Morgunblaðið - 21.12.2022, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022
Mokað Skóflurnar koma sér vel þegar moka þarf frá bílunum eftir fannkomu síðustu helgar. Þeir sem ekki áttu skóflur hafa rokið út í búð, eins og fram kom í Morgunblaðinu í vikunni.
Kristinn Magnússon
„Virkustu mannhat-
ursmaskínur og dráps-
vélar allra tíma voru
hin guðlausu ríki 20.
aldarinnar, Sovétríkin,
Þýskaland nasismans
og Kína. Nú í dag
heldur Norður-Kórea
uppi merki hins guð-
lausa samfélags, og
síst er mannúðinni
fyrir að fara þar.
Skyldi vera samhengi
á milli guðleysisstefnunnar, haturs-
ins á kristindóminum og grimmd-
arinnar og mannfyrirlitningarinnar
sem þessar helstefnur ólu af sér?
Alla vega ættum við að gefa því
gaum hvað gerist þegar Jesú Kristi
er rýmt út úr lífi einstaklinga og
samfélags – eins og virðist keppi-
kefli svo margra sem ráða uppeldi
og skoðanamótun á Íslandi í dag.
Við verðum vitni að útbreiddri
trúarfælni og gegndarlaust er blás-
ið að glæðum andúðar á kirkju og
kristni. Hvað býr þar að baki?
Sannleiksást? Réttlætiskennd?
Frelsishugsjón? Draumurinn um
hið guðlausa samfélag – eða bara
geðvonska?“
Spurningunum sem herra Karl
Sigurbjörnsson varpaði fram í pre-
dikun í Kópavogskirkju á gamlárs-
dag 2017 verður hver og einn að
svara fyrir sig. Í
vantrú á handleiðslu
hins góða finnst svarið
hins vegar ekki, held-
ur í lifandi trú á kær-
leikann – á Guð í al-
heimi og í okkur
sjálfum. Í trúnni finn-
ast ekki svör við öllum
okkar spurningum en
við vitum að aðeins sá
sem þykist vita nóg
spyr ekki. „Enginn
finnur, sem einskis
leitar. Og sá einn leit-
ar, sem skilur, að honum er ein-
hvers vant,“ skrifaði herra Sigur-
björn Einarsson biskup í hugvekju
sem birtist í Morgunblaðinu í febr-
úar 2008: „Vitsmunadramb, þekk-
ingarhroki, oflæti vegna gáfna og
lærdóms fær þunga dóma bæði í
helgum ritningum og fyrir dómstóli
lífsins og reynslunnar fyrr og síð-
ar.“
Trúin tortryggð
Sá er ekki trúir hefur ekki þörf
fyrir að spyrja. Í veraldarhyggju
trúleysis, hraða samtímans og vel-
megun er hættan sú að andleg nær-
ing verði fábreytileg og innihalds-
laus. Aðeins það sem hægt er að
kaupa, grípa og eignast er einhvers
virði. Trúin á Guð er gerð útlæg úr
skólum og opinberu lífi. Að þiggja
kristna blessun er litið hornauga.
Trúin er tortryggð og skorið á
kristnar rætur. Kennimaðurinn
Sigurbjörn Einarsson varaði oft og
iðulega við því að í hugsunarlausri
velsæld og veraldarhyggju létum
við „helgidóminn veðrast og fylla
alla forgarða heiðnum hugsmíðum“.
Sigurður Sigurjónsson, einn far-
sælasti leikari landsins, sagði að
spurning Kolbrúnar Bergþórs-
dóttur blaðamanns um hvort hann
væri trúaður væri stór og til væru
mörg og flókin svör. Í viðtali sem
birtist í Morgunblaðinu 2009 sagð-
ist Sigurður hafa velt trúmálum
talsvert fyrir sér: „Já, ég er trúað-
ur maður og hef lesið talsvert um
trúmál. Ég sæki kirkju og mér líð-
ur vel í kirkjunni minni. Ég trúi á
þær leiðbeiningar sem eru settar
fram í kristninni. Þær eru umferð-
arreglurnar okkar. Fallegar reglur
sem við eigum að fara eftir. Það
tekst ekki alltaf en breytir ekki því
að ég trúi á þær.“
Líklegast er óhætt að segja að
flestir geti tekið undir með leik-
aranum sem játar trú sína en við-
urkennir um leið að sér takist ekki
alltaf að fylgja orði Krists – um-
ferðarreglunum. Í samtímanum er
það meiri áskorun en oft áður. Í
skjóli samfélagsmiðla höfum við
orðið óheflaðri og harkalegri hvert
við annað. Berum minni virðingu
fyrir ólíkum skoðunum. Erum
tilbúin til að særa og meiða sam-
ferðafólk með stóryrðum og
sleggjudómum. Í mörgu er um-
burðarlyndið á undanhaldi og þar
eiga báðir sök; trúleysinginn og
trúmaðurinn sem gengur gegn
kærleiksorði Krists.
Andleg næring
Á jólum býðst okkur ekki aðeins
andleg næring heldur fáum við
einnig staðfestingu á því að kristin
trú byggist á trausti á orðum og
persónu Jesú Krists. „Hann vekur
það traust á sér, að maður vill
þiggja það að fylgja honum og lofa
honum að hjálpa sér til þess að sjá
lífið og tilveruna í ljósi hans,“ skrif-
aði Sigurbjörn í hugvekju í mars
2008. Þannig sjáum við „allt
sköpunarverkið með undrun þess
og dásemdum, gátum þess og
skuggum, í sama ljósi“. Trúin og
traustið á Krist svari ekki öllu og
leysi ekki allar gátur. En öll getum
við notið ljóssins ef við viljum taka
á móti því.
Kveikt er ljós við ljós,
burt er sortans svið.
Angar rós við rós,
opnast himins hlið.
Niður stjörnum stráð,
engill fram hjá fer.
Drottins nægð og náð
boðin alþjóð er.
(Stefán frá Hvítadal)
Jólin eru hátíð ljóss og friðar, há-
tíð gleði, fegurðar og hins sanna og
góða. Þegar við fögnum komu frels-
arans öðlumst við ró hugans. Helgi
jólanna stendur okkur öllum til
boða ef við opnum hjartað fyrir
ljósinu. Guð hvorki neyðir okkur né
þvingar til að taka á móti Jesú.
Hann býður öllum sem vilja leið-
arljós kærleika og vonar.
Kom blessuð, ljóssins hátíð, – helgi þín
minn hug og vilja göfgi, vermi, fylli,
svo máttug verði og heilög hugsun mín
og hörpu mína Drottins andi stilli
…
„Ó, gef mér barnsins glaðan jólahug,
við geisla ljósadýrðar vært er sofnar.
Þá hefur sál mín sig til þín á flug,
og sérhvert ský á himni mínum rofnar.“
(Guðmundur Guðmundsson)
Ég óska lesendum Morgunblaðs-
ins og landsmönnum öllum gleði-
legra jóla.
Óli Björn Kárason » Jólin eru hátíð ljóss
og friðar, hátíð gleði,
fegurðar og hins sanna
og góða. Þegar við fögn-
um komu frelsarans öðl-
umst við ró hugans.
Óli Björn Kárason
Höfundur er formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
„Kveikt er ljós við ljós“