Morgunblaðið - 22.09.2022, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 22.09.2022, Qupperneq 40
✝ Anna Guðný Guðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 6. september 1958. Hún lést í faðmi ást- vina á líknardeild Landspítalans 11. september 2022. Foreldrar Önnu eru Guðmundur Halldórsson, f. á Borgarfirði eystra 10.8. 1932, og Aagot Árnadóttir, f. á Vopnafirði 7.4. 1935. Systkini Önnu eru Hjördís, f. 2.12. 1956; Þórdís, f. 24.4. 1960; Sverrir, f. 24.3. 1962, og Krist- ján, f. 8.11. 1966. Anna Guðný giftist Sigurði Ingva Snorrasyni, f. 22.4. 1950, hinn 7.12. 1985. Börn þeirra eru: 1) Ásta, f. 6.10. 1989, maki Kristján R. Hjörleifsson. Börn þeirra: Bald- ur Páll, f. 21.9. 2018, og Sóldís Sumarrós, f. 23.9. 2020. 2) Guð- mundur Snorri, f. 10.5. 1992, unnusta Anna Katrín Þórkels- dóttir. Barn þeirra Hafdís Anna, Anna var um árabil fastráðinn píanóleikari hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands og hjá Kamm- ersveit Reykjavíkur, lék með Karlakór Reykjavíkur í hartnær 30 ár og spilaði með öllu helsta tónlistarfólki landsins, bæði söngvurum og hljóðfæraleik- urum. Hún kom reglulega fram á Listahátíð og fjölmörgum tón- listarhátíðum, s.s. Reykjavik Midsummer Music og Reykholts- hátíð. Þá lék Anna inn á um 30 geisladiska með mörgu fremsta tónlistarfólki landsins en auk þess gaf hún út rómaðar ein- leiksplötur. Anna Guðný hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2008 fyrir flutning sinn á verki Oli- viers Messiaens Tuttugu tillit til Jesúbarnsins. Áður hafði hún hlotið orðu Hvítu rósarinnar frá finnska ríkinu (1997) og verið út- nefnd bæjarlistamaður Mosfells- bæjar 2002. Síðastliðið vor hlaut hún heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna og hinn 17. júní í ár var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt á sviði tónlistar. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 22. sept- ember 2022, klukkan 15. Hlekk á streymi má nálgast á: www.mbl.is/andlat f. 7.5. 2021. Sigurður á tvo syni frá fyrra hjónabandi: Mari- an, f. 21.6. 1975, maki Guðrún Dís Kristjánsdóttir. Börn þeirra eru Bjarki Freyr, f. 29.8. 2006, og Sandra Dís, f. 21.6. 2014. Fyrir átti Marian soninn Bergvin Mána, f. 12.7. 1995, móðir hans Kolbrún Gunn- arsdóttir. Daníel, f. 23.6. 1976, sambýliskona Eva Hillerz, sonur þeirra Eiður Logi, f. 30.12. 2017. Anna Guðný lagði stund á pí- anónám í Barnamúsíkskólanum hjá Stefáni Edelstein. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð 1977 og burtfararprófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík 1979. Þá lauk hún framhaldsnámi frá Guild- hall School of Music and Drama í London árið 1982 þar sem hún lagði áherslu á meðleik og kammertónlist. „Hvað er langlífi?“ spurði skáldið Jónas og svaraði sjálfur: „Lífsnautnin frjóa, alefling and- ans og athöfn þörf.“ Hann dró í kvæðinu fram þá þverstæðu að það má tóra langa ævi án þess að hafa lifað til fulls. Þegar við nú tregum þau örlög að Önnu Guð- nýju Guðmundsdóttur hlotnist ekki lengra líf er það huggun að hún lifði sannarlega til fulls, henn- ar var lífsnautnin frjóa, andagiftin og verkgleðin. Við Anna vorum systradætur en í verunni meira eins og systur. Við göntuðumst stundum með ætta okkar kynlega bland, þar sem saman kom hinn strangi agi og ráðdeild af Langanesinu og svo léttleiki ömmu Johansen með ást á sykri og rjóma