Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 Mér er þungt um hjartað þegar ég er tilneydd að kveðja merkilegasta mann sem ég hef nokkurn tíma þekkt. Það var af þér sem ég lærði þolinmæði og auðmýkt. Ég lærði að það er rétt leið til að gera hlutina, venjulega erfiðari leiðin – á öllum hliðum lífsins – að mað- ur eigi aldrei að stytta sér leið. Þú varst greindur og ná- kvæmur með afbrigðum. Með sterkar skoðanir og ákveðinn. Þú sýndir mér hvernig skilyrð- islaus ást lítur út. Flestir í þessum heimi eru bara – ekki þú, þú gerðir heiminn betri á svo margan hátt. Ef ég get lif- að mínu lífi með dropa af þeirri góðvild og örlæti sem þú sýndir öðrum, þá verður það farsælt líf. Örn Árnason ✝ Örn Árnason fæddist í Reykjavík 26. sept- ember 1938. Hann lést í Quebec-fylki í Kanada 21. ágúst 2021. Hann lætur eftir sig eiginkonu til 60 ára, Margaret, og börnin Ingu Elínu, Belindu, Thor, Bobby, Andy, Leonu og Victor og barnabörn. Minningarstund verður við jarðsetningu duftkers í Foss- vogskirkjugarði í dag, 8. sept- ember 2022, klukkan 11. Ég elska þig pabbi, og ég sakna þín meira en orð fá lýst. Don’t worry, be happy (lagið sem þú söngst fyrir okkur, börnin þín, þegar við vorum leið eða grétum og við syngjum enn þeg- ar við þurfum á hughreystingu að halda). Leona Arnarson. Afi í Kanada var enginn venjulegur maður enda var starf hans í alvörunni að vera uppfinningamaður. Tækni og tækninýjungar voru hans ástríða. Hann tók öll tæki í sundur og ef eitthvað bilaði þá ljómaði hann víst upp við til- hugsunina um að laga hluti. Hann fluttist um tvítugt til Kanada og hlustaði á íslensku fréttirnar á hverjum degi í gegnum stuttbylgjuna áður en netið var fundið upp. Hans frægasta uppfinning var kaffi- vél sem var seld til Van Houtte árið 1998. Hann átti sér fyrirmynd, sem var uppfinningamaður að nafni Reginald Fessenden, sem fann upp fyrstu útvarps- útsendinguna. Afi setti upp sýningu á gamaldags útvarps- tækni sem tileinkuð var Fess- ender. En heimili hans, bíl- skúrinn réttara sagt, var eins og safn um gamaldags tækni- nýjungar, allt um mors-sam- skipti, klukkur, gamlir símar, gamlar myndavélar og mjög margt annað. Hann lét engar tækninýjungar framhjá sér fara. Til að mynda á áttræð- isaldri kenndi hann sér fótó- sjopp. Þegar mamma heim- sótti mig til Ástralíu sendi hann okkur mynd þar sem hann var búinn að fótosjoppa sig með okkur og hafði sett okkur í litríkan ramma! Ég þekkti þennan afa mjög lítið þegar ég var að alast upp. Við fengum reglulega bréfsefni og límmiða senda frá Kanada. Móðir mín vissi ekki af tilvist þessa manns fyrstu tuttugu árin þar sem hún átti annan pabba sem ól hana upp. Þegar hún lærði um blóðtengsl sín fór hún í sína fyrstu ferð til Kanada til að heimsækja blóðföður sinn Örn Árnason uppfinninga- mann. Móðir mín, listamað- urinn Inga Elín, og þessi bló- ðafi minn eru ótrúlega lík og bæði yfirleitt að hugsa um eitthvað allt annað en venju- legt fólk hugsar um. Ákveðið hispursleysi er einn eiginleiki þeirra. Afi og Margaret eiginkona hans til 60 ára áttu við frjó- semisvandamál að stríða. Því eignuðust þau einungis eina líffræðilega dóttur saman. En þau stoppuðu ekki þar heldur ættleiddu fimm börn. Fyrir utan það voru þau með í gegnum ævina yfir 30 börn í fóstri. Þau veittu skjól og buðu upp á öruggt heimili fyr- ir börn sem voru að bíða eftir að fara í ættleiðingu eða voru í tímabundinni vistun og myndu svo fara aftur heim til sín. Að sögn yngstu dóttur þeirra Leonu montaði afi sig aldrei af neinu og talaði víst aldrei um vinnuna þrátt fyrir að hafa átt mjög glæsilegan vinnuferil, nema þegar kom að börnunum hans. Eins og hún sagði: Það er til fólk sem gerir gott í lífinu en