Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu tekur þátt í alþjóðlega
mótinu Pinatar Cup sem haldið verður
á Spáni dagana 13. til 21. febrúar.
Um fjögurra liða mót er að ræða en
Ísland leikur þar við Skotland,Wales
og Filippseyjar. Það verður í fyrsta
skipti sem Ísland mætir Filippseyjum
í A-landsleik kvenna en það er eina
þjóðin af þessum fjórum sem verður
með í lokakeppni heimsmeistara-
mótsins næsta sumar. Þá hefur Ísland
aðeins einu sinni mættWales en það
var vináttuleikur árið 1993 sem Ísland
vann 1:0 og Jónína Víglundsdóttir
skoraði sigurmarkið.
Ómar Ingi Magnússon og Sandra
Erlingsdóttir voru besta hand-
knattleiksfólk Íslands á árinu 2022,
að mati Handknattleikssambands
Íslands. Ómar hefur verið einn besti
leikmaður heims undanfarna mánuði
og Sandra hefur gert fína hluti í Þýska-
landi, eftir að hafa náð mjög góðum
árangri í Danmörku. Ómar var kjörinn
íþróttamaður ársins á síðasta ári.
Enska knattspyrnufélagið Manche-
ster United hefur framlengt samninga
þeirraMarcus Rashford, Luke Shaw,
Diogo Dalot og Fred og eru þeir nú
allir samningsbundnir út tímabilið
2023/24. Voru þeir allir með klásúlu í
samningum sínum, sem gerði félaginu
kleift að framlengja samningana.
Spænski markvörðurinn David De Gea
er með svipaða klásúlu, en félagið
ákvað að framlengja ekki við hann að
þessu sinni.
Enska knattspyrnufélagið Wolver-
hamptonWanderers hefur samið við
Atlético Madrid um kaup á brasilíska
framherjanumMatheus Cunha.
Úlfarnir fá hann lánaðan til vorsins og
hafa síðan kauprétt á framherjanum
fyrir 34 milljónir punda.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn
Philippe Coutinho vill yfirgefa enska
knattspyrnufélagið Aston Villa og snúa
aftur heim til Brasilíu. Coutinho kom
fyrst til Aston Villa að láni á miðri síð-
ustu leiktíð, sló í gegn og gerði í kjöl-
farið fjögurra ára samning við félagið.
Ekki hefur gengið sem skyldi síðan, því
Coutinho hefur hvorki skorað né lagt
upp mark á leiktíðinni til þessa.
Evrópska handknattleikssambandið,
EHF, valdi í gær þá þrjá reynslubolta
sem hafa skarað fram úr í Evrópudeild
karla í handbolta á leiktíðinni. Ámeðal
þeirra er landsliðsmarkvörðurinn
Björgvin Páll Gústavsson, sem
hefur leikið vel með Val í keppninni til
þessa. Valur er í fjórða sæti B-riðils í
keppninni með fimm stig eftir sex leiki
og á fína möguleika á að fara áfram í
16-liða úrslit. „Hann er leiðtogi í mjög
ungu Valsliði og hefur skilað mikilvæg-
um stigum fyrir sitt lið og átt sinn þátt
í að íslenska liðið á enn möguleika á
að fara áfram,“ segir m.a. í umfjöllun
sambandsins um Björgvin.
Hefja titilvörnina
á nágrannaslag
Íslandsmeistarar Breiðabliks
hefja titilvörnina í Bestu deild
karla í fótbolta næsta vor með
heimaleik gegn nágrönnum
sínum í HK. Deildin byrjar átta
dögum fyrr en nokkru sinni áður,
eða mánudaginn 10. apríl. Þá
mætast einnig KA – KR, Valur –
ÍBV, Fylkir – Keflavík, Stjarnan
– Víkingur og Fram – FH. Mótinu
lýkur þremur vikum fyrr en í ár
en viðbótarumferðirnar fimm í
lokin verða leiknar frá 17. septem-
ber til 7. október.
Morgunblaðið/Eggert
Kópavogur Breiðablik og HK mæt-
ast í fyrstu umferð um páskana.
Valur og Blikar í
fyrstu umferð
Besta deild kvenna í fótbolta 2023
hefst á sannkölluðum stórleik því
Íslands- og bikarmeistarar Vals
fá Breiðablik í heimsókn í fyrsta
leik deildarinnar í vor. Liðin eiga
að mætast á Hlíðarenda þriðju-
dagskvöldið 25. apríl en sólar-
hring síðar mætast Stjarnan –
Þór/KA, ÍBV – Selfoss, Tindastóll
– Keflavík og Þróttur R. – FH.
Leikið er eftir nýju fyrirkomulagi
en eftir 18 umferðir leika sex
efstu liðin innbyrðis einfalda um-
ferð og einnig fjögur neðstu liðin.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hlíðarendi Valskonur taka á móti
Breiðabliki í fyrsta leik mótsins.
