Morgunblaðið - 22.09.2022, Side 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Sannarlega er frá nógu að segja
þegar kemur að Jörundi. Til dæmis
konunum í lífi hans, en þær voru
þrjár og ein þeirra er Guðrún
hundadagadrottning hér á Íslandi.
Hún á sér ævintýralega sögu sem ég
mun meðal annars koma inn á í mínu
prógrammi,“ segir Einar Már Guð-
mundsson rithöfundur, sem ætlar að
segja sögur af Jörundi hundadaga-
konungi á Söguloftinu í Landsnáms-
setrinu í Borgarnesi nk. laugardag,
24. september. Sýninguna kallar
hann 1809 – en það ár gerði Jörund-
ur byltingu á Íslandi.
„Svo skemmtilega vill til að ég er
fæddur 18.09 sem án punkts er ártal
byltingar Jörundar,“ segir Einar og
hlær og bætir við að hann hafi verið
unglingur þegar hann kynntist Jör-
undi í gegnum leikrit Jónasar Árna-
sonar, Þið munið hann Jörund.
„Þar var hann tengdur írskum
sjóaravísum og birtist sem grallari
sem hrekkti Dani. Seinna, þegar ég
var að skrifa mínar sögur, þá datt ég
inn í þetta tímabil, upphaf nútímans,
frá 1800 til 1830. Þá voru Skaftár-
eldar hér, franska byltingin úti í
heimi og upplýsingatíminn fylgdi í
kjölfarið. Stundum er talað um þetta
sem tíma afbrotanna en þegar ég fór
að kynna mér afbrotamennina þá
kom í ljós að þeir voru menn sem við
aðrar kringumstæður hefðu orðið
borgarar. Þetta voru oft menn sem
voru djarfari en flestir og ekki
fátækustu mennirnir.“
Nokkur ár í óreglu og spilafíkn
Jörundur fæddist 1780 í Kaup-
mannahöfn sem talinn er frekar
blómlegur tími þar. Uppgangur var í
samfélaginu og borgarastéttin að
fæðast.
„Jörundur kemur úr ágætis
aðstæðum heima fyrir. Þetta var
menningarheimili og H.C. Andersen
leitaði til dæmis til móður Jörundar
þegar hann var ungur maður, sagði
hana einu manneskjuna í heiminum
sem skildi sig. Jörundar var í fínum
skóla, en ef hann væri uppi í dag
hefði hann eflaust verið kallaður
ofvirkur. Hann var ágætur að læra
en undi sér ekki, vildi frekar vera við
höfnina en sitja á skólabekk.
Jörundur er holdgervingur ein-
staklingshyggjunnar og brennur
fyrir að gera eitthvað merkilegt.
Aðeins 14 ára er hann kominn á sjó-
inn og fer til Englands þar sem hann
dvelur í fimm ár og 19 ára er hann
kominn í Suðurhöfin. Hann vill
koma til baka ríkur og frægur og
hann er með alls konar viðskipta-
hugmyndir, sem kenna má við Eng-
land, sem hann vill kynna heima í
Danmörku.“
Ein af spurningunum, sem Einar
ætlar að spyrja á sýningunni, er
hver Jörundur hafi verið, þessi
manngerð sem veður í verkin og
veður af stað.
„Þetta er alltaf spurning með
manneskjur, hvort þær eru eins og
þær eru fæddar, eða verði eitthvað
út frá því sem þær lenda í. Jörundur
lendir í þessum málum hér á Íslandi,
þegar hann gerir byltingu 1809 og
lýsir Ísland sjálfstætt. Við það verða
ákveðin tímamót í lífi hans og næsti
kafli er í skugga byltingarinnar.
Honum er refsað. Trampe greifi vill
fá hann framseldan og hengja hann í
Danmörku fyrir landráð. Hann á
ekki afturkvæmt heim til sín í Dan-
mörku og þess vegna er hann á
þessu flandri um heiminn. Hann
eyðir nokkrum árum í óreglu og þró-
ar með sér spilafíkn. Meðan hann er
í fangelsum kemst ró á líf hans og
þar skrifar hann bæði bréf og bæk-
ur. Hann skrifast á við yfirvöld, vill
fá dóma mildaða og láta hleypa sér
út, en í kerfinu sjá menn að þarna er
maður sem veit allt um löndin fyrir
sunnan, til dæmis Tasmaníu, þar
sem hann dvaldi. Jörundur uppgötv-
aði að Tasmanía er ekki skagi út úr
Ástralíu heldur eyja, sem skipti
miklu máli þá, því það stytti sigl-
ingaleiðir um marga daga. Jörundur
er heillandi persóna og hann gerði
margt stórmerkilegt. Til dæmis
gerði hann drög að orðabók um
tungumál frumbyggja í Tasmaníu,
sem eru einu gögnin sem til eru um
þeirra tungumál, því þeim var
útrýmt.“
Lítil samúð með Nóru
Meðal þeirra spurninga sem Ein-
ar ætlar að velta upp á sýningunni
er hvort við Íslendingar værum
Englendingar ef bylting Jörundar
1809 hefði heppnast.
„Ég vona að fólk sé forvitið um
þessar spurningar, því á þessum
tíma var ekkert annað í stöðunni en
að við Íslendingar yrðum undir ein-
hverju stórveldi. Mér finnst áhuga-
vert að velta því upp hvað hefði
gerst ef við hefðum endað undir
Englendingum.“
Einar segir margt áhugavert
koma upp þegar líf Jörundar sé
skoðað.
