Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 28

Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 28
MENNING28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 Hátíðleg jólatvenna á tilboði 2.210 kr. 1.690 kr. Sögufélag Skagfirðinga hefur gefið út bókina Skagfirskar æviskrár, ní- unda bindi fyrir tímabil- ið 1910-1950. Bókin inni- heldur 90 æviskrárþætti um 173 einstaklinga sem bjuggu eða héldu heimili í Skagafirði á fyrri hluta 20. aldar. Ritstjórn bókarinnar var í höndumHjalta Pálssonar og Ingimars Jóhanns- sonar. Alls hefur Sögufélag Skagfirðinga gefið út 20 bækur af Skagfirskumæviskrám. Fyrstu fjórar bækurnar, frá tímabilinu 1890-1910, komu út á árunum 1964-1972 en á árunum 1981-1999 komu út sjö bindi í flokknum 1850-1890. Árið 1994 hófst svo útgáfa á æviskrám frá tímabil- inu 1910-1950 en hún hefur legið niðri frá 2013, eða þar til að þetta níunda bindi tímabilsins er komið út. Í formála Hjalta Pálssonar kemur m.a. fram að með þessu 20. bindi Skagfirskra æviskráa séu komnir á prent 3.200 æviskrár- þættir meira en 6.000 einstak- linga sem einhvern tímann hafa haldið heimili í Skagafirði á árunum 1850 til 1950. Þá upplýsir Hjalti að nú þegar sé tilbúið efni í 2-3 bækur í viðbót. „Er hér saman kominn gríðar- legur fróðleikur um fólk fyrri tíðar sem verður verðmætari eftir því sem tímar líða, og í mörgum tilfellum alþýðufólks, kannski einu aðgengilegu upplýsingarnar,“ ritar Hjalti ennfremur. Höfundar þáttanna 90 í þessari nýju bók eru 15 talsins. Flesta þættina ritaði Egill Bjarnason, ráðunautur á Sauðárkróki, eða 40, auk þess sem hann er meðhöfundur að fjórum þátt- um. Að starfi loknu sem ráðu- nautur vann Egill við skráningu þáttanna fyrir Sögufélagið um nokkurra ára skeið. Egill féll frá 2015 en hafði gengið frá allmörg- um þáttum til birtingar. Ingimar Jóhannsson er höfund- ur nokkurra æviskrárþátta, auk þess sem hann gekk frá öðrum fyrir prentun. Hjalti Pálsson er einnig meðal höfunda, svo nokkr- ir séu nefndir. bjb@mbl.is lSkagfirskaræviskrár í 20 bókum 3.200 æviskrár um 6.000 manns „Aðalpersóna verksins kom til mín í draumi og sat í mér þegar ég vaknaði. Ég átti því ekki annarra kosta völ en að gera henni einhver skil. Mig dreymdi geimfar sem algjörlega splundraði í mér hjartanu,“ segir Guðrún Eva Mínervudóttir þegar hún er spurð um tilurð nýjustu skáldsögu hennar, Útsýni. Aðal- persóna verksins, Sigurlilja, er gædd óvenju- legri gáfu sem einfaldar ekki líf hennar. „Hæfileiki hennar að geta séð út um augu annarra snart mig svo djúpt að mér þótti sem höfundur spennandi að gera því skil. Á sama tíma fannst mér áhugavert að skrifa um umbreytingu á manneskju í kjölfar atviks án þess að það tengdist ofbeldi. Í ákveðnum skilningi er þetta upphafið atvik, en á sama tíma er hversdagsleikinn allt um kring. Þótt umgjörðin sé að mörgu leyti ævintýraleg er bókin sjálf fyrst og fremst um örlög fólks og hvernig við lifum af í hörðum heimi.“ Snýr upp á formið Spurð hvort líta megi á Útsýni sem nokkurs konar sambræðing smásagnaformsins og skáldsögunnar svarar Guðrún Eva því ját- andi. „Mér finnst smásögur, þegar vel tekst til, algjörlega stórkostlegt form,“ segir Guð- rún Eva og tekur fram að það sem heilli hana ekki síst við smásagnaformið sé það sem hún nefnir „and-Disney-lega“ þáttinn. „Bestu smásögurnar eru skrifaðar með innsæinu og láta ekki þvinga sig inn í mót þar sem ganga þarf frá öllum lausum endum. Þess vegna minna þessar ferðir Sigurlilju þegar hún sér með augum annarra á smásögur, því það er súmmað inn og súmmað út úr bút úr ævi manneskju,“ segir Guðrún Eva og leggur áherslu á að það sé auðvitað ekki tilviljunum háð hvar súmmað sé inn og aftur út. „Ég var að reyna að snúa upp á formið og finna upp hjólið án þess að það væri á kostnað aðgengileika. Ég vildi skrifa skáldsögu sem togar fólk áfram þannig að það vill helst ekki leggja bókina frá sér, því það er eitthvað sem bindur þetta allt saman. Á sama tíma langaði mig bara að skrifa smásögur án þess að láta beygja mig undir hið aristótelíska form.