Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL24 • Olíulitir • Akrýllitir • Vatnslitir • Trélitir • Trönur • Blindrammar • Strigi • Penslar • Spreybrúsar • Teikniborð • Gjafasett • Teikniborð • Ljósaborð • Skissubækur ... og margt fleira Þess vegna leggjum við mikinn metnað í myndlistarvörurnar okkar. Listin er eilíf SLIPPFÉLAGIÐ Fellsmúla 26 og Skútuvogi 2, Reykjavík, S: 588 8000 Dalshrauni 11, Hafnarfirði, S: 588 8000 Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, S: 421 2720 Austurvegi 58, Selfossi, S: 482 1250 Gleráreyrum 2, Akureyri, S: 461 2760 Opið: 8-18 virka daga / 10-14 laugardaga slippfelagid.is Demantsbrúðkaup Stjörnuspá 21.mars - 19. apríl A HrúturÞú nálgast viðfangsefni þín af mikilli sannfæringu: það gerir þig fram úr hófi verndandi. Fólk tekur eftir því hvað þú sendir frá þér sterka strauma. 20. apríl - 20.maí B Naut Ígrundaðu á hvern máta þú getur bætt heilsuna í dag.Vertu þolinmóður og leyfðu hlutunum að taka á sig mynd áður en þú hleypur til og grípur til aðgerða. 21.maí - 20. júní C TvíburarÞað væri góð hugmynd að slípa til vinnuaðferðir þínar.Kynntu þér aðstæður og vertu við öllu búinn.Þú átt einstaklega gott með að gera þig skiljanlegan núna. 21. júní - 22. júlí D KrabbiÞað er áskorun að halda væntingum þínum innan ramma raunsæis.Drífðu þig nú á fyrirlestur eða eitthvað sem vekur áhuga þinn og þú munt uppskera ríkulega í nýjum hugmyndum. 23. júlí - 22. ágúst E LjónÞað skiptir óhemju miklu máli nú til dags að öll skilaboð séu stutt og skýr og svari þeim spurningum sem upp kunna að koma.Hafn- aðu neikvæðni og finndu orkuna magnast. 23. ágúst - 22. september F MeyjaÞað er stórskemmtilegt að horfa á hlutina með augum barnsins.Ólíkir kraftar mynda nokkuð fallegt er þeir koma saman. 23. september - 22. október G VogÞetta getur orðið mjög góður dagur. Frelsi þitt og sjálfstæði til eigin verka er í góðu jafnvægi.Að hitta nýtt fólk laðar það besta fram í þér. 23. október - 21. nóvember H SporðdrekiÁður en draumsýn verður að veruleika verður þú að freista gæfunnar. Mundu að ekki hafa allir sömu skoðanir á hlutunum og það ber líka að virða. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Fólkið sem þú rekst á virðist tala bara til að geta hlustað á sjálft sig og reynir sífellt að sýnast betri en náunginn.Gættu orða þinna ef þú verður spurður álits. 22. desember - 19. janúar J SteingeitÞú getur bætt umhverfi þitt og samband við aðra úr fjölskyldunni á fjölmarga vegu. Innri stöðugleiki er grundvallarþáttur þess að fá sem mest út úr deginum. 20. janúar - 18. febrúar K VatnsberiÞú átt skilið að hvíla þig eftir góða vinnutörn.Hugsaðu þig vandlega um þegar kemur að fjárútlátum og mundu að græddur er geymdur eyrir. 19. febrúar - 20.mars L Fiskar Eitthvað það kann að gerast sem kemur þér verulega á óvart. Þú ert óvenju orkumikill í dag og kemur ótrúlega miklu í verk á stuttum tíma. Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur – 40 ára Rosamargt á teikniborðinu A rndís Þórarinsdóttir er fædd 21. desember 1982 í Reykjavík og ólst upp í Vestur- bænum. „Ég átti mjög hamingjurík bernskuár. Báðir foreldrar mínir ólust einnig upp í vesturbæ Reykjavíkur, svo ræturnar eru mjög djúpar í þeim borgarhluta.“ Arndís var í Ísaksskóla, Melaskóla og Hagaskóla og tók svo stúdentspróf af fornmála- deild Menntaskólans í Reykjavík árið 2002. Hún lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. „Á háskólaárun- um fóru áhugamálin að skýrast – ég vann með skóla á Borgar- bókasafninu og skrifaði leikgerð upp úr skáldsögu George Orwell, 1984, fyrir Stúdentaleikhúsið ásamt Þorleifi Erni Arnarsyni og var aðstoðarleikstjóri hans við uppfærsluna. Sú reynsla stýrði því eflaust að framhaldsnám í leikritun og dramatúrgíu varð fyrir valinu og árið 2005 fluttum við hjónin til London, þar sem eiginmaður minn starfaði sem forritari hjá stórfyrirtækinu Am- azon á meðan ég sinnti náminu við Goldsmith‘s College. Þegar ég lauk námi og við flutt- um aftur til Íslands vann ég um nokkurra mánaða skeið við blaða- mennsku en þáði fljótlega starf sem deildarstjóri á Bókasafni Kópavogs, þar sem ég starfaði í áratug með yndislegu fólki við gefandi verkefni. Arndís gaf út sína fyrstu skáld- sögu, unglingabókina Játningar mjólkurfernuskálds, árið 2011. „Þá var dóttir okkar á þriðja ári og von var á syninum. Næstu ár skrifaði ég því hægt, þótt ég lyki að vísu meistaragráðu í ritlist, en 2018 kom út bókin Nærbuxna- verksmiðjan. Útgáfa hennar markaði upphaf þess að ég helg- aði mig skrifunum og síðan hafa komið út níu bækur til viðbótar.