það er annað fólk eins og hann sem raunverulega gerir heiminn að betri stað. Hversdags- hetjurnar sem sleppa því að bera góðmennsku sína á torg. Allir veggir heimilis þeirra voru þaktir myndum af öllum þeim 35 börnum sem höfðu dvalið hjá þeim einhvern tíma ásamt myndum af barnabörn- unum. Við munum sakna fjöl- breyttu tölvupóstanna, þar sem efnistök voru algjörlega ófyrirsjáanleg. Allt frá hlekkj- um í grein úr Morgunblaðinu frá 1968 um lestrarvenjur barna í myndir af rokk- asmiðnum á Eyrarbakka sem var langafi minn. Ég sendi hlýja strauma til Knowlton og er svo glöð að hafa fengið að kynnast afa í Kanada. Gen hans munu halda áfram að valda mér kátínu í okkur öll- um afkomendum hans. Meira á: www. mbl.is/andlat Fjóla Dögg Helgadóttir. andi samverustundir eftir að ljóst var að aðeins væru fáar vikur til stefnu. Tíminn á Hjaltastað í júlí verður ykkur örugglega öllum ógleymanlegur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, Særós Rannveig, Stein- gerður Lóa, Heiðdís Guðbjörg og fjölskyldur, og til þín Hjölli minn og fjölskylda, megi guð og góðar vættir styrkja ykkur í sorginni. Að lokum vil ég koma á framfæri innilegum samúðarkveðjum frá systkinum mínum. Blessuð sé minning Möggu Gutt. Líneik Anna. Með sorg í huga, sorg í hjarta sitjum klökk í berjamó. Haustsins kyrrð og ljúfir litir löngum gefa sálarró. Laufvindurinn litlum myndum læðir blítt í huga inn, þerrar tár sem þrálát hrapa og þræða slóð um vora kinn. Þú veiktist snöggt og fljótt varst farin fátt var hægt að gera í því. Í sumarlandi sefur væran frá sjúkdóminum heil á ný. Minningar í muna geymum um milda glaða brosið þitt, ástúðlegan faðm sem ávallt örmum vafði fólkið sitt. Á góðum stundum glettinn hlátur gleði ætíð veitti byr. Þótt á bak við byggi sorgin hún barði snemma á þínar dyr. Löngum varst þú létt í sinni. Litla fólksins æðsta skjól. Þú verður alltaf þeim í minni í þeirra huga skærust sól Samferðina þér við þökkum það er skrýtin hugsun sú, að ekki framar Austurlandi ást og gleði færir þú. Innilega samúð sendum syrgjendum, er kveðja hér, ævinlega alls hins besta ykkur líka biðjum vér. (Sólveig Björnsdóttir) Sólveig Björnsdóttir, Guðmundur Karl, Björn, Fríða og María og fjölskyldur þeirra og Kristbjörg og Halldór. Magga vinkona mín er látin. Magga, svo falleg, svo sérstök, svo róleg, svo æðrulaus. Magga háði snarpa og stutta baráttu við krabbamein. Í veikindunum kom glöggt í ljós æðruleysið sem ein- kenndi hana. En Magga var líka stuðbolti þegar það átti við. Ég hef undanfarna daga skoð- að myndir frá ýmsum ævintýrum okkar Möggu. Frábærum ferða- lögum um landið. Tónleikaferð- um, leikhúsferðum. Ævintýra- legri Spánardvöl, þar sem við tengdumst dásamlegu fólki, sem allt er harmi slegið. Magga er brosandi á öllum myndunum, með fallegt blik í augum og heimsins krúttlegustu spékoppa. Ég staldra oft við myndirnar af okkur Möggu á leiðinni í Þak- gil. Það var haust og kolsvart myrkur þegar við beygðum inn á afleggjarann. Við höfðum ekki hugmynd um hversu langur og „nánast ófær“ vegurinn var og það endaði með að Magga gekk á undan bílnum með vasaljós til að vísa leiðina. Fyrir mér er það táknrænt. Magga var alltaf umvafin sér- stöku ljósi sem vísaði okkur hin- um veginn. Ég er óendanlega þakklát fyrir vináttu Möggu og allar góðu minningarnar. Þær eru fjársjóð- ur sem ég mun leita í meðan ég lifi. Hennar er sárt saknað. Þegar undir skörðum mána kulið feykir dánu laufi mun ég eiga þig að rósu. Þegar tregans fingurgómar styðja þungt á strenginn rauða mun ég eiga þig að brosi. (Stefán Hörður Grímsson) Fjölskyldunni, börnum og barnabörnum, sem hún elskaði svo heitt, svo og öllum þeim sem eiga um sárt að