Morgunblaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 20
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur fallist á stækkun verslunarhússins Lækjarvers á lóð nr. 2-6 við Lauga- læk, samkvæmt frumtillögu THG Arkitekta ehf. Lækjarver hefur þjónustað Laugarneshverfi í meira en 60 ár. Í næsta nágrenni er ein- stakur byggðarkjarni sem ástæða er til að vekja athygli á af þessu tilefni. Perla í borgarlandinu, sem fáir hafa haft vitneskju um. Fróðlegt er að ganga um hverfið og skoða það. Fram kemur í greinargerð verk- efnastjóra skipulagsfulltrúa að Laugalækur 2-8 tilheyrir byggð sem reist var á fjórum tímabilum allt frá 1926 til 1960 og sé hverfið skýr vitn- isburður um byggingarsögu Íslands á þessu tímabili. Hluti af heildstæðu hverfi Verslunarhúsin við Laugalæk 2-8 voru byggð á árunum 1958 -1961, teiknuð af Jóhanni Friðjónssyni arkitekt (1928-2005) og eru mikil- vægur hluti af heildstæðu hverfi rað- húsa sem voru byggð á 6. áratug 20. aldar. Alls eru það sjö tugir raðhúsa við Laugalæk og Otrateig sem um- lykja Lækjarver. Verslunarhúsin eru einlyft hús með kjallara, byggð úr steinsteypu, múruð og máluð að utan og eru með járnklæddu þaki. Húsin eru ákveðin kennileiti á horni Laugalækjar og Hrísateigs, form húsanna er sérstakt og samröðun þeirra óvenjuleg. Í hús- unum hefur verið starfrækt mismun- andi þjónusta, m.a. kjötmiðstöð, bændamarkaður, söluturn, skrif- stofur, myndbandsleiga o.fl., en lengst af hefur verið starfrækt ísbúð í húsi nr. 8 og matvöruverslun í húsi nr. 2. Í dag er matvöruverslunin Krambúðin starfrækt í meginbygg- ingunni en í aftari byggingunni Frú Lauga, sælkeraverslun og bænda- markaður, og aftast er hin þekkta ís- búð, sem starfrækt hefur verið í ára- tugi. Af frumteikningum stækkunar- innar má ráða að Krambúðinni verði breytt í Nettó-búð. Fyrirtæki í nágrenninu Hinum megin götunnar, við Hrístateig, er að finna bakarí, hár- greiðslustofu, pylsugerð og kaffi- húsið Laugalæk. Því er óhætt að segja að íbúar hverfisins geti sótt fjölbreytta þjónustu í nærumhverfið. Slíkar verslanaþyrpingar sem Lækjarver tóku að ryðja sér til rúms á 6. áratug síðustu aldar og var hugs- unin sú að viðskiptavinurinn gæti sótt helstu verslun og þjónustu á einn stað en þyrfti ekki að fara á marga staði til þess. Verslunarhúsin nefndust einu nafni Lækjarver og þar voru strax árið 1959 opnaðar þrjár verslanir, Kjötmiðstöðin og Matvörumiðstöðin auk vefnaðar- vöruverslunar. Í umsögn skipulagsfulltrúa er vís- að í umsögn Borgarsögusafns frá ágúst 2022. Þar segir m.a. að sam- kvæmt varðveislumati húsakönnun- arinnar skuli verslunarhúsin og hverfið sem þau tilheyra njóta verndar í milligulum flokki: Um sé að ræða heildstætt hverfi raðhúsa, sem skipulagt var á 6. ára- tugi 20. aldar. Varðveislugildi svæð- isins er einkum fólgið í þeim nýmæl- um í skipulagi sem þar koma fram og eiga sér hliðstæðu í skipulagi nokk- urra annarra raðhúsahverfa í Reykjavík frá 6. áratugi aldarinnar. Þar voru byggðar samsíða raðir af tvílyftum raðhúsum sem snúa gafli að götu, með bílskúrum úti við götu og aðkomu að hverri íbúð um göngu- stíg, sem einnig tengist opnu svæði í miðju hverfinu. Áfangi í þróun skipulags Fyrirkomulag sem þetta sé áfangi í þróun skipulags íbúðahverfa þar sem akandi og gangandi umferð er algerlega aðgreind. Allmargir arkitektar og húsa- meistarar hafa teiknað raðhúsin í hverfinu. Í húsakönnun Borgarsögu- safnsins eru taldir upp þeir Halldór Halldórsson, Manfreð Vilhjálmsson, Kjartan Sveinsson, Halldór Guð- mundsson, Gunnar Hermannsson, Hafliði Jóhannsson, Þorvaldur