Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
HJÁLPARTÆKI
fyrir athafnir daglegs lífs
Trönuhrauni 8 | 565 2885 | stod.is
Hreyfiþjálfi fyrir
hendur og fætur
16.990 kr.
Vitility smáhjálpartæki
- í matartímanum
- í endurhæfingunni
- við eldhúsverkin
- við lesturinn
- fyrir tómstundirnar
- fyrir lífið sjálft
Víða í Biblíunni er talað um sam-
kynhneigð sem synd, sérstaklega í
Gamla testamentinu. Þannig er
það einfaldlega og ekki hægt að
hylma yfir það. En þá er ekki tal-
að um það fyrst og fremst að vera
samkynhneigður, heldur er verið
að fordæma siði og venjur og
trúarbrögð Grikkja og annarra
sem litu frjálslega á kynferði
manna á þessum öldum. Páll post-
uli hefur vissulega samkynhneigð
á hornum sér en það sama gildir
um konur sem
hann vill ekki að
fái að tala í sam-
kunduhúsinu,
svo dæmi sé
tekið.
Allt annað
gildir um Jes-
úm. Til dæmis
minnist Jesús
Kristur aldrei á
samkynhneigð eða samkynhneigða.
Hann talar reyndar aldrei um kyn-
hneigð manna til eða frá. Honum
var slétt sama hvort menn væru
samkynhneigðir eða gagnkyn-
hneigðir eða eitthvað allt annað. Í
augum Jesú erum við fyrst og
fremst Guðs börn, hvort sem við
erum hvít eða svört, karlar eða
konur, rauðhærð eða dökkhærð,
samkynhneigð eða gagnkynhneigð.
Það undirstrikar hann oft og iðu-
lega með orðum sínum og gerðum.
Við megum ekki gleyma því að
samkynhneigð var talin sjálfsögð í
austurhluta Rómaveldis á tímum
Jesú. Jesús ólst upp og starfaði í
Galíleu og Júdeu, sem voru róm-
versk skatt- lönd, þar sem Gyð-
ingar voru meirihluti íbúa. Allt í
kringum Júdeu á dögum Jesú voru
margfalt fjölmennari ríki en land
Gyðinga. Þar voru til dæmis hinar
svokölluðu „Tíu borgir“ þar sem
Grikkir réðu ríkjum frá fornu fari.
Grikkir höfðu reyndar ráðið yfir
Júdeu að mestu frá tímum Alex-
anders mikla. Hjá Grikkjum og í
þeirra menningarheimi var sam-
kynhneigð ekkert tiltökumál.
Jesús stytti sér oft leið í gegn-
um borgirnar tíu á ferðum sínum
en aldrei minnist hann samt á
þetta atriði með samkynhneigðina.
Hann hefur þó efalaust þekkt vel
fordæmingarorð Gamla testament-
isins í garð samkynhneigðra. Um
þau voru helstu andstæðingar Jesú
aftur á móti ekki jafn þögulir og
fordæmdu þeir Grikki m.a. vegna
frjálslyndis þeirra gagnvart sam-
kynhneigðum. Jesús tók aldrei
þátt í slíkum árásum.
Allt snýst þetta síðan um hvern-
ig við lesum Biblíuna. Biblían varð
til á 1500 árum. Elstu textar henn-
ar eru frá 1400 f.Kr., þeir yngstu
frá um 100 e.Kr., eins og fjallað er
um hér í þessari bók. Árásir á
samkynhneigða nú, víða um ver-
öldina, eru oft dulbúnar í kristi-
legan búning, með tilvitnunum í
Biblíutexta, bæði úr Gamla testa-
mentinu og hinu nýja. Þannig hef-
ur það verið um langan aldur og
er enn, eins og dæmin sanna. Þeir
sem slíkt stunda gleyma því aftur
á móti að kristnir menn eiga að
lesa lögmál hins gamla sáttmála og
bréf Nýja testamentisins í ljósi
orða og kenningar Jesú. Í ræðum
sínum segir Jesús m.a:
„Dæmið ekki svo að þér verðið
ekki dæmdir“; „Þú skalt elska
náunga þinn eins og sjálfan þig“;
„Allt sem þér því viljið að aðrir
menn geri yður, það skuluð þér og
þeim gera“.
En þar með er því ekki haldið
fram að ekki sé sagt margt ljótt
um samkynhneigða í Biblíunni,
eins og ég sagði hér á undan. Það
sem þar stendur hefur líka verið
notað óspart til að ofsækja sam-
kynhneigða gegnum tíðina. Á því
getur kirkjan aldrei nógsamlega
beðist afsökunar. Hún ber meðal
annars og ásamt öðrum trú-
félögum þá skömm. Allt snýst
þetta, þegar á botninn er hvolft,
um val. Ég horfði eitt sinn á
ónefndan viðtalsþátt á RÚV.
