Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 45
 Það er svo gott að byrja hjá Osteo- Strong. Maður finnur svo hratt fyrir breytingum og byrjar smám saman að skoða í kringum sig eftir fleiri leiðum til að bæta heilsuna og gleðina. OsteoStrong fagnar fjögurra ára starfsafmæli sínu um þessar mundir. Um 1.000 manns stunda æfingar viku- lega í Hátúni og Ögurhvarfi. Heimsóknin tekur aðeins 20 mínútur, einu sinni í viku og þannig bæta meðlimir sig í styrk vöðva, jafnvægi, þétt- leika beina og minnka verki í liðum og baki. Helgi Már Þórðarson, íþrótta- fræðingur og einkaþjálfari, fór að stunda OsteoStong eftir að hann fór að finna fyrir verkjum í líkamanum. „Mér finnst óeðli- legt að vera með verki. Mér finnst eðlilegt að vera verkjalaus og mér finnst að allir ættu að stefna að því. Ég spilaði fótbolta í Bandaríkj- unum og lærði íþróttafræði í Saint Augustin í Flórída fyrir hartnær 30 árum. Ég var líka á íþróttabraut í menntaskóla og ætlaði alltaf að verða íþróttakennari, sem ég svo gerði. Ég var þjálfari barna og unglinga, síðar einkaþjálfari og hafði alla mína ævi þjálfað fólk í íþróttum. Það er þess vegna mjög auðvelt að tala við mig um heilsu, andlega heilsu og heilbrigt líferni. Þegar OsteoStrong var opnað þá var ég eins og margir: „Nei, það getur ekki verið, fjögur tæki, einu sinni í viku?“ Mér fannst þetta náttúrulega mjög skrítið. Tilbúinn að breyta til En ég var á þeim stað að mig langaði að breyta til. Ég var búinn að telja mánuðina og dagana þar til ég yrði fimmtugur og vildi fara ferskur inn í nýjan áratug. Ég var eins og margir, hafði aðeins fækkað ferðum í ræktina á meðan ég var með lítil börn og var að stofna fyrirtæki. Það koma alltaf smá svona tímabil þar sem maður dettur út í smá tíma. Fljótlega verkjalaus í baki Þegar ég byrjaði í ástundun hjá OsteoStrong var ég slæmur í baki, öxl og hálsi. Ég var rosalega dug- legur í OsteoStrong í hálft ár. Lagði mig fram um að missa aldrei úr tíma af því að ég fann mun á mér eftir bara nokkrar vikur. Verkirnir hurfu alveg. Bara OsteoStrong einu sinni í viku, ekki neitt annað með. Aukin löngun í hreyfingu Svo smám saman gerðist svo margt ánægjulegt. Með auknum styrk, minni verkjum og aukinni orku þá fór ég að leita í f leiri leiðir til þess að bæta heilsuna, fann löngun til að mæta í ræktina og mætti þar þrisvar sinnum í viku ásamt því að stunda OsteoStrong einu sinni í viku. Það er svo skemmtilegt að hreyfa sig þegar manni líður vel. Pabbi minn er 73 ára. Hann hefur sömu sögu að segja en hann fann reyndar mun á sér strax eftir fyrsta tíma. Ég held að það sé eðlilegt að það taki mann aðeins lengri tíma að finna fyrir breytingum þegar maður er yngri og í betra formi. Gleðin í skammdeginu Hreyfing er svo verðmæt fyrir andann og það skiptir svo miklu máli að vera ekki verkjaður. Það er grunnatriði. Til þess að lyfta andanum tók ég upp á því í jólafríinu að fara í tvo stutta göngutúra á dag í náttúrunni og mér finnst það mjög verðmætt. Í nokkur ár hef ég vandað mig við að dvelja í þakklæti. Ég keypti mér 5-mínútna-þakklætis-bækur um árið og núna er það orðið sjálfkrafa hjá mér að finna fyrir þakklæti óháð aðstæðum hverju sinni. Ég las líka „Af hverju sofum við“ og hætti að mæta í sund á morgnana eins og