Morgunblaðið - 21.12.2022, Page 13

Morgunblaðið - 21.12.2022, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 Mokað Skóflurnar koma sér vel þegar moka þarf frá bílunum eftir fannkomu síðustu helgar. Þeir sem ekki áttu skóflur hafa rokið út í búð, eins og fram kom í Morgunblaðinu í vikunni. Kristinn Magnússon „Virkustu mannhat- ursmaskínur og dráps- vélar allra tíma voru hin guðlausu ríki 20. aldarinnar, Sovétríkin, Þýskaland nasismans og Kína. Nú í dag heldur Norður-Kórea uppi merki hins guð- lausa samfélags, og síst er mannúðinni fyrir að fara þar. Skyldi vera samhengi á milli guðleysisstefnunnar, haturs- ins á kristindóminum og grimmd- arinnar og mannfyrirlitningarinnar sem þessar helstefnur ólu af sér? Alla vega ættum við að gefa því gaum hvað gerist þegar Jesú Kristi er rýmt út úr lífi einstaklinga og samfélags – eins og virðist keppi- kefli svo margra sem ráða uppeldi og skoðanamótun á Íslandi í dag. Við verðum vitni að útbreiddri trúarfælni og gegndarlaust er blás- ið að glæðum andúðar á kirkju og kristni. Hvað býr þar að baki? Sannleiksást? Réttlætiskennd? Frelsishugsjón? Draumurinn um hið guðlausa samfélag – eða bara geðvonska?“ Spurningunum sem herra Karl Sigurbjörnsson varpaði fram í pre- dikun í Kópavogskirkju á gamlárs- dag 2017 verður hver og einn að svara fyrir sig. Í vantrú á handleiðslu hins góða finnst svarið hins vegar ekki, held- ur í lifandi trú á kær- leikann – á Guð í al- heimi og í okkur sjálfum. Í trúnni finn- ast ekki svör við öllum okkar spurningum en við vitum að aðeins sá sem þykist vita nóg spyr ekki. „Enginn finnur, sem einskis leitar. Og sá einn leit- ar, sem skilur, að honum er ein- hvers vant,“ skrifaði herra Sigur- björn Einarsson biskup í hugvekju sem birtist í Morgunblaðinu í febr- úar 2008: „Vitsmunadramb, þekk- ingarhroki, oflæti vegna gáfna og lærdóms fær þunga dóma bæði í helgum ritningum og fyrir dómstóli lífsins og reynslunnar fyrr og síð- ar.“ Trúin tortryggð Sá er ekki trúir hefur ekki þörf fyrir að spyrja. Í veraldarhyggju trúleysis, hraða samtímans og vel- megun er hættan sú að andleg nær- ing verði fábreytileg og innihalds- laus. Aðeins það sem hægt er að kaupa, grípa og eignast er einhvers virði. Trúin á Guð er gerð útlæg úr skólum og opinberu lífi. Að þiggja kristna blessun er litið hornauga. Trúin er tortryggð og skorið á kristnar rætur. Kennimaðurinn Sigurbjörn Einarsson varaði oft og iðulega við því að í hugsunarlausri velsæld og veraldarhyggju létum við „helgidóminn veðrast og fylla alla forgarða heiðnum hugsmíðum“. Sigurður Sigurjónsson, einn far- sælasti leikari landsins, sagði að spurning Kolbrúnar Bergþórs- dóttur blaðamanns um hvort hann væri trúaður væri stór og til væru mörg og flókin svör. Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu 2009 sagð- ist Sigurður hafa velt trúmálum talsvert fyrir sér: „Já, ég er trúað- ur maður og hef lesið talsvert um trúmál. Ég sæki kirkju og mér líð- ur vel í kirkjunni minni. Ég trúi á þær leiðbeiningar sem eru settar fram í kristninni. Þær eru umferð- arreglurnar okkar. Fallegar reglur sem við eigum að fara eftir. Það tekst ekki alltaf en breytir ekki því að ég trúi á þær.“ Líklegast er óhætt að segja að flestir geti tekið undir með leik- aranum sem játar trú sína en við- urkennir um leið að sér takist ekki alltaf að fylgja orði Krists – um- ferðarreglunum. Í samtímanum er það meiri áskorun en oft áður. Í skjóli samfélagsmiðla höfum við orðið óheflaðri og harkalegri hvert við annað. Berum minni virðingu fyrir ólíkum skoðunum. Erum tilbúin til að særa og meiða sam- ferðafólk með stóryrðum og sleggjudómum. Í mörgu er um- burðarlyndið á undanhaldi og þar eiga báðir sök; trúleysinginn og trúmaðurinn sem gengur gegn kærleiksorði Krists. Andleg næring Á jólum býðst okkur ekki aðeins andleg næring heldur fáum við einnig staðfestingu á því að kristin trú byggist á trausti á orðum og persónu Jesú Krists. „Hann vekur það traust á sér, að maður vill þiggja það að fylgja honum og lofa honum að hjálpa sér til þess að sjá lífið og tilveruna í ljósi hans,“ skrif- aði Sigurbjörn í hugvekju í mars 2008. Þannig sjáum við „allt sköpunarverkið með undrun þess og dásemdum, gátum þess og skuggum, í sama ljósi“. Trúin og traustið á Krist svari ekki öllu og leysi ekki allar gátur. En öll getum við notið ljóssins ef við viljum taka á móti því. Kveikt er ljós við ljós, burt er sortans svið. Angar rós við rós, opnast himins hlið. Niður stjörnum stráð, engill fram hjá fer. Drottins nægð og náð boðin alþjóð er. (Stefán frá Hvítadal) Jólin eru hátíð ljóss og friðar, há- tíð gleði, fegurðar og hins sanna og góða. Þegar við fögnum komu frels- arans öðlumst við ró hugans. Helgi jólanna stendur okkur öllum til boða ef við opnum hjartað fyrir ljósinu. Guð hvorki neyðir okkur né þvingar til að taka á móti Jesú. Hann býður öllum sem vilja leið- arljós kærleika og vonar. Kom blessuð, ljóssins hátíð, – helgi þín minn hug og vilja göfgi, vermi, fylli, svo máttug verði og heilög hugsun mín og hörpu mína Drottins andi stilli … „Ó, gef mér barnsins glaðan jólahug, við geisla ljósadýrðar vært er sofnar. Þá hefur sál mín sig til þín á flug, og sérhvert ský á himni mínum rofnar.“ (Guðmundur Guðmundsson) Ég óska lesendum Morgunblaðs- ins og landsmönnum öllum gleði- legra jóla. Óli Björn Kárason » Jólin eru hátíð ljóss og friðar, hátíð gleði, fegurðar og hins sanna og góða. Þegar við fögn- um komu frelsarans öðl- umst við ró hugans. Óli Björn Kárason Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. „Kveikt er ljós við ljós“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.