Morgunblaðið - 22.09.2022, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
empire moviefreak.com EKKI MISSA AF ÞESSARI Í BÍÓ
Indie wire
FRÁBÆR GAMANMYND
Telegraph
AFTUR Í BÍÓ
KEMUR Í BÍÓ Á FÖSTUDAGINN
SÝND Í 3D Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL
FORSALA ER HAFINSTIGMAGNANDI SÁLFRÆÐITRYLLIR SEM HELDUR ÁHORFENDUM FÖSTUM
KEMUR Í BÍÓ Á FÖSTUDAGINN
FORSALA ER HAFIN
H
vor kragerne vender (Þar
sem krákurnar snúa við)
sem á ensku nefnist Per-
sona non grata eða Óvel-
komin persóna er fín frumraun hjá
danska leikstjóranum Lisu Jesper-
sen. Kvikmyndin segir frá Irinu
(Rosalinde Mynster), áður þekkt sem
Laura, sem fer aftur í heimabæ sinn,
þar sem hún ólst upp, til að mæta í
brúðkaup bróður síns (Adam Ild
Rohweder). Irina starfar nú sem rit-
höfundur í Kaupmannahöfn og hefur
fjarlægst fjölskyldu sína úr sveitinni
enda eru þeirra lifnaðarhættir í and-
stöðu við hennar. Hún er sú eina sem
er vegan í þessari nautgriparækt-
arfjölskyldu og á í opnu sambandi við
loftslagsbaráttumanninn og hip-
sterahöfundinn Benjamin (Thomas
Hwan). Hún hefur nýlega gefið út
bók um erfiða æsku sína, þar sem
hún skrifar einkum um Catrine
(Anne Sofie Wanstrup), konuna sem
lagði hana í einelti í barnæsku og þá
sem bróðir hennar er í þann mund að
fara að giftast.
Söguþráðurinn er sá sami og í
Hollywood-kvikmyndinni You Again
(2010) eftir Andy Fickman. Þar
kemst Marni (Kristen Bell) að því að
bróðir hennar (James Wolk) er að
fara að giftast konunni Joönnu
(Odette Annable) sem lagði hana í
einelti í menntaskóla. Marni ætlar
sér að afhjúpa sanna liti unnustunnar
og koma í veg fyrir brúðkaupið. Að
því sögðu er varla hægt að segja að
handrit Óvelkominnar persónu sé
mjög frumlegt og kemur það því á
óvart að Sara Isabella og Lisa Jes-
persen hafi meðal annars hlotið Ro-
bert-verðlaunin, dönsku kvikmynda-
verðlaunin, fyrir besta handritið.
Óvelkomin persóna fjallar hins
vegar ekki síður um fjölskylduerjur
og áskoranir í kynslóðabili sem
margir kannast eflaust við. Strax í
opnunaratriðinu skarast sjónarmið
Irinu og mömmu hennar, Jane
(Bodil Jørgensen). Þær eru í bíl á
leiðinni heim í sveitina þegar
mamma hennar segir frá því að ein-
hver hafi brotist inn í blómabúðina
hennar og stolið peningum. Fljót-
lega fara samræðurnar að snúast um
hvort fangelsisvist fyrir ungt fólk sé
réttlætanleg og góð fyrir samfélagið,
sem þær eru vitanlega ekki sammála
um.
Húmorinn er einnig mun dekkri
enda um danska mynd að ræða.
Stillt er upp mjög fyndinni, en ýktri,
mynd af bæði sveitalífinu og borgar-
lífinu sem virkar sem gagnrýni á
hvora tveggju lifnaðarhættina. At-
riði í teitinu er skýr gagnrýni á lífs-
sýn ungs fólks í dag. Um er að ræða
opnunarteiti á „loftslagslistasýn-
ingu“ eftir Benjamin og vin hans. Í
byrjun atriðisins er verið að taka
viðtal við listamennina tvo. Benja-
min útskýrir þar mikilvægi sýning-
arinnar en hinn stendur þögull við
hlið hans. Benjamin útskýrir fyrir
fréttaþulinum að ástæða þagnar vin-
arins sé að hann sé að mótmæla
loftslagsáhrifum. Í sama atriði er
einnig listatýpa með snák um háls-
inn eins og ekkert sé sjálfsagðara og
ein stelpa finnur sig knúna til að
segja Irinu að kærasti sinn sé ófær
um að fá standpínu vegna loftslags-
kvíða. Það er ekki skrítið að ein-
staklingur sem lifir í þessum heimi
eigi erfitt að finna sig í sveitinni.