“ Eina þeirra, Blokkina á heimsenda skrifaði Arndís ásamt Huldu Sigrúnu Bjarna- dóttur, vinkonu sinni, og sú bók hlaut bæði Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur og Ís- lensku bókmenntaverðlaunin og hefur nú verið seld til fjögurra Evrópulanda. Nýjasta bók Arndísar heitir Kollhnís og kom út núna í haust og hefur fengið mjög góðar móttökur, en hún er tilnefnd til Fjöruverðlaunanna, Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hafnaði í öðru sæti í barna- bókaflokki Bóksalaverðlaunanna. Mest hefur Arndís skrifað af barnabókum, en líka ljóðabókina Innræti, auk þess að hafa skrifað smásögur og greinar í tímarit. „Það er rosamargt á teikni- borðinu en ég veit ekki enn hvað af því verður fyrst til að klekjast út. Mig langar að vinna meira með Huldu, það er búið að vera rosagaman að fylgjast með viðtökunum á bókinni okkar í útlöndum. Það kyndir undir lönguninni til að halda áfram að vinna saman. Ég er alltaf að fikta við ljóðagerð en það gerist hægt og ég veit ekki hvenær næsta bók kemur, þegar ég er búin að safna í næsta einnar bóka skammt. Mér finnst gaman að skrifa ólíka texta og bækur mínar eru ólíkar. Mig langar líka að skrifa skáldsögu fyrir fullorðna en svo verður að sjá til hvað af þessu nær fullum þroska fyrst.“ Arndís segir að áhugamál hennar séu alltof fyrirsjáanleg. „Þau eru bókmenntir og lestur; blekpennar, fallegar stílabækur og límmiðar. Það eru allir með ritfangablæti í þessum bransa. Þegar ég var yngri þótti mér ansi súrt að eiga afmæli svona seint á árinu en það hefur vanist vel og mér þykir mjög vænt um sólstöðuafmælisdaginn minn. Það er alltaf bjartara fram undan á afmælinu mínu. Ég naut þess líka að Guðmundur móðurafi minn er fæddur á jóladag 1924 – hann verður níutíu og átta ára á sunnu- daginn – og því var heilmikil Fjölskyldan Freydís, Haukur, Þórarinn og Arndís á svölunum heima í Safamýrinni síðastliðinn sunnudag. Ljósmynd/Kristín Viðarsdóttir Í HöfðaArndís og Hulda taka við Barnabókaverðlaunum Guðrúnar Helga- dóttur úr hendi Dags B. Eggertssonar árið 2020. Hjónin Anna Björk Guð- björnsdóttir og Almar Grímsson fagna 60 ára brúðkaupsaf- mæli. Þau voru gefin saman 21. desember 1962 af sr. Óskari Þorlákssyni. Fyrst bjuggu þau í Dan- mörku en fluttu til Hafnar- fjarðar 1965 að loknu námi. Almar starfaði í apótekum en hóf starf í heilbrigðis- ráðuneytinu 1971 og hjá WHO 1979. Kom þá aftur heim og varð fulltrúi Íslands og Norðurlanda í stjórn WHO 1983-86 og síðan apótekari í Hafnarfjarðar Apóteki. Anna Björk er jógakennari. Hún var ritari hjá tryggingafélagi í Danmörku á námsárunum og síðar hjá landlækni og á Landspítala en meðan Almar rak apótekið starfaði hún þar. Almar er mikil félagsvera, var m.a. formaður Lyfjafræðingafélags Íslands og virkur í alþjóðasamstarfi og átti sæti í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar 2006-10. Hann var formaður Krabbameinsfélags Íslands, fékk gullmerki þess og var sæmdur fálkaorðunni 1991 fyrir störf sín að heil- brigðismálum. Almar hóf 1997 störf að samskiptum Íslands við íslensk ættað fólk í Vesturheimi og hafði forgöngu um stofnun ungmennaverkefnis (Snorra- verkefnið). Þau hjónin hafa unnið samhent við að styrkja böndin við Vesturheim. Anna Björk og Almar eiga 3 börn: Önnu Birnu prófessor í lyfjafræði við Hafnarháskóla, Örn lífefnafræðing í Boston og Steinar mannfræðing sem býr og starfar í Hafnarfirði. Barnabörnin eru 4 og barnabarnabörnin 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.