Fréttablaðið - 14.01.2023, Qupperneq 8
22 íbúar Tsjortkív
særðust í eldflaugaárás
Rússa síðasta sumar.
Heildarfjárhæðin er
tæplega níu milljónir
króna.
Við Höfn hefur landið
risið um 30 sentimetra
á þessum tíma og inn
til jökla um 60 senti-
metra.
Guðmundur
Valsson,
fagstjóri
Landmælinga
Þetta er mikil áskorun
fyrir okkur – og kallar
á sífellda dælingu úti á
Grynnslunum.
Sigurjón Andrés-
son, bæjarstjóri
á Höfn
Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar
Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.
Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar
að því að varðveita og miðla menningarverðmætum sem núverandi kynslóð
hefur fengið í arf.
Styrkfjárhæðin nemur fimm milljónum króna og verður henni úthlutað í maí
2023. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2023. Sótt er um styrkinn í gegnum
heimasíðu bankans: www.sedlabanki.is/menningarstyrkur.
Nánari upplýsingar: Hrafnhildur Ýr Bernharðsdóttir á skrifstofu seðlabanka
stjóra.
auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals
S E Ð L A B A N K I Í S L A N D S
Kalkofnsvegi 1 · 101 Reykjavík · 569 9600 · seðlabanki@sedlabanki . is
Landið hefur risið um 30 senti-
metra við Hornafjörð á 30
árum og tvöfalt meira inn til
jöklanna á því svæði. Enda þótt
það geti unnið á móti hækkun
sjávar er breytingin mikil
áskorun fyrir íbúa svæðisins.
ser@frettabladid.is
NÁTTÚRA Landið rís núna um ellefu
til fjórtán millimetra á ári við Höfn
í Hornafirði og enn meira inn til
jökulsporðanna á þeim slóðum, svo
mjög raunar yfir lengri tíma litið,
að eftir er tekið. Hornfirðingar hafa
fyrir vikið þurft að grípa til æ fleiri
aðgerða til að tryggja innsiglinguna
í firðinum.
„Jökulfargið er alltaf að minnka,“
segir Þorvarður Árnason, náttúru-
fræðingur á staðnum, sem fylgst
hefur með sköpulagi Vatnajökuls
um árabil sem starfsmaður Háskóla
Íslands. Hann minnir á síðari tíma
jarðsögu, en á litlu ísöldinni, sem
hófst á fjórtándu öld, hafi jöklarnir
skriðið fram og stækkað, allt fram
til 1890.
„Þá koma kaflaskilin,“ segir Þor-
varður og bendir á Breiðamerkur-
jökul sem hafi hætt að stækka.
„Hann hopar fyrst hægt, það glittir
í lónið 1932, svo kólnar heldur um
skeið, en frá 1990 hefur bráðnunin
verið stöðug og hröð – og raunar æ
hraðari ár frá ári að undanförnu,“
útskýrir fræðimaðurinn.
Landið bregðist við með því að
lyftast – og það staðfesta tölur úr
skjalastafla Guðmundar Valsson-
ar, fagstjóra Landmælinga Íslands.
Hann segir landrisið hafa aukist
sérstaklega mikið á síðustu fimm
árum – og þegar horft sé yfir línu-
laga þróun síðustu þrjátíu ára sé
breytingin augljós.
„Við Höfn hefur landið risið um
30 sentimetra á þessum tíma og
inn til jökla um 60 sentimetra.
Þetta eru miklar breytingar á ekki
lengri tíma,“ segir hann og bendir á
að tvær hliðar séu á öllum málum.
Jákvæðu áhrifin geti verið þau að
landrisið vinni á móti hækkun
sjávar.
Í því mengi starfar Sigurjón Andr-
ésson, bæjarstjóri sveitarfélagsins
Hornafjarðar. „Þetta er mikil áskor-
un fyrir okkur – og kallar á sífellda
dælingu úti á Grynnslunum, fyrir
utan höfnina, til að viðhalda sigl-
ingaleiðinni um ósinn. Og vegna
breytinganna erum við núna að
vinna forspár með dönskum sér-
fræðingum um mögulegan efnis-
burð við ströndina,“ segir hann.