Sjónrænt séð er þetta ríkuleg
mynd með áberandi litum tekin af
tökumanninum Manuel Alberto
Claro. Hann notar oft handhelda
tökuvél sem passar vel við atriðin
þar sem aðalpersónan er í miklu
ójafnvægi. Undarleg súm eða nær-
myndir er að finna á nokkrum stöð-
um í myndinni sem eru truflandi af
því að þau gera áhorfandann of með-
vitaðan um að verið sé að taka upp.
Þrátt fyrir ófrumlegan söguþráð
er Óvelkomin persóna í heild gott
byrjandaverk. Kvikmyndin er vel
heppnuð og mannleg kvikmynd sem
dregur upp trúverðuga mynd af
samskiptum innan fjölskyldna og
flóknum tengslum hennar við um-
hverfið. Auðvelt er að setja í spor
sögupersónanna og allir aðalleikarar
kvikmyndarinnar leysa sín atriði vel.
Flókin „Þrátt fyrir ófrumlegan söguþráð er Óvelkomin persóna í heild gott byrjandaverk. Kvikmyndin er vel
heppnuð og mannleg kvikmynd sem dregur upp trúverðuga mynd af samskiptum innan fjölskyldna og flóknum
tengslum hennar við umhverfið,“ segir rýnir um dönsku kvikmyndina Óvelkomin persóna eða Persona non grata.
Áskoranir í kynslóðabili
Bíó Paradís
Óvelkomin persóna / Persona non
grata bbbmn
Leikstjórn: Lisa Jespersen. Handrit:
Sara Isabella Jønsson Vedde og Lisa
Jespersen. Aðalleikarar: Rosalinde
Mynster, Bodil Jørgensen, Anne Sofie
Wanstrup, Adam Ild Rohweder og
Thomas Hwan. Danmörk, 2021. 91 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Bókamessan í Gautaborg hefst í
dag og stendur yfir til 25. sept-
ember og munu Einar Kárason og
Guðrún Eva Mínervudóttir rithöf-
undar koma þar fram á nokkrum
viðburðum. Messan er einn stærsti
bókmenntaviðburður Norðurlanda
og mikill fjöldi sem sækir hana.
Miðstöð íslenskra bókmennta er
með bás á henni og kynnir íslenskar
bókmenntir í samstarfi við Íslands-
stofu. Bækur Einars og Guðrúnar
Evu hafa notið mikilla vinsælda í
Svíþjóð, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Miðstöð íslenskra
bókmennta og mun Einar fjalla um
bók sína Þung ský sem kemur brátt
út í sænskri þýðingu. Einnig kemur
hann fram á viðburði á vegum
Gautaborgarháskóla og ræðir átök
og blóðsúthellingar á Sturlungaöld
við dr. Auði Magnúsdóttur.
Guðrún Eva mun fjalla um fjöl-
skyldutengsl og breytileg kven-
hlutverk í bók sinni Ástin, Texas
sem kom út á sænsku fyrr á árinu.
Guðrún Eva og
Einar á bókamessu
Rithöfundar Guðrún Eva og Einar.
Ráðstefna
tónlistarhátíðar-
innar Iceland
Airwaves verður
haldin 3. og 4.
nóvember í
Hörpu og við-
fangsefni hennar
er staða lifandi
tónlistar eftir
Covid-19, hlut-
verk útgefenda í dag, sameinandi
kraftur tónlistar í heimi átaka og
mikilvægi sjálfbærni í tónlist. Með-
al þátttakenda verða Marlene Tsuc-
hii sem vinnur náið með listamönn-
um á borð við Ariönu Grande og
Justin Bieber og Alex Bruford sem
er bókari og starfar m.a. fyrir Nick
Cave.
Kraftur tónlistar
í heimi átaka
Ariana Grande