Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 37

Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 ✝ Björn Hauks- son fæddist á Húsavík 2. júlí 1949. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 25. ágúst 2022. Foreldrar hans voru Haukur Sig- urjónsson og Fann- ey Björnsdóttir sem bæði eru látin. Björn var elstur þriggja bræðra, yngri eru Sig- urjón, f. 1952, og Haukur, f. 1957. Björn kvæntist hinn 21. sept- Runólfsdóttur. Börn þeirra eru Alexander Örn, Helga Maren og Viktor Breki. 4) Sigurður Örn, f. 1992. Fyrir átti Björn Þorbjörgu, f. 1974. Sonur hennar er Arnór Ingi Heiðarsson. Að lokinni skólagöngu fékkst hann við ýmis störf, svo sem sjómennsku, þar til hann hóf störf í Mjólkursamlagi Þingey- inga. Árið 1984 flutti Björn ásamt fjölskyldu til Hvera- gerðis. Þar starfaði hann í Hverabakaríi með Sigurjóni bróður sínum og í Kjörís þar til hann hætti störfum 67 ára að aldri. Útför Björns fer fram frá Hveragerðiskirkju í dag, 8. september 2022, klukkan 13. ember 1974 Helgu Svövu Bjarkadótt- ur frá Hallbjarn- arstöðum á Tjör- nesi, f. 16. febrúar 1955. Börn þeirra eru: 1) Fanney, f. 1974, í sambúð með Magnúsi Bjarna- syni. Börn þeirra eru Viktoría Berg og Björn Alex. 2) Sigrún Björk, f. 1977, gift Ægi Hrafni Jónssyni. Synir þeirra eru Gabríel Bjarki og Óliver Fannar. 3) Kristján, f. 1985, í sambúð með Ásdísi Öldu Björn Hauksson kom fyrst til vinnu hjá okkur í Kjörís hinn 1. maí 1990. Faðir minn heitinn réð hann til starfa og hefur Björn væntanlega gripið athygli hans með sínum norðlenska framburði og kjarnyrtu tungutaki. Faðir minn tók gjarnan eftir fólki sem tróð ekki almennar slóðir og Björn var slíkur maður. Fjöl- skylda Björns hafði flutt suður frá Húsavík og Björn starfaði í nokkur ár hjá bróður sínum í Hverabakaríinu. Björn fór aftur í bakaríið 1992 en starfaði síðan í Kjörís sleitulaust frá 1996 þar til hann lét af störfum 2016. Þrjú börn Björns hafa einnig starfað í Kjörís og fjölskylda hans þannig bundist fyrirtækinu sterkum böndum gegnum árin. Björn vann við ýmis störf í Kjörís og var ávallt traustur og góður samstarfsfélagi. Hann vann í ýmsu viðhaldi, framleiðslu og seinustu árin sá hann um framleiðslu á sósubrúsum. Við framleiddum okkar sósubrúsa sem voru blásnir úr plasti og var Björn orðinn sérfróður á þeirri framleiðsluvél enda leið að lok- um þeirrar notkunar um það leyti sem Björn hætti störfum. Hann var íhugull og hafði sig ekki í frammi á mannamótum en þeim mun skemmtilegri var hann í samveru þegar maður náði honum á skrið um landsins gagn og nauðsynjar. Hann hafði skoðun á landsmálum og fór ekki leynt með skoðanir sínar þar, var í rauðari anga hins pólitíska lit- rófs. Góðar voru heimsóknir til Bjössa út í túbugerð þar sem málefnin voru krufin og tókst honum næstum að sveigja okkar skoðanir í sína átt, en alls ekki nóg að hans mati. Björn var heimakær og ferða- lög voru honum ekki að skapi. Stundum gert grín að því að hann færi aldrei út fyrir Hvera- gerði, sem auðvitað voru ýkjur sem hann sjálfur ýtti undir á góðum stundum. Og sem hluti af því sagði hann að til Húsavíkur ætti hann ekkert erindi lengur. Samt