Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 10
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Mín skoðun Gunnar Sif Sigmarsdóttir Afmælið fór fram í kyrrþey. Og það gat lík- lega aldr- ei orðið annað en svo. Það fagnar heldur eng- inn kvalara sínum. Hvað með þarfir þeirra sem hugsa um heilsuna eða ferðast með börn? Eða okkar sem ferð- umst þurr í janúar? Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Skorpulifur er vaxandi vandamál hér á landi. Í fréttum vikunnar kom fram að nýgengi hafi margfaldast síðustu ár. Sigurður Ólafsson, meltingar- og lifrar- læknir, segir ástæðuna aukna áfengis- neyslu þjóðarinnar. Hann spáir aukinni þörf fyrir lifrarígræðslur á næstu árum. Margir taka nú þátt í alþjóðlega heilsuátakinu „þurrum janúar“ eða „dry january“ eins og það kallast á ensku. Einn er þó sá angi mannlífsins sem virðist ósnortinn af slíkum tilraunum til sjálfs- betrunar. Ég var stödd í f lugvél Icelandair nýverið þegar kona í sömu sætaröð pantaði sér glas af hvítvíni. Flugfreyjan spurði að bragði hvort ekki mætti bjóða henni tvö því það væri tilboð. Við konan horfðumst í augu. Það var mánudagur. Hábjartur dagur. Hún var ein á ferð. Um leið og konan af þakkaði tilboðið skelltum við upp úr. Flugfreyjan brosti afsakandi – mér fannst ég bara þurfa að nefna þetta. Maðurinn í sætaröðinni fyrir framan okkur lét sömu forsendur ekki aftra sér. Hann pantaði sér tvær ginf löskur. Sjúss eða samloka Í síðustu viku tilkynntu forsvarsmenn veitingastaðarins Joe & The Juice að þeir hefðu dregið sig út úr útboði um rekstur veitingastaða á Kef lavíkurf lugvelli. Var ástæðan meðal annars krafa Isavia um að allir veitingastaðir á f lugvellinum yrðu að selja áfengi. Sama dag bárust fréttir af því í Bret- landi að karlmaður hefði verið dæmdur í átta vikna fangelsi fyrir ólæti í f lugi frá Alicante til Newcastle. Maðurinn hafði drukkið áfengi í vélinni sem hann hafði haft meðferðis. Áfengið var gert upptækt því aðeins mátti drekka áfenga drykki sem keyptir voru um borð. Maðurinn gerði sér lítið fyrir og sótti veigarnar aftur, skaust inn á klósett, þambaði drykkina og lét í kjölfarið öllum illum látum. Flugsamgöngur bjóða ekki aðeins þyngdarlögmálinu birginn heldur einnig lögmálum um almennt háttalag. Sæist einhver heima hjá sér skola morgun- korninu niður með stórum Tuborg sætti það tíðindum. En á f lugvelli þykir bjór klukkan sex að morgni ekkert tiltökumál. Íslensk f lugfreyja sagði í samtali við mbl. is að íslenska ferðalanga þyrsti í f leira en sólina er þeir legðu land undir fót. Hún sagði það gerast allt of oft að gleðin tæki öll völd svo „að hringja þyrfti á aðstoð og jafnvel hjólastóla til að aðstoða fólk frá borði“. Undirrituð slær sjaldan hendinni á móti glasi af köldu hvítvíni. En verða allir veitingastaðir á Keflavíkurflugvelli að vera drykkjubúllur? Þurfa þeir allir að bjóða upp á bjór, hvítt, rautt og tækifæri til að verða sér til skammar? Hvað með þarfir þeirra sem hugsa um heilsuna eða ferðast með börn? Eða okkar sem ferðumst þurr í janúar? Hvers vegna má Keflavíkurflug- völlur eins og aðrir f lugvellir ekki fanga breidd mannlegra langana? Fríhafnir