Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
Máltækni getur
breytt lífi þeirra sem
nauðsynlega þurfa á
henni að halda og
treystir fjöldi fólks á
tjáskipti í gegnum
stafræna tækni. Not-
endahópar máltækni
eru margir og við
verðum að finna leiðir
til að koma íslensku
inn í stafrænt um-
hverfi.
Almannarómur hefur rekið mið-
stöð um máltækni og hefur í gegn-
um samning við viðskipta- og
menningarráðuneytið unnið að þró-
un opinna kjarnalausna fyrir ís-
lenska tungu.
Hópur sérfræðinga á sviði mál-
tækni hefur unnið að verkefninu
núna í þrjú ár og hafa yfir tvö
hundruð afurðir litið dagsins ljós.
Allar opnar og aðgengilegar fyrir
áframhaldandi þróun, https://
almannaromur.is/maltaeknilausnir
Allan tímann var ljóst að ef ætl-
unarverkið ætti að takast þyrfti að
ná íslensku inn hjá helstu tæknifyr-
irtækjum í heiminum.
Því var undirbúin ferð
forseta Íslands og
sendinefndar til
Bandaríkjanna á fund
stórfyrirtækja í tækni-
iðnaði. Ferðin var far-
in í maí og snerist
samtalið á fundunum
um þá ósk okkar að
hægt væri að tala ís-
lensku við tölvur og
tæki og tryggja þannig
framtíð íslenskunnar í
stafrænum heimi.
Fundirnir gengu
vonum framar og voru fulltrúar
tæknifyrirtækjanna búin að kynna
sér lausnir fyrir íslensku og komu
vel undirbúin. Það kom fram í þess-
um samtölum að árangurinn sem
við höfum náð í smíði kjarnalausna
getur skilað okkur víðtæku sam-
starfi á sviði máltækni við Apple,
Microsoft, Amazon, OpenAi, Meta,
Stanford og MIT. Ástæðan fyrir því
að hægt er taka þessi skref er að
við erum komin með virkilega vel
gerða innviði eins og stórar mál-
heldir, talgervingu, talgreiningu,
þýðingarvélar, mállíkön og margt
fleira.
En það er stærri mynd sem við
sjáum sem þarna vorum fyrir hönd
máltækninnar. Framtíð tungumála í
stafrænum heimi er samofin þróun
gervigreindar. Við erum því að tala
um að íslenska og gervigreind
þurfa hvort á öðru að halda og
gervigreindarþróun á Íslandi tekur
stór stökk nú þegar innan mál-
tækniverkefna sem hér eru unnin.
Enn stærri stökk verða svo tekin í
samstarfi við alþjóðleg tæknifyrir-
tæki.
Við þurfum að halda áfram að
smíða, aðlaga, þróa og rækta sam-
starf um máltækni og gervigreind.
Það er ljóst að sú vinna skilar ár-
angri og íslenska á fullt erindi í
stafræna tækni.
Eftir Stefaníu
Guðrúnu
Halldórsdóttur
»Enn stærri stökk
verða svo tekin í
samstarfi við alþjóðleg
tæknifyrirtæki. Við
þurfum að halda áfram
að smíða, aðlaga, þróa
og rækta samstarf
Stefanía Guðrún
Halldórsdóttir
Höfundur er stjórnarformaður
Almannaróms.
Aukin lífsgæði með máltækni
LC02
Leður
Verð frá 339.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
HÆGINDASTÓLL
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
29.995.- / St. 36-41
Vnr. LLO21-232-45
29.995.- / St. 40,5-46
Vnr. LLO22-601-13
32.995.- / St. 40,5-46
Vnr. LLOJARON-BLK
24.995.- / St. 36,5-41
Vnr. LLO21-260-40
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
- NÝ SENDING
Geimsjónaukinn
James Webb er nú
kominn á sinn L2-
punkt á braut um sólu
í fylgd jarðar og vís-
indamenn bíða
spenntir eftir að fá
svör við spurningum
sínum um alheiminn
og upphaf hans og
endi. Svo vill til að á
næstum sama tíma er
atómhraðallinn LhC í
CERN endurræstur með nýju afli.