Þetta var ágætur þáttur og oft
áhugaverður. Í þessum þætti var
gerð hörð hríð að Gamla testa-
menti Biblíunnar sem viðmæl-
endur stjórnenda fundu allt til
foráttu. Þar væri ekkert að finna
nema morð og stríð og reiðan
Guð. Best væri að reyna að snið-
ganga þetta rit. Um þetta voru
allir á sama máli og hlegið dátt
að vitleysunni í þessu forna riti.
Reyndar er furðu oft talað þann-
ig um Gamla testamentið og ekki
skrýtið því að það var meira að
segja lengi vel tíska innan kirkj-
unnar að lesa helst ekkert úr því
í messum og reyna að sniðganga
það að mestu. Vissulega eru ýms-
ir textar í Gamla testamentinu
óhugnanlegir, blóðugir og, að því
er okkur finnst nú, andstæðir
lífsskoðun okkar og almennum
mannréttindum. En þá má ekki
gleyma því að þessir textar voru
skrifaðir fyrir meira en 2500
árum, inn í allt aðrar aðstæður
en okkar. Samt geyma margir
þeirra fegurstu orð sem hafa ver-
ið skrifuð í sögu mannkyns. En
um það voru spjallararnir í sjón-
varpsþáttinum góða algerlega
óvitandi.
Gleymum því ekki heldur að á
öllum öldum hafa þessir textar
verið túlkaðir inn í líf og að-
stæður fólks eins og þær eru
hverju sinni. Í þúsundir ára hafa
kristnir og gyðinglegir guðfræð-
ingar túlkað Biblíuna. Á vissan
hátt tók kristindómurinn í arf
þessa túlkunarhefð gyðingdóms-
ins, það er að segja þá hefð að
nauðsynlegt sé fyrir hverja kyn-
slóð að túlka textana upp á nýtt.
Þannig er ekki hægt að lesa
texta hráan án þess að túlka
hann og túlkanirnar eru margar
og ólíkar.
[…] Við höfum séð hér á und-
an að Jesús talar aldrei um sam-
kynhneigð þótt hann hafi örugg-
lega oft mætt samkynhneigðum á
sinni leið, sérstaklega þegar
hann var í grísku borgunum tíu,
Dekapólis. Hinu er svo líka nauð-
synlegt að átta sig á, að hugar-
heimur Biblíunnar er algerlega
framandi stöðu sambúðar sam-
kynhneigðra jafnt sem gagnkyn-
hneigðra nú. Ást og kynlíf voru
bundin í reglur og siði og hefðir
ættbálkasamfélagsins, alveg eins
og hjónabandið. Biblían veg-
samar þó kynlíf og erótíska ást,
samanber Ljóðaljóðin, en aðeins
milli karls og konu. Hún veg-
samar ekki á sama hátt kynlíf
samkynhneigðra. Það verðum við
að viðurkenna. Það þýðir þó ekki
að við getum fordæmt það á
grundvelli hennar. Við skulum
nefna annað dæmi sem skýrir
þetta betur. Er talað um konur
sem presta í Biblíunni? Nei, það
er hvergi gert. Konur eru ekki
prestar í Biblíunni. Þýðir það þá
að konur geti ekki og eigi ekki að
vera prestar? Þannig túlka sumir
Biblíuna. En aðrir túlka hana á
þann hátt að öll séu jöfn, karlar
og konur, sköpuð í Guðs mynd til
þess að þjóna honum. Á sama
hátt túlkum við svo að kynhneigð
skipti engu máli andspænis Guði.
Öll erum við sköpuð í hans mynd,
samkynhneigð jafnt sem gagn-
kynhneigð, karlar jafnt sem kon-
ur, óháð lit, kynþætti eða trú.
Við erum öll eitt, jafngild og
jafnmikils virði. Eins og Páll
postuli, sá sem sagði að konan
ætti að þegja í samkunduhúsinu,
bendir sjálfur á:
Hér er hvorki gyðingur, né
grískur, þræll né frjáls maður,
karl né kona. Þið eruð öll eitt í
Kristi. (Gal. 3)
Bókarkafli | Í bókinni Allt sem þú vilt vita um Biblíuna leiðir séra Þórhallur Heimisson lesendur í gegnum hina mörgu og tor-
ræðu kafla Biblíunnar, fjallar um ritunarsögu hennar og söguheim, helstu þætti og kafla.
Er samkynhneigð synd samkvæmt Biblíunni?
Ljósmynd/Guðrún Karls Helgudóttir
Túlkun Viðhorf kirkj-
unnar til samkyn-
hneigðar hefur breyst
mikið á síðustu áratugum
eins og sjá mátti á skreyt-
ingu framan við Grafar-
vogskirkju í tilefni Hin-
segin daga fyrir stuttu.