Morgunblaðið - 22.09.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
TENERIFE!
SAMAN Í VETRARSÓL
VIKA | 26. OKTÓBER - 02. NÓVEMBER
TIGOTAN 4*
FYRIR 18 ÁRA OG ELDRI
TVÍBÝLII MEÐ HÁLFU FÆÐI.
VERÐ FRÁ 158.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, HÁLFT FÆÐI, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS
H
Á
LFT
FÆ
ÐI
holabok.is • holar@holabok.is
ÚTGÁFUTEITI!
Í dag kl. 18-20 verður haldið
útgáfuteiti á Hafnartorgi,
Tryggvagötu 21, (gegnt
Bæjarins beztu) í tilefni
af útgáfu bókar Hjálmars
Jónssonar,
STUNDUM VERÐA STÖKUR TIL.
Þarna verður mikið fjör,
góðgæti í gogginn og bókin
auðvitað til sölu á tilboðsverði -
árituð fyrir þá sem vilja.
Allir velkomnir.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er alltaf verið að bæta á
opinberum gjöldum og nú er búið
að brennimerkja áfengi sem óvin
númer eitt. Með stanslausum
hækkunum á gjöld er þrengt veru-
lega í snörunni hjá veitingahúsum
og börum og það takmarkar frelsi
veitingamanna til að geta boðið
ásættanlegt verð og góða þjón-
ustu,“ segir Aðalgeir Ásvaldsson,
framkvæmdastjóri Samtaka fyr-
irtækja á veitingamarkaði.
Fyrir um áratug reið yfir mikil
bylgja gleðistundar, eða Happy
hour, á börum og veitingahúsum á
höfuðborgarsvæðinu og víða á
landsbyggðinni í kjölfarið. Veit-
ingamenn kepptust við að bjóða
hagstætt verð á drykkjum síðdeg-
is, á tíma sem gjarnan var róleg-
ur. Þannig var
ekki óalgengt að
fólk fengi tvo
drykki á verði
eins, oftast bjór
og léttvín en á
sumum stöðum
átti þetta líka
við um kokteila
og sterka
drykki. Nær all-
ir staðir stukku
á vagninn og buðu upp á gleði-
stund. Í dag er öldin önnur og nú
bjóða ekki nærri því allir staðir
upp á gleðistund. Þeir sem það
gera bjóða gjarnan aðeins afslátt
af bjór og léttvíni. Algengt verð á
bjór á gleðistund er á bilinu 800-
1.000 krónur. Það er þó nokkru
lægra en alla jafna en ansi langt
frá því sem var þegar best lét fyr-
ir fólk sem vildi lyfta sér upp.
Veitingamenn sem Morgun-
blaðið hefur rætt við segja að
ekki þurfi nema stutta yfirferð
yfir excel-skjölin í rekstrinum til
að sjá að ekkert svigrúm sé fyrir
tilboð og slíkar æfingar í dag.
Reksturinn sé þungur um þessar
mundir. Aðalgeir segir að álögur
á áfengi og ýmsar hækkanir á
síðustu árum hafi gert það nær
útilokað að bjóða upp á gleði-
stund eins og áður var. Og nýj-
ustu vendingar, boðaðar hækk-
anir á áfengisgjaldi um 7,7% um
áramót, hjálpi síður en svo til.
„Við myndum glöð vilja geta boð-
ið fólk velkomið á gleðistund á
hverjum degi og við erum góð í
því. Þessi hækkun ofan á hækkun
aðfanga upp á 30% að undan-
förnu og launahækkanir síðustu
ára gera það hins vegar ómögu-
legt.“
Gleðistundin fórnarlamb
hærri opinberra gjalda
- Veitingamenn segja ekki hægt að bjóða tilboð eins og var
Morgunblaðið/Eggert
Skálað Íslendingar tóku því vel þegar barir hófu að bjóða upp á gleðistundir. Nú fækkar þeim stundum.
Aðalgeir
Ásvaldsson
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Þegar horft er til gjaldskrártekna
Reykjavíkurborgar á undanförnum
árum kemur í ljós að þær hafa
hækkað örar en vísitala neyslu-
verðs, algengasti mælikvarði verð-
bólgu.
Í fyrri viku var greint frá því að
borgarstjórn hefði samþykkt breyt-
ingar á gjaldskrám Reykjavíkur-
borgar, sem sagt var í samræmi
verðlagsbreytingar umfram for-
sendur fjárhagsáætlunar borgarinn-
ar og áhrif þeirra á rekstur. Verð-
bólga hefur, sem kunnugt er,
hækkað mikið undanfarna mánuði.
Hækkunin á gjaldskrám nam 4,5%
og tók gildi 1. september.
Reykjavíkurborg tekur gjald fyr-
ir margs konar þjónustu, allt frá
bókasafnsgjöldum til leikskóla-
gjalda og vega gjöldin þungt í
rekstri hennar. Í tilkynningu sagði
að Reykjavíkurborg hefði leitast við
að hækka ekki þjónustugjaldskrár
umfram verðlagshækkanir og þann-
ig mætt kostnaðarhækkunum með
því að draga að hluta til úr kostn-
aðarhlutdeild þeirra sem kaupa
þjónustuna.
Þegar litið er til hlutfallslegrar
hækkunar gjaldskrártekna miðað
við verðbólgu sést að þar hefur
borgin jafnan verið feti framar. Það
er ekki fyrr en með óvenjumikilli
verðbólgu í ár, sem borgin dróst aft-
ur úr, en því var hressilega mætt
með fyrrgreindri hækkun. Til
stendur að „leiðrétta“ gjaldskrár
Reykjavíkurborgar tvisvar á ári
framvegis í stað árlegrar hækkunar.
Nokkur umræða hefur að und-
anförnu verið um áhrif verðbólgu á
opinber gjöld og athyglin einkum
beinst að verðlagsuppfærslu á
krónutölugjöldum- og sköttum rík-
isins, líkt og tiltekið verður í band-
ormi með fjárlögum. Reykjavíkur-
borg er samkvæmt þessu komin
fram úr ríkinu að þessu leyti, en
fjárhagur hennar hefur versnað
mjög upp á síðkastið.
Gjaldskrártekjur
hækka umfram
verðbólgu
- Gjaldskrár Reykjavíkurborgar
hækkuðu um 4,5% um liðin mánaðamót
Þróun gjaldskrártekna Reykjavíkurborgar
Í samanburði við verðbólgu frá 2015 Heimild: Hagstofan og Reykjavíkurborg
100
105
110
115
120
125
130
135 (2015 = 100)
’22’21’20’19’18’17’16’15
„Leiðrétting“ 1. september
Vísitala neysluverðs
Gjaldskrártekjur
Morgunblaðið/Hari
Ráðhúsið Fjárhagur borgarinnar
hefur mjög þrengst að undanförnu.