Morgunblaðið - 21.12.2022, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO
KOMIN Í BÍÓ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
84%
91%
71%
Nána i upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
REEL VIEWS EMPIRE AV CLUBNEW york post indie wire
entertainment weekly the atlantic chicaco sun-times the playlist
82%
Líkt og fyrr segir spannar bókin
því marga arma listarinnar – allt
frá bókmenntum og leikhúsi að
fótbolta. Eru fótboltaleikmenn ekki
gjarnan taldir listamenn í sínu
fagi? Og að þeir skori eða leggi
upp listileg mörk? Í síðari hluta
bókarinnar, þar sem umræddur
fótboltaleikur er tvímælalaust
hápunkturinn, hoppa því riddarar
hámenningarinnar af sínum háa
stalli niður á stall „almúgans“ til að
útkljá sín vandamál og losa spennu
og reiði. Er þetta ekki einmitt sá
grundvöllur, þ.e.a.s. íþróttirnar,
þar sem fólk felur sig á bak við
þjóðerniskenndina og lifir sig inn
í leikinn til að útkljá hvaða lið eða
þjóð sé best? Við tölum gjarnan um
fótboltaleikmenn þjóðar okkar sem
strákana og stelpurnar okkar, syni
og dætur þjóðarinnar – við útnefn-
um einstaklinga þessa til að verja
stolt þjóðar okkar. Hvað er annað
upp á teningnum í Gegn gangi leiks-
ins? Barátta útgefanda og höfunda
– hver verður ofan á – hvor stéttin
um sig hefur valið sér fulltrúa til að
verja heiður sinn – og þar vantar
ekki Svan í lið höfunda. Sjálf og
ímynd Svans í gegnum verkið er
einmitt einn áhugaverðasti grein-
ingarpunktur bókarinnar – allt of-
beldi sem Svanur beitir gengur út
á að leiðrétta ímynd hans gagnvart
samfélaginu. Hann er upptekinn af
eigin ágæti og talar illa um útgef-
endur og stillir sér því jafnframt
fram sem hinu alvitra skáldi, en
misskilda snillingnum sem er svo
kvalinn því enginn skilur hann og
verk hans. Því er ef til vill táknrænt
að fórnarlömb ofbeldis hans verða
fyrir ýmiss konar höfuðhöggum –
þau sem láta Svan líta illa út vantar
eitthvað á milli eyrnanna.
Í heild er Gegn gangi leiksins afar
áhugaverð lesning og algerlega í
anda Braga og munu því aðdáendur
hans ekki verða fyrir vonbrigðum.
Einkennandi útúrdúrar höfund-
ar eru skemmtilegir og bókin
hæfilega löng miðað við framvindu
sagnarinnar. Persónur eru vel
skapaðar, orðræða skemmtileg og
trúverðug og samspil lítillar íbúðar
andspænis fótboltavelli í fullri
stærð er skemmtileg vinna með
rými sögunnar. Bragi Ólafsson er
og verður skemmtilegur höfundur
sem ber að hrósa þegar verk hans
eru góð, líkt og raunin er í ár.