Kristmundsson og Sveinn Þorvalds- son. Verslunarhúsin við Laugalæk 2-8 tilheyri þessu skipulagi og skulu því einnig njóta verndar í milligulum flokki. Þau eru einnig meðal fárra bygginga hér á landi sem Jóhann Friðjónsson arkitekt teiknaði í eigin nafni og eru sérstæð hvað form og samröðun eininga varðar. Verndun í milligulum flokki felur m.a. í sér að lagt er til að svip húsa verði sem minnst raskað, t.d. þak- og gluggagerðum, upprunalegri vegg- áferð (t.d. múrlit) verði haldið og að sýnd sé sérstök aðgát við hönnun breytinga og viðbygginga. Helstu breytingarnar sem nú á að ráðast í eiga við austasta húsið, Laugalæk 2, þar sem húsið var lengt til austurs 1979-80, og stækkun framhliðar hússins til norðurs 1984. Tilteknar breytingar hafi að mestu leyti tekið mið af upprunalegri hönn- un hússins. Hins vegar hafi litaval á húsunum oft verið það sem hafi haft neikvæðustu áhrifin á útlit þeirra. Í umsögn Borgarsögusafns, segir skipulagsfulltrúi, sé einnig bent réttilega á að efnisnotkun s.s. í vegg- klæðningu, gluggum og þakkanti o.fl. sé ekki nógu skýr á uppdráttum að breytingum sem gera á. Þetta séu þeir þættir í útliti byggingarinnar sem séu helstu sérkenni húsanna. Óljóst sé líka um útlit glugga. Að mati skipulagsfulltrúa og Borgarsögusafns taki tillagan ekki nægilegt tillit til upprunalegs bygg- ingarstíls hússins, þ.e. sérstæðs forms útveggja og þaks, vals á bygg- ingarefnum, samræmis í stærð og gerð glugga og samröðunar ein- stakra byggingareininga. Úr þessu verður væntanlega bætt við frekari útfærslu stækkunar Lækjarvers. Markmið gildandi deiliskipulags svæðisins, sem er frá 2015, er meðal annars að bæta aðgengi og umhverfi fyrir gangandi og hjólandi vegfar- endur með markvissum og öruggum hætti og gera það aðlaðandi um leið. Þar segir m.a. að Laugalækur verði aðalaðkomuleiðin inn í hverfið. Gatnamót Laugarnesvegar og Hrísateigs verði hellulögð og verði að upphækkuðu göngutorgi sem myndi einskonar göngugötu sam- hliða Laugalæknum þar sem hinn forni Laugalækur rann áður. Í skilmálum gildandi deiliskipu- lags er gert ráð fyrir að svæðinu fyr- ir framan verslunarhúsin að Lauga- læk 2-8 verði breytt í markaðstorg og þjónustuakstur verði aðeins leyfð- ur um lóðina frá Hrísateig. Laugalækurinn dreginn fram Á torginu verði afmarkaður bygg- ingarreitur, þar sem heimilt er að reisa tjöld, byggja skyggni og léttar bráðabirgðabyggingar fyrir torg- sölu. Einnig skal meðhöndla hluta torgsins með öðru yfirborðsefni en steypu eða malbiki. Á torginu sé einnig gert ráð fyrir að draga fram hluta Laugalækjarins upp á yfir- borðið með einhverjum hætti eins og laugum eða brunnum. Laugalæk- urinn kom upp við þvottalaugarnar í Laugardal og rann til norðvesturs og í sjó fram við Kirkjusand. Lækjarver verði stækkað - Verslunarkjarni sem hefur þjónustað íbúa Laugarneshverfis í meira en 60 ár - Einstakur byggða- kjarni raðhúsa umlykur Lækjarver - Perla í borgarlandinu sem fáir hafa haft vitneskju um Morgunblaðið/sisi Lækjarver Í dag er þar að finna Krambúðina, Frú Laugu og hina sögufrægu ísbúð. Í baksýn sést glitta í eina af þeim raðhúsalengjum sem prýða hverfið. Tölvumynd/THG Arkitektar Eftir stækkun Svona sjá arkitektarnir fyrir sér að Lækjarver líti út í framtíðinni. Hér er reiknað með að verslun Nettó verði starfrækt í húsinu. 20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 GO WALK 14.995 kr./ St. 36-41 MEÐ ULTRA GO® PÚÐA FYRIR AUKIN ÞÆGINDI withMemory Foam KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS DÖMU STRIGASKÓR SKECHERS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.