Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 29

Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 Við Hörpuna Það getur verið gott að skella sér í hjólatúr í haustblíðunni sem leikið hefur við íbúa höfuðborgarsvæðisins síðustu daga, líkt og þessi hjólreiðakappi sem hjólaði hjá Hörpu í gær. Eggert Kópavogur hefur gert vel en ætlar ætlar sér að gera enn betur í þjónustu fyrir bæjar- búa. Forsenda þess að unnt sé að tryggja innviði og veita sveigjanlega og framúrskarandi þjónustu er hins vegar ábyrgur rekstur. Því skiptir höfuðmáli að standa vörð um traustan rekstur og safna ekki skuldum. Meirihlutinn í Kópavogi legg- ur áherslu á að greiða niður skuldir og að velta þeim ekki yfir á herðar framtíðarkyn- slóða. Þrátt fyrir erfitt efna- hagsástand á fyrri hluta þessa árs voru skuldir Kópavogs- bæjar greiddar niður um ríf- lega tvö hundruð milljónir króna, umfram verðbætur. Veltufé frá rekstri var ríflega átta hundruð milljónir króna, en það er það fjármagn sem við höfum til að fjárfesta í inn- viðum og öðrum framtíðarverk- efnum. Við í Kópavogi ætlum okkur á sama tíma að lækka fast- eignaskatta á íbúa og fyrirtæki til að mæta gríðarlegri hækkun á fasteignaverði. Víti til varnaðar Skuldaaukning ár frá ári hamlar því að þjónusta við íbúana sé bætt og enn frekar að dregið sé úr álögum á þá. Nú þegar sveitarfélögin senda frá sér uppgjör eitt af öðru er áberandi hvernig Reykjavíkurborg sker sig sem fyrr úr. Höfuðborgin hefur safnað og lengt í skuldum þrátt fyrir að tekjur borgarsjóðs hafi sennilega aldrei verið meiri. Árlega hafa hlutdeildarfélög borgarinnar, hvort sem eru Félagsbústaðir eða Orkuveita Reykjavíkur, komið rekstrinum til bjargar. Orkuveita Reykja- víkur skilar borginni að jafnaði milljörðum króna í arðgreiðslur ár hvert, og í ár er tæpra sautján milljarða króna upp- færsla á eignum borgarinnar í Félagsbústöðum umfram áætl- un meginskýringin á því að borgin er ekki í margra millj- arða króna taprekstri. Slík uppfærsla í bókhaldinu mun hins vegar hvorki nýtast til að bæta þjónustu borg- arinnar eða auka fjárfesting- argetu hennar – nema vilji meirihlutans í Reykjavík standi til þess að selja félagslegt hús- næði ofan af skjólstæðingum sínum á markaðsvirði á kjör- tímabilinu. Ljóst er að borgin þarf að taka erfiðar ákvarðanir á næstu árum í rekstri og fjárfestingum. Kópavogur hefur um langt skeið verið farsælt sveitarfélag í fremstu röð, vel rekið og tekið skynsamlegar ákvarðanir í fjárfestingum sínum. Losaratök í fjármálum sveitarfélaga líkt og sést í höfuðborginni er slóð sem Kópavogsbúar vilja ekki feta. Fjárhagsstaða Kópavogs er sterk og þannig verður það áfram undir okkar stjórn. Eftir Ásdísi Kristjánsdóttur » Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand á fyrri hluta þessa árs voru skuldir Kópa- vogsbæjar greiddar niður um ríflega tvö hundruð milljónir króna. Ásdís Kristjánsdóttir Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. Engin lausatök Nýbirtur árshlutareikningur Reykjavíkurborgar ber fjár- hagnum ekki fagurt vitni. Tap af reglubundnum rekstri nam um 8,9 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og var afkoman rúmlega fjórum milljörðum lak- ari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Enn sígur á ógæfuhliðina í rekstri borgarinnar. Rjúkandi rúst? Á landsfundi Samfylkingar ár- ið 2018 sagði Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri fjárhagsstöðu borgarinnar hafa verið „rjúkandi rúst“ eftir stuttan valdatíma Sjálfstæðismanna sem lauk árið 2010. Sjálfstæðisflokkurinn tók við stjórnartaumum í borginni árið 2008, í aðdraganda banka- hruns. Við samfélaginu blöstu krefjandi aðstæður og allt benti til þess að rekstur borgarsjóðs yrði þungur. Yfir þennan tveggja ára tíma tókst þó að halda örugglega um fjár- hag borgarinnar. Skuldir borgarsjóðs jukust einungis um þrjá milljarða meðan tekjur dróg- ust saman um tæpan milljarð. Borgarsjóður var einn fárra sem skiluðu jákvæðri rekstrarniður- stöðu mitt í djúpri efnahagslægð. Hið sama verður ekki sagt um fjármálastjórn sitjandi borgarstjóra. Ekki einungis er borgin rekin með nærri níu milljarða króna tapi, held- ur standa skuldir samstæðunnar nú í 420 millj- örðum króna, en skuldir hækkuðu um 13 millj- arða fyrstu sex mánuði ársins. Það samsvarar rúmlega tveimur milljörðum króna mánaðar- lega eða 72 milljónum króna daglega. Það er því óhætt að segja að undir stjórn borgarstjóra stefni fjárhagur borgarinnar í rjúkandi rúst. Útgjaldavandi, ekki tekjuvandi Þeir tekjustofnar Reykjavíkur sem lög gera ráð fyrir eru nær full- nýttir. Borgin innheimtir hæsta lögleyfða útsvar, fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði eru ósamkeppn- ishæfir og krónutala fasteigna- gjalda fer hækkandi árlega. Tekju- tuskan er undin til fulls og rekstrarkostnaður eykst samhliða. Tekjur fyrir tímabilið voru nær 1,5 milljörðum yfir áætlun en rekstr- arútgjöld voru 3,4 milljörðum yfir fjárheimildum. Vandi borgarinnar er því ekki tekjuvandi – vandinn er mun fremur útgjaldavandi. Borgin er illa rekin. Burt með báknið Sjálfstæðisflokkurinn telur mik- ilvægt að rekstur borgarkerfisins verði endurskipulagður. Stjórnkerfi borgar- innar er orðið að bákni – minnka þarf yfirbygg- ingu, stöðva skuldasöfnun og sýna ráðdeild þeg- ar sýslað er með fjármuni borgarbúa. Vinda þarf ofan af hömlulausri hækkun fasteigna- skatta, draga úr samkeppnisrekstri og stefna að lækkun útsvars um leið og forsendur hafa skap- ast. Því miður verður þó ekki séð að þessar breyt- ingar verði að veruleika undir stjórn núverandi meirihluta. Enn er þörf á breytingum. Eftir Hildi Björnsdóttur » Tekjutuskan er undin til fulls og rekstrar- kostnaður eykst samhliða. Borg- in er illa rekin. Hildur Björnsdóttir Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Enn er þörf á breytingum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.