og öðrum lífsins lystisemdum. Í Önnu fléttuðust þessir þættir óviðjafnanlega sam- an. Hún var agaður listamaður sem undirbjó hvert verkefni af kostgæfni, samviskusöm og ná- kvæm, en það hefði þó hrokkið skammt ef ekki hefði fylgt mús- íkgáfa af bestu sort, innlifunin og ástin á viðfangsefninu hverju sinni. Hún var óhemju fjölhæfur píanóleikari eins og starfsferill hennar og afrekaskrá ber vott um. Sjálf talaði hún um að rætur sínar lægju í Vínarklassíkinni – hún var til að mynda afburða Beethoven- túlkandi og lagði sig sérstaklega eftir að ná góðum tökum á hans verkum. En hún sprengdi líka ítrekað af sér slíka ramma, einna eftirminnilegast þegar hún stóð á fimmtugu og frumflutti hérlendis stórvirki Oliviers Messiaens, Tutt- ugu tillit til Jesúbarnsins. Það var gaman að vera með Önnu á vinafundum – Johansen- genið sá til þess og dásamleg sam- stilling þeirra Sigga sem spannaði léttilega bæði listflutning og veisluhöld. Löngunin til að sam- eina ferðalög, gastrónómíu og tón- listarupplifun leiddi okkur nokk- ur, með Sigga og Önnu í broddi fylkingar, í ógleymanlegar ferðir á meginlandið, þar sem ópera var gjarnan í miðpunkti en utan á var hlaðið grasagörðum, dómkirkjum, kaffihúsum, listasöfnum, restau- röntum – og kannski einu vöru- húsi þar sem finna mátti litríka sokka eða eins og einn silkikjól. Hér heima áttum við frænkur ótalmargar gleðistundir, og líka aðrar, ekki síður dýrmætar, þar sem meiri alvara ríkti og talað var í trúnaði. Anna var orðvör og að ýmsu leyti dul. Hún hallaði yfir- leitt aldrei orði á nokkurn mann og henni var það eðlislægt að draga athygli að afrekum annarra fremur en að halda fram eigin framlagi. Auðvitað var hún samt, á sinn hógværa hátt, stolt af verkum sínum. Hún unni vinnunni sinni og vildi veg Sinfóníuhljómsveitarinn- ar og samstarfsfólksins þar sem mestan. Sama gilti um nemend- urna í MÍT og LHÍ sem hún fylgdi í lokapróf; hún var stolt af þeim og fylgdist vel með ferli þeirra eftir útskrift. Og hún var stolt af börn- unum þeirra Sigga og naut til- komu barnabarnanna af djúpri og einlægri gleði. Hún átti ríkulegt líf og lifði því vel. Við Anna kvöddumst á afmæl- isdaginn hennar við glitrandi vog- inn þar sem hún var umvafin sól- argeislum og tónum úr klarinettunni hans Sigga. Fáein- um dögum síðar var hún öll. Farðu vel, frænka og vinkona. Ég mun hugsa um þig í miklu sólskini. Svanhildur Óskarsdóttir. Haust. Ég horfi á spegilslétt vatnið, morgunroðinn litar austur- hlið fjallsins fjólubláa og bleika. Skógurinn skartar fegurstu haustlitum. Fuglarnir eru byrjað- ir að bústanga en þeir eru margir á förum, hafa lokið verkefni sínu þetta árið. Ég hugsa um upphaf og endi og þessa undarlegu vegferð sem er líf okkar mannanna. Um hjallana sem við klöngrumst yfir, fjöllin sem við klífum, en einnig um fegurðina sem við kynnumst á leiðinni og hamingjuna sem felst ekki síst í samneytinu við ferða- félagana. Fólkið sem fetar veginn með okkur og sem réttir út hönd- ina þegar gangan verður erfið og gleðst með okkur þegar torfær- urnar eru að baki. Fólkið sem ég kalla föruneytið. Anna Guðný Guðmundsdóttir var í mínu föru- neyti. Við vorum systradætur og vinkonur frá því ég man fyrst eftir mér. Við vorum samstiga í svo mörgu á lífsleiðinni allt frá því að við gengum saman í Barnamúsík- skólann þar sem okkur opnaðist töfraheimur tónlistarinnar. Og