Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 13

Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 13
að vera á 150 bílum. Þetta eru allt sparibílar, gamlir kaggar, kádiljákar og alls konar eðalvagnar af öllum ár- gerðum. Þetta er mjög skemmtilegt og tilfinningin einstök sem fylgir því að keyra saman á gömlu bílunum okkar í góðu veðri,“ segir Guðfinnur sem er í stjórn Krúserklúbbsins og tekur bílaljósmyndir fyrir félagana, sem hann segir stóran hluta af ánægjunni við félagsstarfið. „Ég mynda á hverju fimmtu- dagskvöldi. Bílaeigendurnir bíða spenntir eftir að sjá myndirnar af sín- um bílum og njóta þess líka að skoða þær yfir veturinn,“ segir Guðfinnur sem játar fúslega að vera með bíla- dellu. „Ég hef verið með hana frá því ég man eftir mér.“ Smokey and the Bandit Svokallaður Té-toppur er á bíln- um, sem hægt er að opna og Guð- finnur segir geggjað að keyra með opið upp til himins, láta vindinn leika um hárið og hlusta á Creedence Clearwater í græjunum. „Ég legg mikla áherslu á að spila réttu gömlu tónlistina þegar ég keyri um á honum, og það þarf að vera hátt stillt,“ segir Guðfinnur. Hann bætir við að fyrir öllum smáatriðum hafi verið hugsað. Til dæmis sé gamla bíl- númerið aftan á bílnum, E 98, komið frá afa eiginkonunnar, Agnesar Geir- dal, en hann bjó á Akranesi. „Númeraplatan er líka í fullkominni stærð. Hún er stutt og smellpassar fyrir bensínlokið sem er undir núm- erinu.“ Guðfinnur segir að auðvitað þurfi að halda 45 ára gömlum bíl vel við, smyrja hann og hlúa að honum á alla lund. „Sem betur fer er ekkert mál að fá varahlut í gamlan bíl sem er svo vinsæll sem raun ber vitni með þessa tegund, sérstaklega í Bandaríkjunum en líka í Svíþjóð. Pontiac Trans Am varð rosalega vinsæll eftir að kvik- myndin Smokey and the Bandit var frumsýnd 1977, með Burt Reynolds í aðalhlutverki. Hún var í öðru sæti á vinsældalista árið á eftir Star Wars og salan á þessum bílum rauk upp. Á hverju ári er haldin einhvers konar afmælishátíð kvíkmyndarinnar og þá safnast saman fjöldi fólks með svona bíla,“ segir Guðfinnur sem leggur sig fram um að kynna afastelpunum sín- um heillandi heim Trans Am. „Þær hafa allar fengið við eins árs afmæli stuttermaboli með mynd af Trans Am og þær fá líka bíl, alveg eins og afi á, og leika sér að bílum hér inni í bragganum.“ Flottir Guffi og 45 ára fornbíll hans framan við herbraggann, sem fær að halda sínu gamla grófgerða útliti, svo ekkert vanti upp á sjarma þess gamla. Áður Svona var umhorfs inni í herbragganum áður en Guðfinnur og Agnes flikkuðu upp á hann, þar var moldargólf, partabíll og alls konar drasl. Heimsókn Helgi Árnason, t.v., hér með Júlíu Ísaksen sendiráðsritara og Geir Oddssyni aðalræðismanni. Kennt Róbert Lagermann lagði skákdæmi fyrir nemendur í Nuuk. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 Áminning um framtalsskil lögaðila skatturinn@skatturinn.is 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa ekki staðið skil á skattframtali 2022 ásamt ársreikningi, eru hvattir til að annast skil hið allra fyrsta. Skráður lögaðili skal ætíð skila skattframtali vegna undangengins reikningsárs, jafnvel þó að engin eiginleg starfsemi eða rekstur hafi átt sér stað á reikningsárinu. Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi til ársreikningaskrár. Skattframtali og ársreikningi ber að skila rafrænt á skattur.is Álagning opinberra gjalda á lögaðila árið 2022 vegna rekstrarársins 2021 fer fram 31. október. Lokaskiladagur skattframtals lögaðila er 30. september

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.