“ Lestur er svo skapandi athöfn Innt eftir því hvort sjá megi ákveðin líkindi milli Sigurlilju, í ljósi hæfileika hennar til að sjá með augum annarra, og rithöfunda, sem setja sig í spor annarra í skrifum sínum hugsar Guðrún Eva sig um og svarar svo: „Í ákveðnum skilningi finnst mér mjög lítill munur á því að lesa og skrifa, því lestur er svo skapandi athöfn. Í mínum huga býr Sigurlilja yfir ýktum hæfileika sem við höfum öll, því við höfum öll þennan hæfileika til að setja okkur í spor annarra,“ segir Guðrún Eva og bendir á að vissulega þurfi höfundar auðvitað að brýna þennan hæfileika mikið til að nota sem atvinnutæki. „Við nýtum þennan hæfileika ekki aðeins þegar við lesum heldur líka þegar við hlustum af hluttekningu á fólk segja frá sér og erum forvitin um hagi annarra til að skilja hlutina betur,“ segir Guðrún Eva og bendir á að rannsóknir sýni að fólk sem les mikið brýni samkennd sína og styrki hæfileikann til að setja sig í spor annarra. „Sigurlilja býr auðvitað við þau forréttindi að fá að þroskast í gegnum lífsreynslu annarra án þess að þurfa að sitja uppi með afleiðingarnar sem við annars gerum. Hún veit því hvernig er að verða fyrir ofbeldi og beita ofbeldi án þess að þurfa að sitja uppi með sektarkenndina og afleiðingarnar sjálf. Hún öðlast skilning sem við sem horfum í gegnum eitt par af augum höfum ekki.“ Fólk er gjöfult á reynslu sína Aðspurð hvort það hafi kallað á mikla rann- sóknarvinnu að skrifa um reynslu þeirra ólíku einstaklinga sem í Útsýni birtast svarar Guð- rún Eva því játandi. „Ég þurfti virkilega að finna fólk sem hafði reynt hluti sem ég hafði ekki reynt sjálf,“ segir Guðrún Eva og nefnir í því samhengi reynsluna af því að vinna á sambýli fyrir mikið fatlaða einstaklinga. „Þar þurfti ég að taka viðtöl og biðja fólk um að vera pennavinir mínir,“ segir Guðrún Eva og tekur fram að hún hafi átt marga pennavini, allt frá skurðlæknum til smábátaeigenda, þegar hún skrifaði Útsýni. „Bókin er margþætt verk samsett úr mörg- um ólíkum hugmyndum. Sumt af því minnir á eitthvað sem ég hef sjálf upplifað, en er auðvitað breytt og mótað. Annað er eitthvað sem ég hef heyrt frá öðrum og stolið mis- kunnarlaust,“ segir Guðrún Eva og nefnir í því samhengi frásögn kunningja af því að hafa upplifað það að vera hengdur fram af svölum í Breiðholti. „Þar notaði ég rithöfundar- vöðvann til að ímynda mér hvernig upplifun það hafi verið,“ segir Guðrún Eva og segist afar þakklát öllum þeim sem hafi leyft sér að fá vitneskju þeirra og upplifun lánaða. „Ég veit ekki hvort það er einkenni á Íslendingum eða hvort fólk er almennt bara svona gjöfult á reynslu sína. Ég hef aldrei lent í því að einhver manneskja sé ósátt við að ég hafi stolið frá henni lífsreynslu til að búa til úr henni bókmenntir. Ég hef bara lent í vandræð- um gagnvart fólki sem hefur ekki fengið að vera með í skáldverkum sem ég var að vinna.“ Löngu hætt að streitast á móti Ekki er hægt að sleppa Guðrúnu Evu án þess að forvitnast um hvort hún sé farin að leiða hugann að næsta skáldverki. „Stundum þarf ég andrými milli bóka, en í þetta sinn er ég komin á braut og bíð spennt eftir að fá tíma til að geta skrifað bókina sem þegar er byrjuð að mótast í höfði mér,“ segir Guðrún Eva og tekur fram að hún sé svo undirgefin skáldagyðjunni að hún hlýði ávallt kallinu þegar það kemur. „Þótt ég sé hrædd við viðtökurnar þá er ég löngu hætt að streitast á móti,“ segir Guðrún Eva og rifjar upp að hún hafi t.d. haft ákveðnar efasemdir um það að síðustu tvær bækurnar sem hún skrif- aði á undan Útsýni væru of jarðbundnar og raunsæjar, en þess má geta að Guðrún Eva var af hálfu Íslands tilnefnd til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs fyrir seinustu bókina, Aðferðir til að lifa af. „Þegar ég var að skrifa um geimfarið í Útsýni varð ég rjóð í kinnum því ég var svo hrædd um að einhverjum þætti ég furðufugl. Þegar ég skrifaði Englaryk var ég skíthrædd um að einhverjum þætti ég nöttari af því að Jesús er persóna í bókinni. En reynslan hefur kennt mér að það margborgar sig að hlýða skáldagyðjunni, því hún veit alltaf hvað hún er að gera,“ segir Guðrún Eva og áréttar að boðskapur kvikmyndarinnar um Öskubusku um mikilvægi þess að sýna hugrekki og gæsku eigi alltaf vel við. lÚtsýni nefnist nýjasta skáldsagaGuðrúnarEvuMínervudótturlAðalpersóna verksins kom til höfundar í draumilGuðrúnEva segir það ávalltmargborga sig að hlýða skáldagyðjunni Hugrekki og gæska á alltaf vel við Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Örlög „Þótt umgjörðin sé að mörgu leyti ævintýraleg er bókin sjálf fyrst og fremst um örlög fólks og hvernig við lifum af í hörðum heimi,“ segir Guðrún EvaMínervudóttir umÚtsýni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.