Morgunblaðið - 21.12.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR
Erlent 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022
UPPLIFÐU JÓLIN
Hægeldaður Þorskur
aspas, möndlur, noisette hollandaise, hangikjöt
Hreindýra Carpaccio
trönuber, pekan hnetur, gruyére ostur
Gljáð Lambafillet
seljurót, rauðkál, laufabrauð
Hvítsúkkulaði „Blondie“
sýrð kirsuber, lakkrís, möndlur
10.800 kr.
VEGAN JÓL
Seljurótar tartar
wasabi, sellerí, appelsín
Rauðrófu Carpaccio
heslihnetur, piparrót, klettasalat
Grillaður GrænnAspas
kjúklingabaunir, ostrusveppir,
kremað bankabygg
Risalamande
möndlur, vanilla, kirsuber
9.400 kr.
JÓLALEYNDARMÁL
MATARKJALLARANS
6 réttir að hætti kokksins
-leyfðu okkur að koma þér á óvart
Eldhúsið færir þér upplifun þar
sem fjölbreytni er í fyrirrúmi
12.500 kr.
JÓL 2022
Aðalstræti 2, 101 Rvk. | s. 558 0000 | matarkjallarinn.is
Tryggðu þér borð á matarkjallarinn.is
hann á sprengjur sem bera allt upp í
rúmlega 900 kílóa sprengihleðslu. Líkt
ogmeðmörg önnur vopn semBanda-
ríkin hafa veitt Úkraínu eru takmörk
fyrir því hve langt sprengjurnar
drífa. Mun búnaðurinn að líkindum
takmarka drægni við 25 kílómetra. Er
það gert til að Úkraínuher noti ekki
vopnasendingar Bandaríkjanna og
NATO til að ráðast gegn skotmörk-
um djúpt inni á rússnesku landsvæði.
Með því er vonast til að hægt verði að
koma í veg fyrir stigmögnun átaka.
Þá hafa heræfingar Rússa og
Hvít-Rússa, auk heimsóknar Rúss-
landsforseta þangað, leitt til varnar-
uppbyggingar við landamærin Úkra-
ínumegin.
Sameiginlegar æfingar sjóherja Kína
og Rússlands á Austur-Kínahafi hefj-
ast í dag, miðvikudag. Eru þær liður
í sívaxandi samstarfi ríkjanna í þess-
um heimshluta. Varnarmálaráðuneyti
Rússlands segir flotann munu skjóta
föstum skotum á æfingunni.
„Virki þáttur þessarar æfingar fel-
ur meðal annars í sér sameiginlegar
eldflauga- og skotárásir gegn loft-
förum, skotárásir gegn sjóförum og
sameiginlegar kafbátavarnir,“ segir í
tilkynningu varnarmálaráðuneytisins.
Rússar munu senda fjögur herskip
á æfinguna, þ.e. eldflaugabeitiskipið
Varyag, systurskipMoskvu sem sökkt
var undan ströndum Úkraínu fyrr á
þessu ári, freigátu og tvær korvettur.
ÞámunuKínverjar senda tvo tundur-
spilla, tvö vopnuð eftirlitsskip, birgða-
skip og díselknúinn kafbát. Eins má
gera ráð fyrir orrustuþotum frá Kína.
Vitlaus vopn verða snjöll
Pentagon, varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna, er sagt vera að undir-
búa nýja vopnasendingu til Úkraínu,
jafnvel í þessari viku. Í pakkanumkann
að leynast flókinn rafeindabúnaður
sem breytir venjulegum fallsprengj-
um í nákvæm snjallvopn. Búnaðinn,
semm.a. inniheldur GPS-stýringu,má
tengja við ólíkar tegundir fallsprengja
og hefur Bandaríkjaher t.a.m. notað
Flotinn ræstur út til æfingar
lSameiginlegar æfingar sjóherja Kína og Rússlands hefjast í daglÆfa árásir
gegn loft- og sjóförum á Austur-KínahafilBandaríkin undirbúa vopnasendingu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ljósmynd/Varnarmálaráðuneyti Rússlands
Eldflaugabeitiskip Flaggskip Kyrrahafsflota Rússlands, Varyag, sést hér sigla til æfingar frá Vladivostok.