við uxum úr grasi, vorum ungar kon- ur á tímum umbreytinga, kvenna- baráttan var komin á skrið og okk- ur var mikilvægt að efla eigið sjálfstæði og finna eigin rödd. Þetta var ekki síst mikilvægt ungri listakonu og Anna tókst á við það af því hugrekki og einurð sem einkenndi hana alla tíð. Við tókum til við starfsferilinn, urðum eiginkonur og mæður og svo ömmur. Alltaf héldum við tryggð hvor við aðra og gættum þess að skapa okkur pláss í ann- ríki hversdagsins til að hittast, í áratugi höfum við hist reglulega yfir hádegisverði með Svanhildi systur og svo Þórdísi systur Önnu. Þessi hópur hefur verið minn átta- viti og fundirnir vettvangur fyrir hvaðeina sem manni bjó í brjósti, gefandi samræður og jafnframt sprúðlandi kátínu. Alltaf var hægt að gleðjast með Önnu. Og margar dásamlegar samverustundir höf- um við átt í litla tónlistarfélaginu okkar, bæði erlendis og hér heima. Anna elskaði vinnuna sína og var ávallt sami eldhuginn í tónlist- inni. Verkefnin voru svo spenn- andi og henni fannst alltaf svo gaman. Alla ævi lagði hún áherslu á að þroska sig sem listakonu, bæði með því að takast á hendur ný og krefjandi verkefni og einnig með því að fylgjast vel með því sem var að gerast í menningu og listum. Það var stórkostlegt að fylgja henni þegar hún tókst á við stórvirki Oliviers Messiaens, Tutt- ugu tillit til Jesúbarnsins, sem hún flutti á tónleikum á 50 ára afmæl- isdaginn sinn. Það er ógleymanleg stund. Þegar reiðarslagið dundi yfir með sjúkdómsgreiningunni fyrir hálfu öðru ári kom styrkur Önnu, einurð og bjartsýni enn og aftur í ljós. Þau Siggi voru einstaklega samhent í því að njóta þeirra gæðastunda sem hver dagur gaf. Af örlæti sínu gáfu þau okkur öll- um sem kringum þau stóðum ríkulega af gleðistundum. Nú er komið að leiðarlokum og í hjarta mér er fyrst og fremst þakklæti fyrir samfylgdina og vináttuna sem aldrei bar skugga á. Söknuð- urinn er sár en hugsunin um Önnu mun minna okkur á að halda áfram að njóta fegurðarinnar og lífsins. Því það kemur alltaf nýr dagur og nýtt vor. Aagot Vigdís Óskarsdóttir. Ég veit eiginlega ekki hvenær við Anna ákváðum að verða vinir. Við höfðum lengi þekkst og þar á undan vissi ég auðvitað um hana. Hún lagði ósjaldan leið sína heim til Ísafjarðar til tónleikahalds og í minningunni fór þar glæsileg kona, svo fáguð, svo glöð, svo klár. Á sumarsólstöðum 2006 komu Anna Guðný og Diddú vestur og héldu masterclass og tónleika á tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Þá má segja að við Anna höfum fyrst unnið saman. Þar byrjaði hún að kalla mig frænda en við erum nokkuð skyld úr Þistilfirði í Norð- ur-Þingeyjarsýslu. Mér þykir alla tíð síðan sér- staklega vænt um kveðjuna „frændi“, er Anna Guðný notaði þegar við hittumst, sem varð æ oftar eftir því sem árin liðu. Anna var gestur Við Djúpið á ný 2008 og lék þá valin tillit til Jesúbarnsins í fyrsta sinn, ógleymanlegir tón- leikar. Rúmu ári síðar hófum við að vinna saman hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Þar var Anna Guðný sannarlega haukur í horni fyrir mig, rennblautan á bak við eyrun. Til hennar gat ég leitað til að fá innsýn í sjónarmið hljóð- færaleikaranna og var hún óspör á ráðin handa frænda. Ég þykist líka vita að nærvera Önnu í hljómsveitinni hafi haft mikil áhrif á starfsumhverfið inn- an sviðs sem utan. Jafnaðargeð, fagmennska, góðvild og