Morgunblaðið - 21.12.2022, Page 29

Morgunblaðið - 21.12.2022, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 RALPH FIENNES NICHOLAS HOULT ANYA TAYLOR-JOY Painstakingly Prepared. Brilliantly Executed. FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO KOMIN Í BÍÓ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI USA TODAY ENTERTAINMENT WEEKLY EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD REPORTER 84% 91% 71% Nána i upplýsingar um sýningartíma á sambio.is USA TODAY ENTERTAINMENT WEEKLY EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post REEL VIEWS EMPIRE AV CLUBNEW york post indie wire entertainment weekly the atlantic chicaco sun-times the playlist 82% Líkt og fyrr segir spannar bókin því marga arma listarinnar – allt frá bókmenntum og leikhúsi að fótbolta. Eru fótboltaleikmenn ekki gjarnan taldir listamenn í sínu fagi? Og að þeir skori eða leggi upp listileg mörk? Í síðari hluta bókarinnar, þar sem umræddur fótboltaleikur er tvímælalaust hápunkturinn, hoppa því riddarar hámenningarinnar af sínum háa stalli niður á stall „almúgans“ til að útkljá sín vandamál og losa spennu og reiði. Er þetta ekki einmitt sá grundvöllur, þ.e.a.s. íþróttirnar, þar sem fólk felur sig á bak við þjóðerniskenndina og lifir sig inn í leikinn til að útkljá hvaða lið eða þjóð sé best? Við tölum gjarnan um fótboltaleikmenn þjóðar okkar sem strákana og stelpurnar okkar, syni og dætur þjóðarinnar – við útnefn- um einstaklinga þessa til að verja stolt þjóðar okkar. Hvað er annað upp á teningnum í Gegn gangi leiks- ins? Barátta útgefanda og höfunda – hver verður ofan á – hvor stéttin um sig hefur valið sér fulltrúa til að verja heiður sinn – og þar vantar ekki Svan í lið höfunda. Sjálf og ímynd Svans í gegnum verkið er einmitt einn áhugaverðasti grein- ingarpunktur bókarinnar – allt of- beldi sem Svanur beitir gengur út á að leiðrétta ímynd hans gagnvart samfélaginu. Hann er upptekinn af eigin ágæti og talar illa um útgef- endur og stillir sér því jafnframt fram sem hinu alvitra skáldi, en misskilda snillingnum sem er svo kvalinn því enginn skilur hann og verk hans. Því er ef til vill táknrænt að fórnarlömb ofbeldis hans verða fyrir ýmiss konar höfuðhöggum – þau sem láta Svan líta illa út vantar eitthvað á milli eyrnanna. Í heild er Gegn gangi leiksins afar áhugaverð lesning og algerlega í anda Braga og munu því aðdáendur hans ekki verða fyrir vonbrigðum. Einkennandi útúrdúrar höfund- ar eru skemmtilegir og bókin hæfilega löng miðað við framvindu sagnarinnar. Persónur eru vel skapaðar, orðræða skemmtileg og trúverðug og samspil lítillar íbúðar andspænis fótboltavelli í fullri stærð er skemmtileg vinna með rými sögunnar. Bragi Ólafsson er og verður skemmtilegur höfundur sem ber að hrósa þegar verk hans eru góð, líkt og raunin er í ár. N ý skáldsaga Braga Ólafssonar, Gegn gangi leiksins, hverfist um ljóðskáldið Svan, sem lesendur Braga ættu að kannast við úr öðrum verkum hans, sem og unga parið Adolf og Droplaugu, sem koma að skoða íbúð Svans – eða öllu heldur systur hans – með það í huga að fjárfesta í eigninni. Svanur er þó hvorki spenntur fyrir að segja þeim frá eigninni né taka til fyrir heimsókn þeirra sé út í það farið, og vill öllu heldur segja þeim frá fótboltaleiknum sem hann er að horfa á – sem og fót- boltaleik útgefenda og höfunda sem fer fram innan fáeinna daga. Bókin skiptist í þrjá hluta; fyrri hluta, hlé og síðari hluta. Fyrri hlutinn segir frá