Fyrrverandi einkaritari fanga-
búðastjóra nasista hefur verið
fundinn sekur um aðild að drápi
yfir 10.500 manns. Sú sem um ræðir
heitir Irmgard Furchner, 97 ára.
Árin 1943 til 1945 starfaði hún í
fangabúðunum Stutthof í norður-
hluta Póllands. Furchner hefur nú
verið dæmd í tveggja ára skilorðs-
bundið fangelsi fyrir störf sín þar.
Búðirnar opnuðu í september
1939 og voru reknar óslitið til 9. maí
1945, eða allt þar til Rauði herinn
frelsaði fangana þar. Talið er að
110.000 fangar hafi verið vistaðir
í búðunum og voru allt að 65.000
þeirra myrtir. Var fólkið ýmist skot-
ið, tekið af lífi í gasklefum eða ör-
magnaðist vegna þrælkunarvinnu
og skelfilegs aðbúnaðar. Sjálf var
Furchner táningur að aldri þegar
hún vann í búðunum. Hún heyrði
hins vegar beint undir fanga-
búðastjórann og SS-yfirmanninn
Paul-Werner Hoppe, hvaðan allar
skipanir bárust. Hoppe var árið
1955 dæmdur til níu ára fangels-
isvistar fyrir stjórnunarstörf sín í
fangabúðunum. Hann lést árið 1974,
64 ára gamall.
Lögmaður Furchner sagði fyrir
dómi vafa leika á því hvað hún vissi
í raun og veru. Sjálf sagði hún fátt
fyrir dómi. Það helst að hún sæi
eftir tíma sínum í fangabúðunum.
Ritari sekur um aðild að
drápi á yfir 10.000 manns
lHeyrði beint undir fangabúðastjórann á táningsaldri
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
AFP
Sek Andlit Furchner var falið.
Mætti óvænt til
framlínuborgar
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti
mætti óvænt til framlínuborgar-
innar Bakhmút í Donetsk-héraði
hvar innrásarlið Rússlands hefur
undanfarna mánuði skipst á skot-
um við hersveitir heimamanna.
Stappaði forsetinn stáli í hermenn
sína og veitti sumum þeirra viður-
kenningar fyrir afrek á vígvell-
inum. Heimsóknir sem þessi eru
almennt sagðar mjög jákvæðar
fyrir bæði móral og baráttuanda
hermanna.
„Ég tel hetjur Bakhmút eiga
skilið það sama og allir aðrir – að
börn þeirra og fjölskyldur séu
örugg og að þeim sjálfum sé hlýtt
og búi við góða heilsu,“ sagði
Selenskí m.a. við fréttamenn sem
fylgdust með heimsókninni.
Þá sagði Úkraínuforseti Rússa
þegar hafa misst 99 þúsund
hermenn frá því að innrás þeirra
hófst fyrir um 10 mánuðum. Vert
er að taka fram að ekki er hægt að
staðfesta þessa tölu. Mannfall er
þó gríðarlegt.
AFP
Vígvöllur Úkraínuforseti sést hér
veita hermanni viðurkenningu.
ÚKRAÍNA
Þjóðverjar hafa skilað 20 menningarminjum aftur
til Nígeríu þar sem stytturnar voru teknar ófrjálsri
hendi þegar breski herinn fór árið 1897 um vestur-
afríska konungsríkið Benín. Þar er nú fylkið Edo í
Suður-Nígeríu. Er um að ræða Benín-bronsið svo-
kallaða, þúsundir járnskúlptúra og fílabeinsútskurð
sem flutt var til Evrópu og Bandaríkjanna. Fleiri
vilja nú skila minjunum aftur til síns heima.
Þjóðverjar skila Benín-bronsi
AFP /Kola Sulaimon