„Til dæmis þriðja og síðasta kon-
an hans, hún Nóra, sem var frá
Írlandi. Hún var miklu yngri en Jör-
undur og hann kynntist henni í fang-
anýlendunni þegar hann handtók
hana, en hann komst þar í lögregl-
una. Mér finnst merkilegt að Nóra
tilheyri afbrotaflokki á sama tíma og
talað var um bófaflokka og óöld í
Árnessýslu og Kampsránið var
framið á Íslandi. Þegar Nóru er lýst
í heimildum þá er mjög lítil samúð
með henni. Hún var drykkfelld og
fór mikið fyrir henni og var ekki við
eina fjölina felld. Þegar baksaga
hennar er skoðuð kemur í ljós að
hún er mjög ung þegar hún verður
ófrísk og ekki ólíklegt að henni hafi
verið nauðgað. Barnið var tekið af
henni og hún jafnaði sig aldrei á því.
Hún er ráðin í vist á bóndabæ á
Englandi þar sem hún stal nokkrum
skildingum, og fyrir það fékk hún
lífstíðardóm í Tasmaníu. Allir sjá
hversu mikið ranglæti það er,“ segir
Einar og bætir við að Jörundur hafi
eytt miklum tíma í að skrifa ótal bréf
og spyrjast fyrir um barnið hennar.
„Alltaf er eitthvað nýtt að koma
fram tengt Jörundi og nýlega var
sett fram kenning um að hann hafi
verið samkynhneigður. Þetta er ekki
alveg úr lausu lofti gripið, því Jör-
undur og grasafræðingurinn ungi,
Sir William Hooker, sem kom með
byltingamönnunum til Íslands, þeir
voru nánir vinir. Þessir tímar buðu
ekki upp á að menn gætu opin-
berlega verið samkynhneigðir, en
Jörundur lýsir William vel og segir
hann alltaf hafa verið að bjarga sér.
Vináttan á milli þeirra var falleg,
hvort sem þeir voru samkynhneigðir
eða ekki, og William var þolinmóður
við vin sinn. Hann er sá síðasti sem
gefst upp á honum, en Jörundur
varð mjög erfiður, eins og títt er um
óreglusama menn.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Einar Már „Jörundur er holdgervingur einstaklingshyggjunnar og brennur fyrir að gera eitthvað merkilegt.“
Hefði eflaust verið kallaður ofvirkur
- Aðeins 14 ára er hann kominn á sjóinn og fer til Englands þar sem hann dvelur í fimm ár. 19 ára er
hann kominn í Suðurhöfin - Einar Már með sýningu um Jörund hundadagakonung á Söguloftinu
Hugarflug nefnist list-
ráðstefna Listaháskóla
Íslands sem haldin
verður á morgun,
föstudag, í húsnæði
skólans á Laugarnes-
vegi 91 frá kl. 9 til 15 en
opnunarviðburðurinn
fer hins vegar fram í
dag, fimmtudag kl. 16.
„Við stöndum á
vendipunkti ýmiskonar
áskorana loftslags-
breytinga, heimsfar-
aldurs, réttindabaráttu
og einnig stríðshörm-
unga í Evrópu með inn-
rás Rússa í Úkraínu.
Þetta eru sannarlega
viðsjárverðir tímar en við leitumst
við að greina stöðuna og hvað fram-
tíð ber í skauti sér. Það sem blasir
við er hin brýna nauðsyn á að hlúa
að samfélögum okkar, næra grunn-
gildin sem skipta mestu máli í lífi
heildarinnar og hvers einstaklings.
Hvernig tryggjum við best sam-
stöðu gegn ofríki og fyrir friði og
réttlæti? Hver eru þau gildi, hvernig
höldum við áfram, saman, inn í fram-
tíðina sem við vitum ekki hver er;
náttúran og tegundirnar sem saman
skapa vistkerfið sem við lifum í?
Hvernig sköpum við saman, hvað
dreymir okkur saman, heim sem
heldur utan um alla? Á Hugarflugi
Listaháskóla Íslands
2022 viljum við fjalla
um hvernig hver
manneskja er hluti af
heild, stundum mörg-
um heildum. Hvernig
hver upplifun og gjörð
er bundin stærra sam-
hengi. Hvernig við
flæðum, í stað þess að
standa föst; hvernig
við tengjumst sem
heild, frekar en að
standa ein; hvernig við
horfumst í augu við
þann möguleika að
ekkert eitt okkar geti
reitt fram lausn, held-
ur liggi hún í samtakamætt-
inum, nú og til framtíðar. Enginn er
eyland (e. Collective Care) er þema
Hugarflugs 2022,“ segir í tilkynn-
ingu um ráðstefnuna.
Lykilfyrirlesari hennar er Sonya
Lindfors, danshöfundur frá Kamer-
ún og Finnlandi, sem getið hefur sér
gott orð á Norðurlöndunum og víðar
fyrir dansverk sín og skrif en einnig
sem listrænn stjórnandi UrbanApa
sem í tilkynningu er sögð antí-rasísk
og samtvinnuð femínísk liststofnun í
Helsinki. Yfirskrift erindisins henn-
ar er „Attempting the impossible –
decolonial dreaming practices“.
Dagskrá og frekari upplýsingar má
finna á vef LHÍ, lhi.is.
Enginn er eyland
þema listráðstefnu
Sonya Lindfors
Ve
13
Við to rét
Pe
21 reynsla
Við fe
pa 13
•Gefur samstundis aukinn ljóma
•Örvar kollagenframleiðslu
HOLLY
WOOOD
GLOW
Þéttir slappa húð
á andliti og hálsi
20%
afsláttur af
HOLLYWOOD
GLOW
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