binda, sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Edda. Nú hefur lægt eftir vindasamt sumar. Ég finn sterka þögnina sem fylgir brottför vinkonu minn- ar og rek mig eftir þræðinum okkar. Við Magga kynntumst um tví- tugt gegnum kærasta okkar sem voru æskuvinir, Einar og Brasi. Einn vetur leigðum við öll saman í Seattle og þann tíma ríkti enda- laust örlæti vináttunnar. Sambúð- in einkenndist af glaðværð, mjög hressandi húmor, einlægni og hlýju. Það var oft hiti í samræð- um, mikið rökrætt, ólgandi rétt- lætiskennd, horfst í augu og sagt satt, alltaf talað saman af hrein- skilni, líka um okkar innra líf og lífið fram undan og framtíðin var björt. Hjörtu okkar allra slógu í takt. Við Magga héldum áfram að vera samferða gegnum barneign- ir, skilnaði, nám, sameiginlegan tónlistarsmekk og alls konar at- burði. Umhyggja og hreinskilni voru áfram einkennandi fyrir Möggu og seigla hennar gegnum lífið var aðdáunarverð. Tryggða- bandið okkar var umgjörð fyrir skuggalaust traustið sem náði alveg inn að kviku. Allar stundir með henni voru stundir augnabliksins, alltaf sannleikurinn, aldrei þykjustu- leikur. Orkan frá Möggu býr áfram í ykkur afkomendunum og þið sjá- ið hana þegar þið sjáið hvert ann- að. Ég votta fjölskyldunni inni- lega samúð mína. Sigrún Ása Sigmarsdóttir. ✝ Margret Dolma Guttormsdóttir fæddist í Reykjavík 24. janúar 1957. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans 30. ágúst 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðbjörg Karlsdóttir vefn- aðarkennari, f. 14. júní 1924, d. 7. júlí 1971, og Guttormur Sigbjarnar- son jarðfræðingur, f. 23. júní 1928, d. 10. janúar 2017. Margr- et átti tvo eldri bræður, Karl Björnsson húsasmíðameistara, f. 1948, d. 2002, og Hjörleif Gutt- ormsson vélfræðing, f. 1955. Seinni kona Guttorms var Ás- laug Kristjánsdóttir, f. 1936, og stjúpsystir Margretar var Þóra B. Hafsteinsdóttir, f. 1957. 2) Heiðdís Guðbjörg, f. 1990, ljósmyndari, eiginmaður hennar er Styrmir Kári, f. 1987, ljós- myndari. Margret flutti sex ára gömul til Noregs með Hjörleifi bróður sínum og foreldrum og gekk þar í skóla til átta ára aldurs. Þegar heim kom fór hún í Hlíðaskóla, hún varð stúdent frá Mennta- skólanum í Hamrahlíð. Hún út- skrifaðist með BA-gráðu í leik- listarfræðum frá Háskólanum í Washington, Seattle árið 1981 og fékk kennararéttindi frá HÍ 1996. Leikhúsið var starfsvettvang- ur hennar alla tíð. Margret leik- stýrði um árabil fjölmörgum leikritum hjá áhugaleikhúsum eins og Leikfélagi Fljótsdalshér- aðs og í framhaldsskólum, t.d. Menntaskólanum á Egilsstöðum, Menntaskólanum í Reykjavík og Kvennaskólanum, m.a. leikrit eins og Ég er meistarinn eftir Hrafnhildi Hagalín, Í sjöunda himni (Cloud Nine) eftir Caryl Churchill, Sex persónur í leit að höfundi eftir Pirandello, Farið eftir Ingunni Láru Kristjáns- dóttur og Rokkóperunni Ef eftir Gunnar Hersvein. Hún lék með óháðum leikhópum og starfaði m.a. í EGG-leikhúsinu og síðar í nokkur ár með Halaleikhópnum sem leikstjóri og leikari og var í stjórn félagsins. Hún var leik- listarkennari í MH mestallan sinn starfsferil við góðan orð- stír. Hún kenndi einnig leiklist í Egilsstaðaskóla og í Mennta- skólanum á Egilsstöðum. Hún var sjálfstætt starfandi síðustu árin. Hún lét til sín taka í geðheil- brigðismálum og tók þátt m.a. þátt í starfi Hugarafls og Geð- hjálpar. Margret var ættuð af Héraði og var í sveit á sumrin í Hjalta- staðaþinghá, bæði í Laufási hjá Sigurði og Fríðu og í Rauðholti hjá Sævari og Ásu. Austurland átti stóran hlut í hjarta hennar. Hún dvaldi árlega á Hjaltastað með fjölskyldu sinni. Hennar hinsta ósk var að kveðja Austur- land og það gerði hún. Útförin fer fram í Fossvogs- kirkju í dag, 8. september 