Morgunblaðið - 08.09.2022, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 49
28 | 01 | 2022
RAFBÍLAR
Öflugir radarvarar frá COBRA og ESCORT
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
Á fullri ferð ...... að safna punktum?
Gos í Meradölum Nýja gos-
sprungan í
Meradölum
Loftmyndir ehf.
Fagradalsfjall
Meradalir
Geldingadalir
Hraunið frá 2021
Suðu rs t randa r
vegu r
Eldgosið sem hófst í Meradölum í gær er fimm
til tíu sinnum stærra en eldgosið í Geldingadöl-
um í fyrra, að mati Magnúsar Tuma Guð-
mundssonar, prófessors í jarðeðlisfræði við Há-
skóla Íslands.
Um er að ræða sprungugos á samfelldri
sprungu, sem er allt að þrjú hundruð metra
löng. Talið er að um 20 til 50 rúmmetrar af
kviku spúist út á hverri sekúndu. Eldgosið er þó
ekki talið stórt og eru engir innviðir í hættu eins
og er.
Almannavarnir hafa farið úr neyðarstigi nið-
ur á hættustig, en talið er að eldgosið ógni ekki
byggð eða mannvirkjum. Fannar Jónasson,
bæjarstjóri Grindavíkur, segir að upptök eld-
gossins séu á einum ákjósanlegasta staðnum
hvað hraunrennsli varðar.
Eldgosinu fylgir meira gas í samanburði við
gosið í fyrra. Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri
veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands, segir
það skýrast af því að mun meiri kvika komi nú
upp.
Mikilvægt sé að fólk fari ekki ofan í dældina
og dalinn þegar það heimsækir gosið, heldur
haldi sig uppi á hnjúkunum í kring. Þá sé
gönguleiðin að gosinu eingöngu fyrir vant og
vel búið göngufólk. Hjálmar Hallgrímsson,
vettvangsstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum,
segir að nú geti reynt meira á lögreglu og
björgunarsveitir. „Það er flóknara að koma að
þessu gosi heldur en því sem varð hérna í upp-
hafi.“
„Oft varað í einhverja áratugi“
Ekki er ár liðið frá því síðasta gosi við Fagra-
dalsfjall lauk, en það hófst 19. mars í fyrra. Áð-
ur hafði ekki gosið á Reykjanesskaganum í
nærri átta hundruð ár. Þessi tvö eldgos gætu
þess vegna markað upphaf nýs gostímabils að
mati jarðfræðinga. Síðast stóðu Reykjaneseld-
ar yfir í um þrjátíu ár á 13. öld.
„Það er erfitt að spá fyrir um hvað þessir eld-
ar verða langir en þeir hafa oft varað í einhverja
áratugi. Kannski um tuttugu til þrjátíu ár,“ seg-
ir Magnús Á. Sigurgeirsson jarðfræðingur.
Freysteinn Sigmundsson eldfjallafræðingur
segir eðli eldgossins vera svipað og síðasta goss
en það sé þó kröftugra núna og flæðið af berg-
kviku sé meira.
„Frá því að innskotavirknin hófst var metið
að það væri talsvert meira kvikustreymi og það
er að skila sér núna upp á yfirborðið.“ Frey-
steinn segir að það verði áhugavert að sjá hvort
gosið muni einangrast á staka gíga eða hvort
bæti í virknina.
JARÐELDAR Í MERADÖLUM
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldur úr iðrum jarðar Þessa flugvél bar við hraunbreiðuna þegar ljósmyndari Morgunblaðsins flaug yfir gosstöðvarnar í gærkvöldi. Sjá má hvernig sprungan opnaðist í útjaðri eldra hraunsins.
- Tvö eldgos eftir nærri 800 ára hlé
gætu markað upphaf nýs tímabils
- Talið fimm til tíu sinnum stærra
en gosið í Geldingadölum í fyrra- Erfitt að spá fyrir um hversu lengi
eldarnir muni vara á Reykjanesskaga
MEldgosið »2,4 og 6
F I M M T U D A G U R 4. Á G Ú S T 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 180. tölublað . 110. árgangur .
4.–7. ágúst
Sigraðu
innkaupin
Sölu- ogmarkaðsfulltrúi
Árvakur hf. óskar eftir að ráða kraftmikinn og áhugasaman
einstakling til starfa í sölu- ogmarkaðsdeild vegna aukinna
umsvifa og nýrra verkefna
Umsóknarfrestur
er til ogmeð
18. september 2022.
Umsóknum skal skilað
á netfangið arvakur.is/storf
með ferilskrá og kynningarbréfi
í viðhengi.
Starfið felur í sér sölu á auglýsingum í fjölmiðla Árvakurs
og umsjónmeðmarkaðsverkefnum.
Viðkomandi þarf að vera jákvæður, skipulagður og hafa
mikla samskiptahæfni.
Reynsla af sölu- og markaðsstörfum er mikill kostur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Silja Jóhannesdóttir, sölustjóri, í síma 569 1170
eða í tölvupósti á netfangið siljaj@mbl.is.
Með allar umsóknir er farið sem trúnaðarmál.