Verið rússíbanareið
lBjarki Már sáttur við fyrstumánuðina hjá stórliði VeszprémlPressan gríðar-
leglKrísufundur eftir fyrsta tapiðlGott andrúmsloft í landsliðinu fyrir HM
„Þeir hafa verið góðir,“ sagði
Bjarki Már Elísson, landsliðs-
maður í handbolta, í samtali
við Morgunblaðið um fyrstu
mánuðina hjá ungverska stórliðinu
Veszprém. Bjarki gekk í raðir
ungversku meistaranna frá Lemgo
í Þýskalandi fyrir tímabilið. Bjarki
hefur undanfarin ár verið einn
besti vinstri hornamaður þýsku 1.
deildarinnar og var hann lang-
markahæsti leikmaður Lemgo í
deildinni, öll þrjú tímabilin sín hjá
félaginu.
„Þetta hefur verið upp og niður,
því ég meiddist í öxlinni fljótlega
eftir að ég fór af stað. Ég kom
svo til baka og síðan þá hefur
þetta gengið allt í lagi, en ekkert
frábærlega hjá mér persónulega.
Liðinu gekk samt mjög vel. Ég
náði mér svo betur á strik síðustu
leikina fyrir frí. Þetta er búið að
vera rússíbanareið. Ég held ég geti
samt litið sáttur til baka þessa
fyrstu sex mánuði. Maður er samt
ekkert að velta þessu of mikið fyr-
ir sér. Það er bara áfram veginn,“
sagði Bjarki.
Hann er búinn að ná sér góðum
af axlarmeiðslunum, sem voru
sem betur fer í vinstri öxl, en
Bjarki er rétthentur. „Þetta var
vinstri öxlin. Ég þarf ekkert mikið
á henni að halda. Hún er bara rétt
svo til að ég geti hlaupið.“
Að venjast nýrri menningu
Hann viðurkenndi að það tæki
sinn tíma að aðlagast lífinu í nýju
landi, en Veszprém er rúma 100
kílómetra suðvestur af höfuð-
borginni Búdapest. Lífið þar er
öðruvísi en Bjarki er vanur.
„Maður er að aðlagast nýju
landi. Það er margt nýtt, bæði
fyrir mig og fjölskylduna. Menn-
ingin er önnur og svo er maður
alveg mállaus þarna. Það eru ekki
margir sem tala ensku í bænum í
Veszprém, það er meira um það í
Búdapest. Það er mikill munur á
þessu. Ég er svo með stelpu sem
er í skóla og þetta er svolítið ann-
að. Við vorum búin að vera í níu ár
í Þýskalandi og maður þekkti það
út og inn. Maður er að sjá fullt af
nýjum hlutum hér og við erum enn
að venjast þessu,“ útskýrði Bjarki.
Hann viðurkenndi að hann skilji
lítið sem ekkert í ungverskunni,
sem er talin mjög flókin fyrir þá
sem tala ekki málið. „Það gengur
bara ekki neitt, enda er ég varla
að reyna. Ég, konan mín og nokkr-
ir aðrir úr liðinu förum einu sinni í
viku að læra en það er bara upp á
gamanið. Við erum ekkert að fara
að læra þetta held ég, ég held það
sé ekki hægt. Kannski ef maður er
búinn að búa hérna í svona fimm
ár. Maður verður bara að hitta á
einhvern út í búð eða vera með
Google Translate opið. Maður
reddar sér einhvern veginn.“
Lifa fyrir Meistaradeildina
Mikil pressa fylgir því að spila
með Veszprém. Hvert tapað stig
í deildinni jaðrar við stórslys
og þá á liðið að ná mjög langt í
Meistaradeildinni. Veszprém er
sem stendur á toppi ungversku 1.
deildarinnar, með fullt hús stiga
eftir 13 leiki. Þá er liðið í öðru sæti
A-riðils í Meistaradeildinni með 16
stig eftir tíu leiki, jafnmörg stig og
topplið París SG.
„Pressan er gríðarleg. Það er
lögð sérstaklega mikil áhersla
á Meistaradeildina. Leikirnir í
deildinni eru þannig að við klárum
þá flesta nokkuð auðveldlega. Það
eru hörkuleikir á móti Szeged, en
svo eru eitt eða tvö önnur lið sem
veita okkur ágætissamkeppni.
Annars eigum við bara að vinna.
Meistaradeildin er sú keppni
sem skiptir öllu máli fyrir klúbb-
inn. Þeir lifa fyrir þá keppni. Það
var búið að ganga rosalega vel,
þangað til við töpuðum fyrsta
leiknum um daginn. Eftir hann var
krísufundur inni í klefa og það er
enginn sáttur fyrr en maður er bú-
inn að vinna næsta leik í Meistara-
deildinni. Það er dálítið erfitt að
lýsa þessu, en maður finnur þessa
miklu pressu þegar maður er í
kringum liðið og alla í kringum
klúbbinn. Það er partur af þessu.