2022, og hefst athöfnin kl. 15. Fyrri eigin- maður Margretar var Björn Karlsson. Saman eignuðust þau Særós Rann- veigu, f. 1982, deildarstjóra, kær- asta hennar er Lena Margrét Ara- dóttir, f. 1986. Börn Særósar eru Embla Margret, f. 2001, Oddur Hersveinn, f. 2015, Þórkatla „Ína“, f. 2017, og bónusbörn hennar Eva Marín, f. 2011, og Ari Þormar, f. 2014. Seinni eiginmaður Margretar var Gunnar Hersveinn Sigur- steinsson. Dætur þeirra eru: 1) Steingerður Lóa, f. 1989, leikja- hönnuður, eiginkona hennar er Auður Ákadóttir listakona, f. 1989. Dætur þeirra eru Brynja, f. 2015, og Vaka Björg, f. 2018. Magga Gutt., frænka, vinkona og á stundum „stóra systir“, er farin alltof snemma. Magga var hluti af heimilinu og setti sinn svip á heimilisbrag- inn í Rauðholti seinni hlutann af áttunda áratugnum. Hún dvaldi m.a. vorönnina 1975 í Rauðholti og stundaði þá nám utan skóla við MH, seinna var hún heilt sumar við bústörfin og kom svo til skemmri og lengri dvalar sam- hliða ýmsum störfum á Austur- landi. Hún sá m.a. um búskapinn í rúma viku sumarið 1976 meðan fjölskyldan fór í eina fjöl- skyldufríið þar sem öll börnin voru með (Sindri reyndar ekki fæddur). Hún var sjö árum eldri og ung- lingurinn ég leit upp til tvítugu frænkunnar sem alltaf fylgdi líf og fjör. Í gegnum hana fékk ég innsýn í skemmtanalíf á Austur- landi, böll í Valaskjálf og rúnta út um sveitir. Þegar ég fór sem skiptinemi til BNA naut ég góðra ráða frá frænkunni sem nýkomin var frá námi þar og seinna styrktust svo tengslin þegar við leigðum saman ásamt fleirum á Haðarstíg. Magga hafði frumkvæði að því og má segja að þar með hafi hún leitt sveitastelpuna fyrstu skrefin í borginni. Tíminn á Haðarstíg er ógleymanlegur, margt fólk af ólíkum uppruna kom þar við og þar fékk ég tækifæri til að kynn- ast litlu frænkunni Særós. Tók mín fyrstu skref í samskiptum við leikskóla og prófaði að gefa önd- unum á Reykjavíkurtjörn með henni. Síðan lágu leiðir hvorrar í sína áttina, báðar uppteknar við að stofna fjölskyldur og oftast hvor í sínum landshlutanum. Það var samt sterkur strengur sem aldrei slitnaði og mikið er ég þakklát fyrir stundirnar sem við náðum saman á síðustu vikum. Magga átti líka alla tíð sterka tengingu við foreldra mína, sem var þeim öllum mikils virði. Lífið fór ekki mjúkum höndum um Möggu, hún missti móður sína ung og þurfti oft að glíma við heilsufarið sem hafði áhrif á lífs- gæðin. Brosið, hlýjan og spékopp- arnir hafa samt alltaf yfirhöndina í minningunum. Það var aðdáunarvert og gef- andi að fylgjast með því hvernig dætrunum og fjölskyldunni tókst að hlúa að Möggu og búa til gef- Margret Dolma Guttormsdóttir - Fleiri minningargreinar um Margreti Dolmu Gutt- ormsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR BIRNU BJÖRNSDÓTTUR, Hávallagötu 32, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 14. ágúst. Útförin fór fram frá Neskirkju fimmtudaginn 25. ágúst. Jón Ólafsson Valgerður Jónsdóttir Sigþrúður Jónsdóttir Sverrir Hákonarson Ólafur Helgi Jónsson Estelle Toutain barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, SIGRÍÐUR ATLADÓTTIR, Laxamýri, lést fimmtudaginn 1. september. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 12. september klukkan 11. Sérstakar þakkir til starfsfólks HSN á Húsavík fyrir einstaka umhyggju og alúð. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Vigfúsdóttir Atli Vigfússon Sigríður St. Vigfúsdóttir Okkar ástkæri, ÞORVALDUR SÆVAR BIRGISSON, lést á hjúkrunarheimilinu Fellsenda þriðjudaginn 23. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. F. h. aðstandenda, Eyjólfur Magnússon Scheving Helga Hallbjörnsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.