„Landið er að rísa mjög mikið
á þessum slóðum,“ segir Gunnar
Haukur Kristinsson, forstjóri Land-
mælinga Íslands, en minnir á að vel
sé fylgst með svæðinu – og vöktunin
sé nákvæm.
„Það má heita að við fylgjumst
með þessum andardrætti lands-
ins á sekúndufresti,“ en nákvæm
mælingatæki sé að finna á um 35
stöðum á landinu. „Allar hreyfingar
þess eru færðar til bókar jafnóðum
og einhver breyting verður svo
landsmenn geti gengið að réttu
hæðarpunktunum á hvaða tíma
sem er,“ segir Gunnar Haukur Krist-
insson. n
Landið rís hratt suðaustanlands út af
sífellt minnkandi fargi Vatnajökuls
Vel er fylgst með landrisinu. Breytingarnar eru hvað augljósastar suðaustanlands þar sem Vatnajökulsfargið er alltaf að minnka. Fréttablaðið/Vilhelm
kristinnpall@frettabladid.is
AkuReyRi Bæjarráð Akureyrarbæjar
samþykkti tillögu fjársýslusviðs
um að afskrifa 434 kröfur á nýjasta
fundi sínum. Heildarfjárhæðin sem
um ræðir er tæplega níu milljónir
króna.
Í fundargerðinni kemur fram
að þarna sé einnig að finna yngri
kröfur hjá gjaldþrota aðilum og
einstaklingum sem fengið hafa
greiðsluaðlögun en Dan Jens Brynj-
arsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs
Akureyrarbæjar, segir þetta hafa
verið ýmis þjónustugjöld sem ekki
voru greidd. n
Afskrifa á fimmta
hundrað krafna
Kröfurnar eru samanlagt 434 talsins.
kristinnpall@frettabladid.is
ReykjAvík „Það er heldur betur
eftirvænting og það eru margir að
dusta rykið af dansskónum eftir
þriggja ára bið,“ segir Lísa Björg Ing-
varsdóttir, umsjónaraðili Þorrablóts
ÍR, sem fer fram í kvöld. Fjölmörg
íþróttafélög eru með þorrablót um
þessa helgi, enn f leiri um næstu
helgi og næstu helgar.
„Þetta er stærsti hverfisviðburður
ársins í Breiðholtinu. Þetta markar
líka ákveðin tímamót því þetta er
fyrsta þorrablótið sem fer fram í
nýja íþróttahúsinu,“ segir Lísa.
Von er á tæplega þúsund manns
í Breiðholtið í kvöld. Sama kvöld
verður þorrablót hjá KR en FH-ingar
héldu blót í gær. Um næstu helgi
verða Stjarnan, Fjölnir og Aftur-
elding með þorrablót líkt og Kópa-
vogsblótið, sameiginlegt þorrablót
Breiðabliks, Gerplu og HK, sem er
titlað fjölmennasta blót heims.
Lísa segir þetta gríðarlega mikil-
væga fjáröflun fyrir félögin.
„Þetta skiptir gríðarlega miklu
máli fyrir fjárhag félaganna en um
leið er mikill ágóði af þessu sam-
félagslega. Þarna eru allar deildir
félaganna að sameinast.“ n
Þúsundir blóta hjá íþróttafélögunum
Þorrakræsingar. Fréttablaðið/Valli
kristinnpall@frettabladid.is
ReykjANesbæR Boð frá úkraínska
bænum Tsjortkív um vinabæjar-
samstarf við Reykjanesbæ hefur
verið afþakkað. Þetta kom fram á
fundi bæjarráðs í vikunni en þar var
Tsjortkív þakkaður sýndur áhugi.
Á vef Reykjanesbæjar kemur fram
að bærinn eigi tvo vinabæi, Kerava
í Finnlandi og Trollättan í Svíþjóð,
en Tsjortkív, tæplega þrjátíu þúsund
manna bær í suðurhluta Úkraínu,
hlaut ekki náð fyrir augum bæjar-
ráðs. n
Vinabæjarboði frá
Úkraínu hafnað
14. janúar 2023
Laugardagur8 fréttir Fréttablaðið