leyndi sér ekki aðdáun á Norðurlandi og upprunanum þegar hann talaði um norðlenska hangikjötið, laufabrauðið og Mý- vatnssveitina sem hann sagði fal- legasta stað á Íslandi. Eftir situr minning um góðan, traustan og viðræðuskemmtilegan sam- starfsmann sem Björn sannar- lega var. Við samstarfsfólkið í Kjörís þökkum Birni vináttu og sam- fylgd í mörg góð ár og vottum Helgu, börnum og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð. Valdimar Hafsteinsson. Björn Hauksson ✝ Unnur Svandís Magnúsdóttir fæddist í Reyjavík 22. september 1933. Hún lést 15. ágúst 2022 á Landspít- alanum í Reykjavík. Foreldrar Unnar voru Magnús Brynjólfsson, verkamaður í Reykjavík, f. 26. maí 1895 í Mið- húsum í Biskupstungum, d. 31. jan. 1971, og Margrét Ólafs- dóttir, klæðskeri og húsmóðir, f. 1. des. 1900 í Söðulsholti á Snæ- fellsnesi, d. 10. júní 1988. Systkini Unnar voru: Ólafur Ragnar, f. 15. ágúst 1924, d. 10. ágúst 2018, Brynjólfur, f. 29. okt. 1925, d. 18. maí 2011, Krist- grunnskólakennari, börn þeirra eru: Magnús Már, f. og d. 11. okt. 1979, Unnur Ylfa, f. 21. des. 1980, viðskiptafræðingur, maki Þröstur Bergmann, f. 2. des. 1979, viðskiptafræðingur, börn þeirra Andri Þór, f. 6. ágúst 2006, Tinna, f. 26. júlí 2009, og Daníel Árni, f. 3. jan. 2013; Árni Freyr, f. 25. júní 1992, sagnfræð- ingur, maki Álfrún Perla Baldursdóttir, f. 30. jan. 1992, stjórnmálafræðingur, barn þeirra Eydís Ylfa, f. 4. júlí 2020. 2) Hólmfríður, f. 3. okt. 1960, flugfreyja, maki Þorgils Ingv- arsson, f. 13. júlí 1960, raf- eindavirki, börn þeirra eru: Benedikt, f. 21. apríl 1993, tölv- unarfræðingur, í sambúð með Ragnheiði Silju Kristjánsdóttur, sjúkraþjálfara, f. 8. júní 1997, og Ásmundur Ingvar, f. 4. nóv. 1999, námsmaður. Unnur ólst upp á Seljavegi í Reykjavík. Hún lærði snyrti- sérfræði hjá Jean De Grasse 1952 og fór í framhaldi af því til Noregs í húsmæðraskóla. Unnur lauk námi í tækniteiknun 1970, starfaði hjá Verkfræðistofunni Hönnun en lengst af hjá (Raf- magnsveitu Reykjavíkur) Orku- veitunni. Unnur var mikill fagurkeri og handverkskona. Hún saumaði, málaði og prjónaði ógrynnin öll af fallegum peysum sem hún hannaði sjálf og gaf vinum og vandamönnum. Hún hafði sér- staka ánægju af garðrækt og ræktaði fallegan garð við heim- ili þeirra hjóna. Unnur var ein af stofnendum Soroptimistaklúbbs Árbæjar og tók virkan þátt í starfsemi klúbbsins eins lengi og heilsan leyfði. Árið 1967 fluttu þau hjónin á Háaleitisbraut og seinna í Melbæ 7 þar sem Unnur bjó til æviloka. Útförin fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 8. september 2022, klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á: https://youtu.be/V113NURdzpE https://www.mbl.is/andlat rún, f. 14. des. 1926, Erna Bjargey, f. 6. mars 1932, d. 26. jan. 2011, og Sigrún Magnhildur, f. 7. febrúar 1942. Unnur giftist Benedikt Bogasyni verkfræðingi og al- þingismanni 17. ágúst 1957, f. 17. sept. 1933, d. 30. júní 1989. For- eldrar hans voru Bogi Eggerts- son, f. 25. nóv. 1906, d. 22. júlí 1987, og Hólmfríður Guðmunds- dóttir, f. 31. des. 1906, d. 27. mars 1972. Börn þeirra eru: 1) Magnús Grétar, f. 15. jan. 1958, löggiltur