gæska hennar smitaði út frá sér svo um munaði. Þær fjölmörgu lýsingar sam- ferðafólks er lýsa tónlistarkon- unni og píanóleikaranum Önnu Guðnýju gætu allt eins átt við um frænkuna og vinkonuna. Tón- leikarýnirinn hefði getað skrifað silkimjúkt, tígulegt fas, engin læti en alltaf ástæða og inneign. Sá sem sagði í útvarpið að hún styddi við nemendurna skilyrðislaust hefði allt eins getað átt við vinina, vinnufélagana, fjölskylduna. Sjálf sagðist hún eiga erfitt með að neita spennandi verkefnum þótt það þýddi enn eina vinnuhelgina. Þar hefði Anna líka getað átt við bón frændans um stund yfir glasi, „mér þykir vænt um fólk“, sagði hún. Þegar við Anna Guðný hættum að vinna á sama vinnustað fundum við að okkur langaði að halda áfram að hittast og sköpuðum til þess afar huggulegan og „form- legan“ vettvang. Fundir okkar voru mikið tilhlökkunarefni því huggulegri félagsskap er erfitt að hugsa sér. Anna Guðný sýndi verkefnum frænda, högum og skoðunum mikinn áhuga og gat af innsæi og næmi fyrir málefnum líðandi stundar bætt sjónarhorni sínu við. Sömuleiðis voru frásagn- ir Önnu Guðnýjar af störfum hennar og umhyggju fyrir vinum, góðum mat og drykk, föstudags- saltfiski Sigga, fjölskyldu og ferðalögum nærandi umræðuefni. Ég á eftir að sakna Önnu Guð- nýjar og vinafunda, smáskilaboða þegar við hvort í sínum sófanum horfðum á línulega dagskrá og glottum rafrænt hvort til annars, stundanna yfir freyðandi víni eða við kaffivélina í Hörpu. Sérstak- lega minnist ég dýrðardaganna við Ísafjarðardjúp í sumar sem leið. Nú er gott til þess að hugsa að fágaður píanóleikur hennar er til á ótal upptökum og brosið hennar og hlýjan lifir í tónlistinni. Minnumst orða Önnu Guðnýjar frá í mars: „Eins og veröldin snýst þessa dagana skulum við muna að tónlistin getur bæði sefað og sam- einað.“ Greipur frændi. Elskuleg frænka okkar, Anna Guðný, er látin. Hún hefur tilheyrt lífi okkar frá upphafi enda við ná- skyld í báðar ættir sem þýðir eiginlega að hún var næsti bær við að vera systir okkar. Yfir frænku hefur alltaf svifið andi listfengi, hógværðar, gjafmildi, elskuleg- heita og áhuga á högum annarra. Tónlistarhæfileikar hennar sem hún ræktaði svo fallega og af mik- illi elju hafa alla tíð vakið aðdáun og svo ótal oft hefur verið tilefni til að samgleðjast henni með þær verðskulduðu viðurkenningar og fallegu umsagnir sem hún hefur hlotið í gegnum starfsferilinn og vera hreykinn af því að vera skyldur henni. Við höfum átt því láni að fagna að eiga samleið með Önnu ýmist á vettvangi tónlistarinnar eða í sam- veru í frænkuklúbbnum okkar góða, innanlands og utanlands. Þær minningar ylja okkur núna þegar við kveðjum hana svo allt of fljótt. Það var mikið áfall fyrir alla þegar Anna greindist skyndilega með sinn sjúkdóm fyrir aðeins 20 mánuðum en það hefur líka verið lærdómsríkt að fá að standa nærri henni þann tíma og fylgjast með því hvernig manneskjan getur tekist á við örlög sín. Eins og í líf- inu gerði hún það af einstakri yfir- vegun og hugrekki, full vonar um að meðferð bæri árangur, opin fyrir að nota bæði hefðbundna meðferð og viðbótarmeðferð ým- iss konar en jafnframt raunsæ varðandi horfur sínar. Hún greip hvert tækifæri sem gafst til að skapa sér og öðrum gleðistundir á þessum tíma eins og heilsan leyfði, dyggilega studd af Sigga sínum, Þórdísi systur, börnum og öðrum ástvinum. Við þökkum