f lugvalla, þar sem kaupa má Toblerone án þess að greiða tolla og gjöld, eru svæði undanskilin venjubundnum kvöðum samfélagsins. Svo virðist sem sú trú sé útbreidd að f lugvallarbarinn sé að sama skapi einhvers konar atferlisfríhöfn, svæði undanskilið af leiðingum gjörða okkar, dómi samborgara og áhrifum á nærumhverfi. En feilspor ferðalangsins verður hvorki eftir á vellinum né í vélinni. Og þótt við séum í fríi fær lifrin í okkur ekki frí. Sölustöðum Joe & The Juice sem nú starfa á Kef lavíkurf lugvelli verður lokað á næstunni. Senn verður auðveldara að kaupa þar sjúss en samloku. n Tilboð og útboð Sif Sigmarsdóttir MÁNUDAGA KL. 20.00 Síðasta ár leið á enda án þess að haldið væri upp á eitt af helstu stórafmælum í efnahagssögu landsmanna. Glösum var hvergi klingt af því tilefni – og því síður að nokkur heilvita maður stigi á stokk og fagnaði tímamótunum. En krónan varð sumsé 100 ára. Afmælið fór fram í kyrrþey. Og það gat líklega aldrei orðið annað en svo. Það fagnar heldur enginn kvalara sínum. Og þótt með- virknin með heimilisof beldi þessa minnsta og ræfilslegasta gjaldmiðils heims hafi verið svo að segja alger um ár og daga, fannst eyjarskeggjum það líklega ekki við hæfi að halda opinberlega upp á daginn hans. Það hefði sennilega enginn mætt, hvort eð er. Enda var engu að fagna. Krónan hefur rýrnað um 99,995 prósent frá því 1922 og valdið ómældu tjóni og eignarýrnun hjá almenningi og fyrirtækjum. Þessi ósjálfstæði gjaldmiðill kostar þjóðina hátt í milljarð á dag. Til að halda honum á f loti þarf um 900 milljarða varasjóð sem ber enga vexti, en það eru gríðarlegir fjármunir sem fást fyrir vikið ekki til að leysa mörg brýnustu velferðarmál líðandi stundar. Og þetta er séríslenskur yfirgangur og valdníðsla. Engir íbúar nágrannalandanna myndu sætta sig við krónu eins og þá íslensku sem veldur því að húsnæðislán eru allt að fjórum sinnum dýrari en hjá þeim. Og ekki er öll vitleysan eins, því engin þjóð í heiminum notar verðlagsvísitölu til að tryggja verðmæti útlána. En andlag þeirra óskapa er að unga fólkið á Fróni þarf að greiða íbúðina sína allt að þrisvar sinnum á ævinni á meðan aðrir Evrópubúar borga hana aðeins rúmlega einu sinni. Krónan hefur knúið valdstjórnina í heila öld til að fara gegn fólki og fyrirtækjum. Í því efni má líka nefna að hvergi í vestrænum löndum er þróun húsnæðisverðs reiknuð inn í verðbólgumælingum. Önnur lönd mæla rekstrarkostnað húsnæðis þegar verðbólgan er mæld. Íslenska aðferðin hækkar verð- tryggt lán óþarflega mikið. Svo er samið í krónum, en umsamdar launahækkanir þurrkast út með gengisfell- ingum. Stöðugri gjaldmiðill myndi færa hverju heimili um 100 þúsund á mánuði í sparnað, eftir skatta. Og það þarf engin verk- föll til að ná þeim kjarabótum. Svo hefur krónan reynst besta vörnin gegn samkeppni. Það hvarflar ekki að nokkrum forkólfum stórra banka og tryggingafélaga úti í heimi að hefja starfsemi í svona hag- kerfi. En svo amen sé sagt á eftir efninu. Megi útför krónunnar líka fara fram í kyrrþey. n Afmæli í kyrrþey 14. janúar 2023 Laugardagur10 skoðun FréTTAblAðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.