ég hafði gert í 15 ár. Nú sef ég bara þessa tvo auka klukkutíma og ég greinilega þurfti á því að halda því að ég er allur miklu kátari. Tími fyrir heilsu Það er svo gott að byrja hjá OsteoStrong. Maður finnur svo hratt fyrir breytingum og byrjar þá smám saman að skoða í kringum sig eftir fleiri leiðum til að bæta heilsuna og gleðina. Þegar ég lít núna tvö ár aftur í tímann þá má segja að OsteoStrong hafi ýtt við mér að ná markmiði mínu sem er að vera í toppformi þegar ég verð fimmtugur. Borða betur, sofa betur, æfa betur,“ segir Helgi sem er annar eigandi Aha.is. Tvær stöðvar á höfuðborgarsvæðinu OsteoStrong á Íslandi á fjögurra ára starfsafmæli nú í janúar. Viku- lega mæta um 1.000 meðlimir til þess að styrkja sig og auka orku. „Við erum í Hátúni 12 og opnuðum nýja stöð í Ögurhvarfi 2 á síðasta ári. Þannig geta enn fleiri nýtt sér þjónustu OsteoStrong og leiðin er styttri fyrir þá sem koma til dæmis frá Selfossi og Borgarnesi. Við erum mjög spennt yfir mögu- leikanum á því að fá að þjóna fleiri svæðum á Íslandi og erum alltaf spennt fyrir að tala við mögulega samstarfsaðila,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, annar eigenda OsteoStrong. Tíminn er núna OsteoStrong hentar næstum öllum sem geta staðið upp. „Hjá okkur eru til dæmis einstaklingar sem eru farnir að þurfa að styðjast við göngugrind og allt þar á milli. Það er svo auðvelt að detta úr rútínu með sína hreyfingu. Margir þrá að komast aftur af stað. Það er góð hugmynd að prófa OsteoStrong núna í skammdeginu og byrja strax að safna styrk fyrir vorið og útiveruna,“ segir Örn Helgason, hinn eigandi OsteoStrong.“ 73% styrking á ári „Notendur gera æfingar undir handleiðslu þjálfara í fjórum tækj- um sem reyna á allan líkamann,“ segir Svanlaug. „Hreyfingin er lítil en átakið er hins vegar meira en fólk er vant án þess að verða manni nokkurn tíma ofviða. Með nýju áreiti fær líkaminn skýr skilaboð um að byggja sig upp og hefst handa við að þétta bein og styrkja vöðva, liðbönd og sinar. Á einu ári er fólk að meðaltali að styrkja sig um 73%.“ Frír prufutími „Við bjóðum enn upp á fría prufu- tíma. Það er gaman að fá tækifæri til að sýna fólki hvað við gerum. Flestir koma til okkar með margar spurningar en fara frá okkur spenntir, glaðir og með skýra sýn á það hvernig OsteoStrong getur stutt þá til vaxtar,“ segir Örn. n OsteoStrong býður upp á prufu- tíma í Hátúni 12 á fimmtudögum og Ögurhvarfi 2 á föstudögum. Prufutíma má bóka í síma 419 9200 og á osteostrong.is Fann hratt mikinn mun með OsteoStrong Helgi Már Þórðarson, íþróttafræðingur og einkaþjálfari, varð hissa þegar hann fann hversu hratt OsteoStrong breytti líðan hans til betri vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Örn og Svana eru eigendur OsteoStrong og eru sífellt að leita leiða til þess að færa OsteoStrong út á landsbyggðina. Helgi segir að eftir æfingarnar hjá OsteoStrong finni hann fyrir miklum lið- leika og orkan hefur aukist. Meðlimir geta átt von á að: n Auka styrk n Minnka verki í baki og liðamótum n Lækka langtíma blóðsykur n Auka beinþéttni n Bæta líkamsstöðu n Auka jafnvægi n Minnka líkur á álags- meiðslum ALLT kynningarblað 7LAUGARDAGUR 14. janúar 2023
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.