endurskoðandi, maki Birgitta Thorsteinson, f. 25. ágúst 1957, Elsku amma. Mér finnst ég heppin að hafa átt gott og kær- leiksríkt samband við ykkur afa. Ég á margar góðar minningar úr æsku úr Melbænum. Þar lærði ég að hjóla, við spiluðum mikið, bökuðum piparkökur fyr- ir jólin, tókum slátur á haustin, steiktum kleinur og þú kenndir mér að prjóna og leyfðir mér að prjóna með þér peysurnar sem þú varst sjálf að gera. Það var keyptur svefnsófi fyrir mig en auðvitað vildi ég miklu frekar sofa í ykkar afa rúmi. Ég man aldrei eftir að þú hafir sagt nei við mig eða skammað mig en einu sinni fann ég að ég fór að- eins yfir strikið þegar ég gisti hjá ykkur eitt laugardagskvöldið og fékk að sjálfsögðu að velja kvöldmatinn. Ég valdi pylsur úr Skalla. Þér fannst það í góðu lagi en ég man að afa fannst þetta ekki merkilegur matur á laugardagskvöldi. Þú minnkaðir við þig vinnu svo þú gætir eytt meiri tíma með mér og tókst að þér að skutla mér í píanótíma einn eða tvo vetur. Ég trúi því ekki að þetta hafi verið í síðasta skipti sem ég hitti þig, tveimur dögum áður en þú kvaddir þetta líf. Þú með þitt fallega bros, sem tók svo hlýlega á móti mér þegar þú sást mig koma til þín. Ég sagði þér frá ferðalögum fjölskyldunnar í sumar. Við skoðuðum saman myndir og þú horfðir á mynd- bönd af krökkunum mínum hoppa í sjóinn og að njóta lífsins í fríinu. Það var vel við hæfi að ég hafi komið með ís handa þér því okkur þótti báðum gamli ís- inn svo góður. Við áttum margar góðar stundir saman og það var alltaf svo gaman að spjalla við þig. Við ræddum um gömlu tím- ana þegar þú varst ung og árin í Rafmagnsveitunni og núna er ég farin að vinna hjá sama fyrir- tæki. Það er ótrúlegt hvað lífið er oft skrýtið, kollurinn á þér var alveg í lagi en líkaminn gat ekki meira og gaf sig. Ég trúi því að það séu fagnaðarfundir hjá ykk- ur afa og þið loks sameinuð á ný. Elsku amma, takk fyrir allar dýrmætu og góðu stundirnar sem við áttum saman. Þær hafa svo sannarlega gert mig að betri manneskju og þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Unnur Ylfa Magnúsdóttir. Okkur langar að minnast í ör- fáum orðum Unnar vinkonu okkar til margra ára sem hefur kvatt eftir langa og viðburðaríka ævi. Við kynntumst á unglings- aldri þegar við unnum sumar- langt hjá Hraðfrystistöðinni við fiskverkun. Þrátt fyrir að vera allar úr gamla Vesturbænum í Reykjavík og úr sama grunn- skóla, Miðbæjarskólanum, þekktumst við ekkert áður. Sú góða vinátta sem skapaðist þetta sumar á milli okkar þriggja varði ævilangt og aldrei bar skugga á hana. Þegar við kynntumst bjó Unnur með fjölskyldu sinni á Seljaveginum. Þangað var gam- an að koma. Foreldrar hennar, þau Margrét og Magnús, tóku alltaf vel á móti okkur. Minn- isstæðar eru gómsætar hjóna- bandssælur sem Margrét bakaði og við fengum að gæða okkur á. Æskuárin liðu og við giftumst og eignuðumst börn. En áfram hittumst við reglulega og áttum góðar stundir saman. Unnur var einstaklega smekkleg og glæsi- leg hvert sem hún fór. Þá var hún glaðvær og umhyggjusöm. Hún var fáguð heimskona sem hafði búið í útlöndum en hún var alla tíð dugleg að ferðast. Hún