Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 45

Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 45 Vilt þú hafa áhrif á framtíð orkumála? Orkstofnun leitar að færum sérfræðingum í leiðandi störf sem gefa tækifæri til að móta umgjörð orkumála í takt við kröfur samtímans þar sem áhersla er lögð á orkuskipti, nýsköpun og loftslagsmál os.is Fjármála og rekstarstjóri Leitað er að öflugum stjórnanda með mikla færni á sviði fjármála og rekstrar til að leiða uppbyggingu og þróun á rekstri og innri þjón- ustu. Starfið krefst reynslu af mannaforráðum, færni í rekstrar og áætlanagerð, sem og af árangursríku umbótastarfi. Um er að ræða krefjandi uppbyggingarstarf hjá stofnun sem gegnir lykilhlutverki í sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda, orkuskiptum og innleiðingu nýrrar orkutækni. Nánari upplýsingar um ábyrgð, hæfniskröfur, umsóknafrest og fleira má finna inn á vefsíðu Orkustofnunar: os.is/Orkustofnun/laus-storf/ Sérfræðingur í beinni nýtingu jarðhita og hitaveitum Leitað er að sérfræðingi með brennandi áhuga á hitaveitum og lífsgæðum landsmanna er tengjast beinni nýtingu jarðhita. Viðkomandi þarf að hafa góða innsýn í rekstur hitaveitna og sjálf- bæra jarðhitanýtingu, vera drífandi, geta miðlað upplýsingum um málaflokkinn innan stofnunar og utan og sýnt frumkvæði er varðar tækifæri til úrbóta. Starfið felur í sér mikilvægt hlutverk í erlendum samskiptum og verkefnum á sviði stjórnsýslu og fræðslu um hitaveitur og jarðhita. Spennandi tækifæri til að hafa áhrif á orkuskipti og loftslagsmál í Evrópu og miðla íslensku hugviti í þeim efnum. Lögfræðingur á sviði orku og auðlindamála Leitað er að lögfræðingi með brennandi áhuga á sviði umhverfis-, auðlinda- og orkumála og innsýn í stjórnsýslu til að hafa yfirsýn yfir lagalega umgjörð stofnunarinnar og nýta þekkingu sína til rýni, umsagna og álitsgerða. Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á lögfræðilega kunnáttu og færni. Umsjónarmaður niðurgreiðslna og styrkja (!1 &-"%#*0)%',,.* +*2&$/&,.* Leitað er að sérfræðingi til að halda utan um niðurgreiðslur á raf- hitun og verkefni sem lúta að fjölbreyttum leiðum til að draga úr rafhitunarþörf til húshitunar. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á málaflokknum, vera drífandi, geta miðlað upplýsingum innan stofnunar sem og utan og sýna frumkvæði er varðar tækifæri til úrbóta innan málaflokksins. Starfið krefst góðra samskiptahæfileika og áhuga á að koma með virkum hætti að verkefnum sem snúa að möguleikum til umhverfisvænnar orkuöflunar og raforkuframleiðslu sem dregið geta úr raforkuþörf til hitunar. Orkustofnun starfar í þágu samfélagsins og í takt við orkustefnu Íslands. Hlutverk hennar er að skapa skýra umgjörð um orkumál, stuðla að nýsköpun og upplýstri umræðu og að veita stjórnvöldum faglega ráðgjöf í þágu almannaheilla. Stefna Orkustofnunar er að byggja upp þekkingu á fagsviðum stofnunarinnar svo sem á sviðum orkuvinnslu, orkunýtingar og loftslagsmála, stunda skilvirka og gagnsæja stjórnsýslu, sem og sjálfstætt vandað eftirlit. Orkustofnun leggur áherslu á að vera framsýn, traust og skilvirk stofnun, með sem jafnast kynjahlutfall.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.