fyrir samfylgdina í lífinu og allar góðu minningarnar um einstaka manneskju sem alltaf munu lifa. Innilegar samúðar- kveðjur sendum við ykkur, kæra fjölskylda. Hvíl í friði elsku frænka. Anna Guðný, Brynja og Brjánn Ingabörn og fjöl- skyldur. „Jú, ég slæ til, viking“ sagði Anna við mig í júní 2016. Það voru aðeins tvær vikur í tónleika með Music for a Summer Evening eftir George Crumb, óhemju krefjandi verki sem ég hugðist leika á sum- artónlistarhátíðinni minni en réð ekki við að læra í tæka tíð. Ég hafði færst of mikið í fang og það var bara eitt til ráða í stöðunni: að hringja í Önnu. Og hvort hún sló til – útkoman var einn af hápunkt- unum í sögu hátíðarinnar. Anna gat sigrast á hvaða verkefni sem var í tónlistinni. Það þurfti bara að stinga upp á því við hana og þá kom þetta blik í augun: áskorun tekið! Hún var töffari með stál- taugar en hún var líka með hjarta úr gulli. Oft var talað um hana sem afburða meðleikara, sem var auð- vitað rétt, en að mínum dómi var hún einfaldlega einhver albesti hljóðfæraleikari sem við höfum átt, í einleik jafnt sem kammer- músík. Það sannaði hún oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. En hún var jafn hógvær og hún var svöl og skemmtileg, virtist varla vita af tónlistargáfum sínum og heimsklassa píanisma. Mínar fyrstu minningar um Önnu eru úr Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem hún var píanó- kennari og meðleikari um árabil. Ég fylgdist með henni úr fjarlægð, hún spilaði betur en aðrir á píanó upp að því marki að 12 ára ég var örlítið smeykur við hana. Hvernig var hægt að slá aldrei feilnótu? Það skipti engu máli hvort hún var að leika með nemendum í 6. stigi eða á tónleikum með Diddú: trúnaður hennar við tónlistina var einstakur og órofinn. Í seinni tíð varð Anna mér dýr- mætur bandamaður. Við spiluðum saman á tvo flygla og á milli okkar myndaðist sterkur strengur. Mitt í veikindunum bauð hún mér heim og hlustaði á mig spila í gegnum nýja efnisskrá á Bösann sinn, opn- aði svo kampavín og bauð upp á bragðbestu köku Íslands. Hjá þeim Sigga var hversdagurinn víðsfjarri og veröldin svo opin og skemmtileg. Fráfall Önnu Guðnýjar er mik- ill og ótímabær missir fyrir ís- lenskt tónlistarlíf en mestur er þó missir fjölskyldu og ástvina. Þeim votta ég mína dýpstu samúð. Víkingur Heiðar Ólafsson. Við kveðjum í dag yndislega samstarfskonu og framúrskarandi listamann. Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1985 og var fastráðin við hljómsveitina frá 2005. Hún var einstakur starfsmaður sem tók öllum verkefnum fagnandi, fóstr- aði þau og vann af natni. Anna Guðný sinnti ekki aðeins píanóleik í hljómsveitinni, hún var einnig meðleikari í prufuspilum sem skipta hundruðum og studdi þar við hljóðfæraleikara sem sóttust eftir starfi hjá hljómsveitinni. Anna Guðný lék einnig á fjölda kammertónleika á vegum Sinfóní- unnar og kom margoft fram sem einleikari með hljómsveitinni, fyrst árið 1988 þegar hún lék pí- anókonsert Mozarts nr. 24. Hún hafði einstakan tón, framúrskar- andi tækni og hver einasta nóta hafði sinn sérstaka blæ. Við erum Önnu Guðnýju einnig afar þakklát fyrir starf hennar í þágu Vinafélags hljómsveitarinn- ar sem hún ásamt Sigurði eigin- manni sínum sinnti árum saman. Alúð, traust og fagmennska einkenndu Önnu Guðnýju. Hún var styðjandi og hvetjandi. Við er- um þakklát fyrir dýrmætt