Svona á þetta að vera í bestu
klúbbunum,“ sagði Bjarki en eina
tap liðsins til þessa í Meistara-
deildinni kom gegn króatíska
liðinu Zagreb á útivelli.
Fær mun færri færi
Bjarki hefur þó enn ekki lent
í ósáttum stuðningsmanni úti á
götu. „Ég hef allavega ekki lent
í svoleiðis, þótt við eigum alveg
tryllta stuðningsmenn. Flestir sem
ég hitti á hafa verið mjög vingjarn-
legir. Það gæti vel verið að ég lendi
einhvern tímann í því að það verði
öskrað á mig á götunni, en þá skil
ég þá ekki hvort eð er,“ sagði hann
léttur í bragði.
Bjarki skoraði yfir 200 mörk í
þýsku 1. deildinni öll þrjú tímabilin
sem hann var hjá Lemgo. Þar lék
hann flesta leiki frá upphafi til
enda og fékk nóg af færum, sem
hann nýtti yfirleitt vel. Minna
fer fyrir honum hjá Veszprém,
sérstaklega í Meistaradeildinni,
þar sem liðið sækir mikið á miðja
vörnina og á línuna og fer boltinn
oft lítið í hornin.
„Þetta er kannski ekki öðruvísi
handbolti en ég er vanur, en þetta
er öðruvísi handbolti en ég var að
spila hjá Lemgo. Kannski eru ein-
hverjir þjálfaralúðar sem myndu
kalla þetta kjaftæði hjá mér, en ég
kalla þetta spænskan handbolta
hjá Veszprém. Það er mikið um
klippingar og mikið leitað inn á
miðjuna og á línu. Línumennirnir
eru með fullt af skotum í hverj-
um leik, en svo fáum við horna-
mennirnir ekki að skjóta mikið,“
sagði Bjarki.
Hann spilar oftast einn hálfleik
í hverjum leik, á móti króatíska
landsliðsmanninum Manuel
Strlek.
„Við erum svo að skipta spil-
tímanum, þar sem við erum tveir
í hægra horni og tveir í vinstra
horni. Við spilum allir 30 mínútur
í leik. Á þessum 30 mínútum fæ ég
stundum bara eitt færi, sérstak-
lega í Meistaradeildinni. Ég fæ
fleiri færi í deildarleikjunum. Mað-
ur þurfti smá tíma til að venjast
því, en maður gerir það sem þarf
til að vinna, til þess fór maður í
þetta lið,“ sagði Bjarki. Hann segir
samkeppnina við Strlek holla.
„Við erum góðir félagar. Það
er ekkert illt okkar á milli og
við vitum hvernig staðan er. Við
aðstoðum hvor annan, það er
allavega þannig frá minni hlið. Svo
fer hann kannski heim og segir við
konuna sína að ég sé fáviti,“ sagði
Bjarki kíminn, en bætti síðan aftur
við að samstarfið hefði gengið vel.
Síðasta stórmót gaf von
Bæði deildin í Ungverjalandi
og Meistaradeildin eru komnar
í jólafrí og næstu leikir Bjarka
verða í íslensku landsliðstreyjunni.
Eftir áramót leikur Ísland tvo
vináttuleiki við lærisveina Alfreðs
Gíslasonar í þýska landsliðinu og
svo tekur við HM í Svíþjóð og Pól-
landi. Bjarki viðurkenndi að hann
væri kominn með stórmótafiðring.
„Hann er kominn. Ég vonast
til að vera í lokahópnum og ef
ég verð í honum verð ég mjög
spenntur. Það var súrsæt tilfinn-
ing eftir síðasta stórmót, en það
gaf manni von,“ sagði Bjarki.
Hann finnur fyrir því að pressan
sé meiri núna á íslenska liðinu
en stundum áður, en liðið endaði
í sjötta sæti á EM í byrjun árs,
þrátt fyrir gríðarlega mörg forföll
vegna kórónuveirunnar.
„Maður finnur fyrir meiri
pressu. Það er fólk sem talar um
að við eigum að gera þetta og
hitt, en mér er alveg sama. Það
sem skiptir máli er hvað við í
hópnum viljum og ætlum okkur.
Ég finn það hjá öllum sem ég hitti
í hópnum að við vitum hvað við
viljum og hvað við ætlum okkur.
Maður finnur að hópurinn er að
fara í sömu átt. Þá myndast gott
andrúmsloft og það er gott að
vera í þannig umhverfi. Það mun
vonandi hjálpa liðinu mikið næstu
ár,“ sagði Bjarki Már Elísson.
UNGVERJALAND
Jóhann Ingi Hafþórsso
johanningi@mbl.is
n
Ljósmynd/Veszprém
Fleygiferð Bjarki Már Elísson er enn að venjast nýju liði í nýju landi en
lítur sáttur á til baka á fyrstu sex mánuðina hjá Veszprém í Unverjalandi.