N
ý skáldsaga Braga
Ólafssonar, Gegn gangi
leiksins, hverfist um
ljóðskáldið Svan, sem
lesendur Braga ættu að kannast
við úr öðrum verkum hans, sem
og unga parið Adolf og Droplaugu,
sem koma að skoða íbúð Svans –
eða öllu heldur
systur hans –
með það í huga
að fjárfesta í
eigninni. Svanur
er þó hvorki
spenntur fyrir
að segja þeim
frá eigninni né
taka til fyrir
heimsókn þeirra
sé út í það farið, og vill öllu heldur
segja þeim frá fótboltaleiknum sem
hann er að horfa á – sem og fót-
boltaleik útgefenda og höfunda sem
fer fram innan fáeinna daga. Bókin
skiptist í þrjá hluta; fyrri hluta, hlé
og síðari hluta. Fyrri hlutinn segir
frá heimsókn Adolfs og Droplaugar
til Svans og kynnum þeirra, sem
og frásagnir af fortíð persóna bók-
arinnar. Líkt og margir lesendur
Braga Ólafssonar þekkja eflaust
var Svanur dæmdur í fangelsi fyrir
manndráp eftir að hafa myrt ljós-
myndara sem tók af honum mynd í
opnunartilboða-óðagoti í leikfanga-
verslun í Kópavogi, sem Svani þótti
særa blygðunarkennd sína. Þegar
Svanur hittir ljósmyndara þennan
fyrir tilviljun á veitingarstaðnum
Caruso í miðbænum lokkar hann
hinn síðarnefnda inn á baðherbergi
þar sem hann stofnar til átaka
með þeim afleiðingum að aðeins
einn stendur eftir. Síðar kemur
hlé, líkt og í leikhúsi eða hálfleik-
ur í fótbolta, þar sem frásögnin
hverfist frá fyrstu persónu frásögn
Adolfs til þriðju persónu frásagn-
ar í seinni hlutanum. Með því að
skipta frásögninni í þrennt – og
hafa hlé á milli – finnst gagnrýn-
anda Bragi vera að leika sér að
mörkum mennningar, leikhúss,
tónleika og fótbolta. Fyrrnefndur
fótboltaleikur, þar sem höfundar
og gagnrýnendur eiga að takast á,
leikur sér því að mörkum svokall-
aðrar „hámenningar“ og „lágmenn-
ingar“, þar sem bókmenntastéttin
spilar fótboltaleik og útkljáir þar
með erjur sín á milli. Í umræddu
hléi virðist þriðji múrinn brotinn
á einhvern hátt – þar hittist fólk í
hléi í því er virðist leikhús, ræðir
það sem á undan fór og talar um
höfund sem „frænda sinn“ sem
„[…] er ekki vanur að leita langt
yfir skammt yfirhöfuð. Alltaf með
sömu persónurnar í öllum sínum
verkum. Ef þú hefur lesið eitthvað
af skáldsögum hans, þá kannastu
örugglega við tvær eða þrjár hérna
í kvöld.“ (bls. 77)
Það ræðst á vellinum …
BÆKUR
INGIBJÖRG IÐA
AUÐUNARDÓTTIR
Skáldsaga
Gegn gangi leiksins
Eftir Braga Ólafsson
Bjartur, 2022. Innbundin, 157 bls.
Morgunblaðið/Einar Falur
Höfundurinn Saga Braga Ólafssonar er „afar áhugaverð lesning“, algerlega
í anda hans – „munu því aðdáendur hans ekki verða fyrir vonbrigðum“.
Páfi gefur Grikkjum
merkar höggmyndir
Talsmaður Vatíkansins hefur
tilkynnt að Frans páfi muni af-
henda Ieronymosi II erkibiskupi,
sem leiðir grísku rétttrúnaðar-
kirkjuna, til varðveislu þau þrjú
marmarabrot úr Parthenon-hof-
inu á Akrópólis sem hafa verið í
safni Vatíkansins í um tvær aldir.
Brotin eru um 2.500 ára gömul og
sýna hestshaus, drengshöfuð og
skeggjaðan karl.
Höggmyndirnar voru hluti af
hinni frægu úthöggnu frásagnar-
mynd sem náði hringinn kringum
hofið. Rúmlega helmingur þeirra
brota sem enn eru til úr verk-
inu er í eigu gríska ríkisins og
sýndur í Akrópólis-safninu. Hinn
helmingurinn var fjarlægður af
Elgin lávarði á árunum 1801 til
1812 og er nú í British Museum í
London og hafa grísk stjórnvöld
lagt sífellt meiri þunga í kröfur
um að þeim verði skilað. Stjórn
British Museum fer með forræðið
yfir verkunum og hefur þvertekið
fyrir það. Nýverið hefur þó frést
af leynilegum fundum Breta og
Grikkja ummöguleg skil eða lán.
Þrátt fyrir að brotin þrjú
sem páfi afhendir grísku rétt-
trúnaðarkirkjunni verði í eigu
kirkjunnar segir talsmaður
Akrópólis-safnsins að brotunum
verði komið að nýju fyrir á sínum
upprunalegu stöðum í högg-
myndinni löngu.
Í yfirlýsingu þakkar gríski
erkibiskupinn páfa fyrir hinn
afar táknræna gjafagjörning.
Talsmaður gríska menningar-
ráðuneytisins þakkar páfa einnig
og segir gjöfina lyfta undir kröfur
Grikkja um að Bretar skili þeim
verkum frá Parthenon sem eru í
London.
Drengshöfuð Eitt brotið frá Parthen-
on-hofinu sem Frans páfi afhendir.