sam- starf, ómælt framlag til íslensks tónlistarlífs og fyrir hlýjuna, já- kvæðnina og seigluna. Við vottum Sigurði Ingva, fjöl- skyldu og vinum okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði, elsku Anna Guðný. Fyrir hönd Sinfóníuhljómsveit- ar Íslands, Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri. Mig langar að minnast minnar kæru vinkonu og samstarfskonu, elsku Önnu Guðnýjar. Það er svo sárt að sjá á bak henni, svo falleg og björt sem hún var. Við lékum saman í mörgum tónlistarhópum í gegnum árin og með okkur þróaðist innileg vinátta sem einkenndist af gleði, um- hyggjusemi og trausti og varð innilegri eftir því sem árin liðu. Hún bauð af sér einstaklega góð- an þokka og átti mjög auðvelt með að vinna með mismunandi tónlist- armönnum. Hún hafði sínar skoð- anir og gat einnig verið viðkvæm en umfram allt var það blíða henn- ar sem gerði hana svo sjarmer- andi. Aldrei heyrði ég hana hækka róminn við aðra, hún var einstak- lega hvetjandi og hallmælti aldrei öðrum píanistum og var örlát á hrós. Hún var dugnaðarforkur og þótti alltaf gott að setjast að flygl- inum á morgnana, hún sagði mér það oft. Hún brann fyrir tónlist- inni, fyrir Sinfó og vildi sjá veg allra sem mestan og bestan. Ógleymanlegar eru tónlistar- og samverustundir okkar með Fífil- brekkuhópnum sem Siggi stofnaði og stuð- og skemmtibandinu Sa- lon Íslandus. Það var óskaplega gaman að fá hana til að hlæja og hún var mikil stemningsmann- eskja og kenndi okkur vinkonun- um að njóta stundarinnar, helst með vel kældu freyði- eða kampa- víni. Við nutum þess að vera í dömuklúbbi með henni en hún var aðaldaman. Með harm í hjarta kveð ég hana en þakka um leið fyrir minningarnar. Ég votta elsku Sigga, sem bar hana á hönd- um sér, og fjölskyldu hennar og börnum mína innilegustu samúð og bið Guð og englana að styrkja þau og vernda. Sigrún Eðvaldsdóttir. Það er með sárum söknuði og mikilli virðingu sem ég kveð mína elskulegu nöfnu Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur. Þýðing hennar í íslensku tónlistarlífi undanfarna áratugi á sér fáar hliðstæður. Hún var píanóleikarinn sem gat allt. Hún var frumkvöðull á sínu sviði og gerði þeim ljóst, sem ekki vissu fyrir, að meðleikur á píanó er ákaflega krefjandi og gefandi starf. Orðið meðleikur er nú orðið fast í sessi og komið í stað „undir- leikur“, sem þótti ekki sérlega áhugavert starf á árum áður. Jafnvel má sjá á ekki svo ýkja gömlum efnisskrám að á eftir nafni píanóleikarans stóð orðið „aðstoðar“. Það er ekki lítil aðstoð sem felst í því að leika t.d. Kreut- zer-sónötu Beethovens með fiðlu- leikara. Anna Guðný var meðal þeirra allra fyrstu sem sérhæfðu sig í meðleik í námi sínu erlendis. Hún upphóf meðleikinn í æðra veldi og var stórkostleg fyrirmynd ann- arra píanóleikara. Þótt á engan sé hallað, þá var hún fremst meðal jafninga allan sinn feril. Hún sýndi og sannaði að til þess að skara fram úr í þessu starfi þurfti líka að vera frábær einleikari. Hún var það. Hún var jafnvíg á meðleik með hvaða hljóðfæri sem var, söng og ekki síst kammertón- list. Auk þess var hún fastráðinn píanóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands um árabil eða þar til veik- indin bundu enda á ferilinn. Það starf eitt og sér krefst mikillar sérhæfingar. Anna Guðný Guðmundsdóttir 40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.