heimsókn Adolfs og Droplaugar til Svans og kynnum þeirra, sem og frásagnir af fortíð persóna bók- arinnar. Líkt og margir lesendur Braga Ólafssonar þekkja eflaust var Svanur dæmdur í fangelsi fyrir manndráp eftir að hafa myrt ljós- myndara sem tók af honum mynd í opnunartilboða-óðagoti í leikfanga- verslun í Kópavogi, sem Svani þótti særa blygðunarkennd sína. Þegar Svanur hittir ljósmyndara þennan fyrir tilviljun á veitingarstaðnum Caruso í miðbænum lokkar hann hinn síðarnefnda inn á baðherbergi þar sem hann stofnar til átaka með þeim afleiðingum að aðeins einn stendur eftir. Síðar kemur hlé, líkt og í leikhúsi eða hálfleik- ur í fótbolta, þar sem frásögnin hverfist frá fyrstu persónu frásögn Adolfs til þriðju persónu frásagn- ar í seinni hlutanum. Með því að skipta frásögninni í þrennt – og hafa hlé á milli – finnst gagnrýn- anda Bragi vera að leika sér að mörkum mennningar, leikhúss, tónleika og fótbolta. Fyrrnefndur fótboltaleikur, þar sem höfundar og gagnrýnendur eiga að takast á, leikur sér því að mörkum svokall- aðrar „hámenningar“ og „lágmenn- ingar“, þar sem bókmenntastéttin spilar fótboltaleik og útkljáir þar með erjur sín á milli. Í umræddu hléi virðist þriðji múrinn brotinn á einhvern hátt – þar hittist fólk í hléi í því er virðist leikhús, ræðir það sem á undan fór og talar um höfund sem „frænda sinn“ sem „[…] er ekki vanur að leita langt yfir skammt yfirhöfuð. Alltaf með sömu persónurnar í öllum sínum verkum. Ef þú hefur lesið eitthvað af skáldsögum hans, þá kannastu örugglega við tvær eða þrjár hérna í kvöld.“ (bls. 77) Það ræðst á vellinum … BÆKUR INGIBJÖRG IÐA AUÐUNARDÓTTIR Skáldsaga Gegn gangi leiksins Eftir Braga Ólafsson Bjartur, 2022. Innbundin, 157 bls. Morgunblaðið/Einar Falur Höfundurinn Saga Braga Ólafssonar er „afar áhugaverð lesning“, algerlega í anda hans – „munu því aðdáendur hans ekki verða fyrir vonbrigðum“. Páfi gefur Grikkjum merkar höggmyndir Talsmaður Vatíkansins hefur tilkynnt að Frans páfi muni af- henda Ieronymosi II erkibiskupi, sem leiðir grísku rétttrúnaðar- kirkjuna, til varðveislu þau þrjú marmarabrot úr Parthenon-hof- inu á Akrópólis sem hafa verið í safni Vatíkansins í um tvær aldir. Brotin eru um 2.500 ára gömul og sýna hestshaus, drengshöfuð og skeggjaðan karl. Höggmyndirnar voru hluti af hinni frægu úthöggnu frásagnar- mynd sem náði hringinn kringum hofið. Rúmlega helmingur þeirra brota sem enn eru til úr verk- inu er í eigu gríska ríkisins og sýndur í Akrópólis-safninu. Hinn helmingurinn var fjarlægður af Elgin lávarði á árunum 1801 til 1812 og er nú í British Museum í London og hafa grísk stjórnvöld lagt sífellt meiri þunga í kröfur um að þeim verði skilað. Stjórn British Museum fer með forræðið yfir verkunum og hefur þvertekið fyrir það. Nýverið hefur þó frést af leynilegum fundum Breta og Grikkja ummöguleg skil eða lán. Þrátt fyrir að brotin þrjú sem páfi afhendir grísku rétt- trúnaðarkirkjunni verði í eigu kirkjunnar segir talsmaður Akrópólis-safnsins að brotunum verði komið að nýju fyrir á sínum upprunalegu stöðum í högg- myndinni löngu. Í yfirlýsingu þakkar gríski erkibiskupinn páfa fyrir hinn afar táknræna gjafagjörning. Talsmaður gríska menningar- ráðuneytisins þakkar páfa einnig og segir gjöfina lyfta undir kröfur Grikkja um að Bretar skili þeim verkum frá Parthenon sem eru í London. Drengshöfuð Eitt brotið frá Parthen- on-hofinu sem Frans páfi afhendir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.