Morgunblaðið - 21.12.2022, Síða 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022
Húsgögn og
fylgihlutir
vigt.is vigtvigt
STAKSTEINAR
Sérkennileg (sér-)
hagsmunagæsla
Ámeðan Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri gefur fólk
saman í sólinni í Suður-Afríku
gætir starfandi borgarstjóri,
Einar Þorsteinsson, að eigin
sögn hagsmuna
borgarbúa með
því að leyna þá
upplýsingum
um samning
Ljósleiðarans og
Sýnar um kaup
þess fyrrnefnda
á eignum hins
síðarnefnda.
Þeir miklu viðskiptahagsmun-
ir, sem enginn má vita hverjir
eru, felast meðal annars í að
skuldsetja þetta dótturfyrir-
tæki Orkuveitunnar, og þar með
skattgreiðendur í Reykjavík, um
marga milljarða króna.
Einar starfandi borgarstjóri
kvartaði yfir því í borgar-
stjórn í gær að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri að setja upp „leikrit“
þegar hann óskaði umræðu og
upplýsinga, og að hann væri „að
gera allt tortryggilegt og sjá
spillingu í hverju horni, og hika
ekki við það að nota stór og ljót
orð og gera fólki upp annarlegan
ásetning“.
En vandinn er sá að sjálfstæð-
ismenn í borgarstjórn þurfa
ekki mjög fjörugt ímyndunarafl
til að fyllast tortryggni þegar
engar upplýsingar er að hafa um
fyrirtæki í eigu borgarinnar, sér
í lagi þegar þetta fyrirtæki er á
einhverri stórundarlegri og óút-
skýrðri leið í rekstri sínum, sem
var þó nógu undarlegur fyrir.
Og því miður verða þessi
viðbrögð hins nýja borgar-
fulltrúa enn til þess að menn
hljóta að spyrja sig hvað honum
gangi til að gerast í hverju mál-
inu á fætur öðru hlaupastrákur
ekki-starfandi borgarstjórans.
Einar
Þorsteinsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Hríseyingar sækja vínið í búðina
lÁTVR hefur samið við Hríseyjarbúð-
ina um afhendingu á vörum úr vefbúð
Þjónusta við íbúa og aðra sem dvelj-
ast í Hrísey hefur batnað til muna
eftir að ÁTVR samdi við Hríseyj-
arbúðina um afhendingu á vörum
úr vefbúð Vínbúðarinnar. Greint
er frá þessu á vef ÁTVR og segir
þar að markmiðið sé að bæta enn
frekar þjónustu við viðskiptavini í
Hrísey sem geti nú nálgast allt það
úrval vara sem til er í Vínbúðunum
á hverjum tíma. Áfengið er pantað
af vefnum og afhent kaupendum
án endurgjalds í Hríseyjarbúðinni.
Þetta er ný þjónusta hjá ÁTVR.
„Hingað til hefur afhending vara úr
Vefbúðinni einskorðast við Vínbúð-
irnar og vöruafgreiðslu á Stuðlahálsi,
en nú hefur Hríseyjarbúðinni verið
bætt við í tilraunaskyni. Það er von
Vínbúðanna að þessi þjónustamælist
vel fyrir,“ segir á vef Vínbúðanna.
Díana Sveinbjörnsdóttir, verslun-
arstjóri Hríseyjarbúðarinnar, baðst
undan viðtali þegar Morgunblaðið
falaðist eftir því í gær og vísaði á
ÁTVR.
Hríseyjarbúðinni er lýst sem lífæð
samfélagsins þar. Hún hefur verið
rekin síðustu ár af félagi sem stofnað
var af stórum hluta eyjarskeggja og
sumarhúsaeigenda í eynni. Búðin er
opin árið um kring. Auk matar og
nauðsynjavöru er einnig rekin af-
greiðsla fyrir Póstinn í búðinni auk
þess sem hægt er að taka út reiðu-
fé og sjálfsafgreiðslukassi er opinn
allan sólarhringinn. hdm@mbl.is
VerslunValgeirMagnússon, formaður
stjórnar, ogDíana Sveinbjörnsdóttir,
verslunarstjóri í Hríseyjarbúðinni.
Fyrsta borgar-
línuhverfið rís
lRíkið selur frá sérKeldnalandið
Ríkissjóður og Betri samgöngur
ohf. hafa gengið frá samningi sín
á milli um að félagið taki við land-
svæðinu við Keldur og Keldnaholt
ásamt þeim réttindum og skyldum
sem því tengjast.
Kaupverðið er fimmtán milljarð-
ar króna og er greitt með útgáfu
nýrra hluta í Betri samgöngum.
Svæðið sem um var samið er um
116 hektarar. Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra,
og Davíð Þorláksson, fram-
kvæmdastjóri Betri samgangna,
undirrituðu samninginn.
Í samtali við Morgunblaðið
segir Davíð að uppbygging gæti
mögulega hafist árið 2025 en
deiliskipulagsgerð hefst haustið
2023. Nýja hverfið mun vera það
fyrsta sinnar tegundar á Íslandi
en hverfið verður byggt í kringum
borgarlínuna.
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
2025 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Davíð Þor-
láksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, undirrituðu samninginn.