Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
50% afsláttur
af allri útsöluvöru
Útsala
* Undirföt
* Sundföt
* Náttföt
* Náttkjólar
* Sloppar
Vefverslun
selena.is
sem er lengra komið og hefur
jafnvel aðra styrkleika,“ segir El-
ísabet og minnir á að það sé í lagi
að gera mistök þegar maður eltir
drauminn.
K100 fékk hana til að varpa
ljósi á fyrirmyndir sínar í tónlist,
sem koma úr ýmsum áttum.
„Mér finnst ógeðslega erfitt að
velja á milli, það eru svo margir
sem ég lít upp til, en kannski þau
helstu sem ég hef hlustað mikið á
síðastliðin ár eru Bon Iver, Harry
Styles, The Head and the Heart,
Coldplay og Jacob Collier,“ segir
Elísabet sem bætir þó eldri bróð-
ur sínum, bassaleikaranum Hjálm-
ari Karli, á listann, enda hafi hann
verið sér mikil fyrirmynd.
streymisveitum eins og Spotify.
„Ég kynntist ótrúlega mörgu
ólíku og listrænu fólki með
ástríðu fyrir lífinu og listinni, sem
hvatti mig mjög til að brjótast út
úr skelinni og hugarfari litla Ís-
lendingsins innra með mér. Ég
fékk víðari sýn á lífið sem veitti
mér mikinn innblástur til að
leggja mitt af mörkum, bæta við
dropum í hafið sem tónlistarheim-
urinn er svo sannarlega,“ segir
Elísabet sem ráðleggur öðru upp-
rennandi tónlistarfólki að finna
sína eigin rödd, hvað það vill að
heimurinn heyri og leggja áherslu
á að finna styrkleika sína og nýta
þá til fulls.
„Fá hjálp hjá öðru tónlistarfólki
ég sest niður og byrja bara að
spila eitthvað á gítarinn og það
var svoleiðis með þetta lag, svo
komu melódían og textinn löngu
seinna, þegar ég var komin til Ís-
lands aftur. Ég var ein heima hjá
mér í Vestmannaeyjum og restin
af laginu einhvern veginn bara
helltist yfir mig,“ lýsir Elísabet í
samtali við K100.
Hún segir að falleg og óútskýr-
anleg náttúra, sem finna má til
dæmis í Vestmannaeyjum, hafi
mikil áhrif á innblástur sinn.
Það að fara í alþjóðlegan
skóla í Ástralíu hafði einnig
gríðarleg áhrif á Elísabetu og
listsköpun hennar og hjálp-
aði henni að brjótast út
úr skelinni og gefa út
fyrsta lagið sem er nú
aðgengilegt á helstu
Sydney í Ástralíu
þar sem Elísabet
hefur stundað skap-
andi nám í Hill-
song College
síðastliðin ár
en hún kláraði
lagið eftir að
hún flutti aft-
ur til
Vestmanna-
eyja.
„Oftast
verða lögin
mín til þegar
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Elísabet Guðnadóttir, upprenn-
andi tónlistarkona og Vestmanna-
eyingur, hefur alltaf elskað allt
sem snýr að því að skapa; hvort
sem það er að syngja, spila á
hljóðfæri, semja, prjóna eða mála.
Hún gaf út sitt fyrsta lag, undir
listamannsnafninu Eló, á 23 ára
afmælisdegi sínum, 5. september
síðastliðinn, sem hefur strax vakið
athygli – hugljúfa lagið Then I
saw you. Nýja lagið varð til í
AFP
Coldplay
Það elska allir Coldplay! Ókei! Veit ekki hvað fleira er hægt að segja við því.
Harry Styles
Harry Styles er þarna á listanum
því hann er svo ótrúlega alhliða
tónlistarmaður. Plöturnar hans eru
ekki bara í einu genre, heldur
mörgum mismunandi, sem sýnir
manni að maður þarf ekki bara að
velja eitt og halda sig við það,
heldur getur maður prófað sig
áfram með mismunandi stíla.
Braust út úr hugarfari
„litla Íslendingsins“
Hin unga og upprennandi tónlistarkona, Elísabet
Guðnadóttir, Eló, gaf út sitt fyrsta lag í vikunni, hug-
ljúfa lagið Then I saw you. Hún ræddi um sínar
helstu fyrirmyndir í tónlist samtali við K100.
Ljósmynd/Wikipedia
Jacob Collier
Jacob Collier er undrabarn í tónlist,
rugl hæfileikaríkur einstaklingur.
Hann er einn af stærstu djasstónlist-
armönnum minnar kynslóðar. Lög-
in hans eru svo flókin, eru svo ótrú-
lega marglaga. Ég elska hvernig
hann blandar röddum og býr til kór
með sjálfum sér með tugi radda sem
fæstum hefði dottið í hug að setja
saman. Ótrúlegur.
Ljósmynd/Wikipedia
The Head and the Heart
The Head and the Heart er folkhljómsveit sem ég hlustaði mikið á þegar ég
var í burtu frá fjölskyldunni minni. Tónlistin er frekar hrá en textarnir inni-
haldsríkir.
AFP/
Angela
Weiss
Eló
Elísabet fékk víð-
ari sýn á lífið í
skóla í Ástralíu.
Bon Iver
Ég hlusta á mjög mismunandi tón-
list en en indífolk er alltaf í uppá-
haldi. Þess vegna er Bon Iver þarna
fyrstur. Hljóðheimurinn sem hann
býr til er svo einstakur og hvernig
hann blandar raddirnar.
Ljósmynd/Sigríður Unnur