Stærstu spurningarnar varða til-
veru myrkra efna og afla. Myrkt
efni, „dark matter“, er nauðsynlegt
til að miðflóttaaflið rífi ekki vetrar-
brautina og aðrar stjörnuþokur í
sundur; sameiginlegt aðdráttarafl
þeirra dugar ekki til að halda þeim
saman, en þrátt fyrir mikla leit hef-
ur ekkert fundist sem skýrir þetta.
Hið síðara snýr að útþenslu al-
heimsins en vantar eitthvað sem
skýrir það að útþenslan virðist
herða á sér frekar en að sameigin-
legur aðdráttarkraftur dragi úr
henni.
Ég á ekki von á því að þessi leit
beri árangur vegna þess að hvorugt
þessara fyrirbrigða er til. Mín
skýring er sú að hér komi
skammtafræðin til sögunnar. Þegar
vísindamenn síðustu aldar mældu
hraða og stefnu rafeindar í loft-
tómu rúmi milli tveggja rafskauta,
„anóðu“ og „katóðu“, sáu þeir sér
til mikillar undrunar að eitthvað
truflaði leið rafeindanna. Skýringin
á þessu kom frá vísindamönnum
sem rannsökuðu það allra smæsta
sem finnst, „kvantar“. Þessar agnir
hoppa inn og út úr tilverunni sam-
stundis, þannig að þeirra verður
ekki vart annars. Ef rannsakendur
hefðu nægan tíma og nógu stór
lofttæmd tilraunaglös myndu þeir
sjá að nýtt efni hefði orðið til í glas-
inu, vegna þess að örsjaldan skeður
það að tvær agnir myndast á sama
stað og tíma. Önnur þessara agna
er úr venjulegu efni og eyðist ekki,
en hin er fyrirbrigði sem kallast
tachyons og er hin neikvæða speg-
ilmynd en frá okkar
sjónarmiði er hún
minna en ekkert og
þýtur burt með meira
en ljóshraða. Hún
dregst að sambærilegu
efni, sem er nákvæm-
lega jafn mikið og hið
jákvæða, og bæði þessi
efni hrinda hvort öðru
frá sér. Þar sem þessi
fráhrindikraftur verkar
sameiginlega á allt efni
í alheimi, bæði jákvætt
og neikvætt, dugar það
til að knýja áfram aukinn hraða á
útþenslunni, og um leið skapar
þetta þrýsting utan frá á vetr-
arbrautina og aðrar slíkar þannig
að þær haldast saman. Heildar-
útkoman úr þessu dæmi er að allt
efni samanlagt í alheimi er núll,
þ.e. ekkert, og alheimurinn þenst
út um alla eilífð með auknum
hraða.
Ég hef alltaf verið þeirrar skoð-
unar að til sé eitthvað sem er utan
og ofar efni, rúmi, orku og tíma.
Eitthvað sem við kollum Guð, anda
eða sál. Ef svo er þá er það algjör-
lega óbundið af lögmálum náttúr-
unnar og gæti því ferðast með
ótakmörkuðum hraða í ótakmark-
aðan tíma og þannig kannski komið
að endamörkum alheimsins. En ef
andinn heldur lengra áfram blasir
bara við auð og tóm. Honum myndi
sjálfsagt þykja þetta frekar ein-
manalegt og vilja snúa aftur til síns
heima, en kemst þá að raun um að
það er hvergi að finna. Sem sé ekki
einu sinni Guð almáttugur getur
fundið það sem ekkert er.
Núllsummual-
heimurinn – „Zero
sum universe“
Eftir Hermann
Ólason
Hermann
Ólason
»Ég hef alltaf verið
þeirrar skoðunar að
til sé eitthvað sem er ut-
an og ofar efni, rúmi,
orku og tíma. Eitthvað
sem við köllum Guð,
anda eða sál.
Höfundur er rithöfundur.
hemihult@gmail.com
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?