bjó t.d. í Noregi þegar hún var í húsmæðraskóla og seinna bjó hún í Finnlandi með Benedikt eiginmanni sínum þar sem hann nam verkfræði. Fráfall Bene- dikts, þegar þau voru á miðjum aldri, var Unni þungbært. Hún hélt þó sínu striki. Hún vann sem tækniteiknari hjá Raf- magnsveitunni, átti þar góða kunningja og hafði áfram gaman af því að ferðast. Við söknum okkar góðu vin- konu og þökkum henni sam- fylgdina. Á kveðjustund sendum við ástvinum hennar innilegar samúðarkveðjur. Katrín og Gróa. Unnur S. Magnúsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Elsku hjartans eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma og amma, ESTHER HALLDÓRSDÓTTIR, Bakkastöðum 161, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 18. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 14. september klukkan 15. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki blóðlækningadeildar 11-EG við Hringbraut fyrir hlýhug og góða umönnun. Reynir Haraldsson Halldóra Ósk Reynisdóttir Nazar Byelinskyy Sebastían Blær Nazarsson Hörður Luis F. Reynisson Sara Lea Arnarsdóttir Aron Manuel Harðarson Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, AÐALBJÖRG J. HÓLMSTEINSDÓTTIR hússtjórnarkennari, Háaleitisbraut 26, lést á Skjóli mánudaginn 29. ágúst. Útför hennar fer fram frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn 10. september klukkan 14. Sérstakar þakkir færum við þeim, sem önnuðust hana síðustu ár hennar, fyrir hlýhug og góða umönnun. Arndís S. Hólmsteinsdóttir Karl Jónsson Gunnar Þór Hólmsteinsson Baldur Hólmsteinsson Sigrún Guðnadóttir Edda Kjartansdóttir systkinabörn og aðrir aðstandendur Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR Þ. KOLBEINS, Boðaþingi 10, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 2. september, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánudaginn 12. september klukkan 11. Streymt verður frá útförinni á: https://youtu.be/4Et2uSW7oww og einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat Gunnar Ágústsson Ásgrímur I. Friðriksson Patti Fridriksson María Þórunn Friðriksdóttir Þórdís D. Gunnarsdóttir Jóhann S. Guðmundsson Berglind Gunnarsdóttir Eggert S. Kaldalóns Jónsson barnabörn og langömmubörn Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR EGGERTSSONAR vélstjóra, Stamphólsvegi 3, Grindavík, sem lést 11. ágúst. Útförin fór fram fimmtudaginn 18. ágúst. Margrét Guðmundsdóttir Jóhann Guðmundsson Soffía Kristjánsdóttir Guðrún S. Guðmundsdóttir Steinunn A. Guðmundsdóttir Jón Grétar Guðgeirsson Eggert Guðmundsson Viktorie Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær, elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma og systir, KRISTÍN ERLA BJARNADÓTTIR, amma góð lést á Landspítalanum föstudaginn 2. september. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 13. september klukkan 13. Jóna Björg Hannesdóttir Einar Beinteinsson Valgerður Guðný Hannesdóttir Guðni Hannesson Sigurbára Óskarsdóttir Erla Hanna Hannesdóttir Þorbergur Skagfjörð Ólafsson barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn og systkini

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.