jók LIVE áunnin
lífeyrisréttindi í sameignardeild um
10% í nóvember 2021 og miðaðist
hækkunin við áramótin þar á undan.
Hún var gerð vegna góðrar ávöxt-
unar eigna sjóðsins. Samkvæmt
frétt lífeyrissjóðsins frá því í vor var
gert ráð fyrir því að auka réttindi
sjóðfélaga enn frekar og að hækka
lífeyrisgreiðslur um liðlega 7%. Þá á
að hækka makalífeyri, bæta örorku-
tryggingu sjóðfélaga auk þess sem
lífeyrir verður endurreiknaður oftar
en áður hjá þeim sem eru byrjaðir að
taka lífeyri og eru enn í launaðri
vinnu.
Sjóðfélagar verða upplýstir um
framvindu mála á vef lífeyrissjóðsins
auk þess sem fylgjast má með Face-
book síðu hans. gudni@mbl.is.
Breytingar á lífeyr-
isréttindum frestast
- LIVE bíður þess
að ráðherra sam-
þykki breytingarnar
Morgunblaðið/Kristinn
Hækkun Lífeyrissjóður verzlunar-
manna vill hækka greiðslur.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Virka daga 10-17
Laugardaga 11-15
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022