Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 45
Það er svo gott að
byrja hjá Osteo-
Strong. Maður finnur svo
hratt fyrir breytingum og
byrjar smám saman að
skoða í kringum sig eftir
fleiri leiðum til að bæta
heilsuna og gleðina.
OsteoStrong fagnar fjögurra
ára starfsafmæli sínu um
þessar mundir. Um 1.000
manns stunda æfingar viku-
lega í Hátúni og Ögurhvarfi.
Heimsóknin tekur aðeins 20
mínútur, einu sinni í viku og
þannig bæta meðlimir sig í
styrk vöðva, jafnvægi, þétt-
leika beina og minnka verki
í liðum og baki.
Helgi Már Þórðarson, íþrótta-
fræðingur og einkaþjálfari, fór
að stunda OsteoStong eftir að
hann fór að finna fyrir verkjum
í líkamanum. „Mér finnst óeðli-
legt að vera með verki. Mér finnst
eðlilegt að vera verkjalaus og mér
finnst að allir ættu að stefna að
því. Ég spilaði fótbolta í Bandaríkj-
unum og lærði íþróttafræði í Saint
Augustin í Flórída fyrir hartnær
30 árum. Ég var líka á íþróttabraut
í menntaskóla og ætlaði alltaf
að verða íþróttakennari, sem ég
svo gerði. Ég var þjálfari barna og
unglinga, síðar einkaþjálfari og
hafði alla mína ævi þjálfað fólk í
íþróttum. Það er þess vegna mjög
auðvelt að tala við mig um heilsu,
andlega heilsu og heilbrigt líferni.
Þegar OsteoStrong var opnað þá
var ég eins og margir: „Nei, það
getur ekki verið, fjögur tæki, einu
sinni í viku?“ Mér fannst þetta
náttúrulega mjög skrítið.
Tilbúinn að breyta til
En ég var á þeim stað að mig
langaði að breyta til. Ég var búinn
að telja mánuðina og dagana þar
til ég yrði fimmtugur og vildi
fara ferskur inn í nýjan áratug. Ég
var eins og margir, hafði aðeins
fækkað ferðum í ræktina á meðan
ég var með lítil börn og var að
stofna fyrirtæki. Það koma alltaf
smá svona tímabil þar sem maður
dettur út í smá tíma.
Fljótlega verkjalaus í baki
Þegar ég byrjaði í ástundun hjá
OsteoStrong var ég slæmur í baki,
öxl og hálsi. Ég var rosalega dug-
legur í OsteoStrong í hálft ár. Lagði
mig fram um að missa aldrei úr
tíma af því að ég fann mun á mér
eftir bara nokkrar vikur. Verkirnir
hurfu alveg. Bara OsteoStrong einu
sinni í viku, ekki neitt annað með.
Aukin löngun í hreyfingu
Svo smám saman gerðist svo
margt ánægjulegt. Með auknum
styrk, minni verkjum og aukinni
orku þá fór ég að leita í f leiri leiðir
til þess að bæta heilsuna, fann
löngun til að mæta í ræktina og
mætti þar þrisvar sinnum í viku
ásamt því að stunda OsteoStrong
einu sinni í viku. Það er svo
skemmtilegt að hreyfa sig þegar
manni líður vel. Pabbi minn er
73 ára. Hann hefur sömu sögu að
segja en hann fann reyndar mun
á sér strax eftir fyrsta tíma. Ég
held að það sé eðlilegt að það taki
mann aðeins lengri tíma að finna
fyrir breytingum þegar maður er
yngri og í betra formi.
Gleðin í skammdeginu
Hreyfing er svo verðmæt fyrir
andann og það skiptir svo miklu
máli að vera ekki verkjaður.
Það er grunnatriði. Til þess að
lyfta andanum tók ég upp á því
í jólafríinu að fara í tvo stutta
göngutúra á dag í náttúrunni og
mér finnst það mjög verðmætt. Í
nokkur ár hef ég vandað mig við
að dvelja í þakklæti. Ég keypti mér
5-mínútna-þakklætis-bækur um
árið og núna er það orðið sjálfkrafa
hjá mér að finna fyrir þakklæti
óháð aðstæðum hverju sinni. Ég las
líka „Af hverju sofum við“ og hætti
að mæta í sund á morgnana eins og
ég hafði gert í 15 ár. Nú sef ég bara
þessa tvo auka klukkutíma og ég
greinilega þurfti á því að halda því
að ég er allur miklu kátari.
Tími fyrir heilsu
Það er svo gott að byrja hjá
OsteoStrong. Maður finnur svo
hratt fyrir breytingum og byrjar þá
smám saman að skoða í kringum
sig eftir fleiri leiðum til að bæta
heilsuna og gleðina. Þegar ég lít
núna tvö ár aftur í tímann þá má
segja að OsteoStrong hafi ýtt við
mér að ná markmiði mínu sem
er að vera í toppformi þegar ég
verð fimmtugur. Borða betur, sofa
betur, æfa betur,“ segir Helgi sem er
annar eigandi Aha.is.
Tvær stöðvar á
höfuðborgarsvæðinu
OsteoStrong á Íslandi á fjögurra
ára starfsafmæli nú í janúar. Viku-
lega mæta um 1.000 meðlimir til
þess að styrkja sig og auka orku.
„Við erum í Hátúni 12 og opnuðum
nýja stöð í Ögurhvarfi 2 á síðasta
ári. Þannig geta enn fleiri nýtt sér
þjónustu OsteoStrong og leiðin
er styttri fyrir þá sem koma til
dæmis frá Selfossi og Borgarnesi.
Við erum mjög spennt yfir mögu-
leikanum á því að fá að þjóna fleiri
svæðum á Íslandi og erum alltaf
spennt fyrir að tala við mögulega
samstarfsaðila,“ segir Svanlaug
Jóhannsdóttir, annar eigenda
OsteoStrong.
Tíminn er núna
OsteoStrong hentar næstum öllum
sem geta staðið upp. „Hjá okkur
eru til dæmis einstaklingar sem
eru farnir að þurfa að styðjast við
göngugrind og allt þar á milli. Það
er svo auðvelt að detta úr rútínu
með sína hreyfingu. Margir þrá
að komast aftur af stað. Það er góð
hugmynd að prófa OsteoStrong
núna í skammdeginu og byrja
strax að safna styrk fyrir vorið og
útiveruna,“ segir Örn Helgason,
hinn eigandi OsteoStrong.“
73% styrking á ári
„Notendur gera æfingar undir
handleiðslu þjálfara í fjórum tækj-
um sem reyna á allan líkamann,“
segir Svanlaug. „Hreyfingin er lítil
en átakið er hins vegar meira en
fólk er vant án þess að verða manni
nokkurn tíma ofviða.
Með nýju áreiti fær líkaminn skýr
skilaboð um að byggja sig upp og
hefst handa við að þétta bein og
styrkja vöðva, liðbönd og sinar.
Á einu ári er fólk að meðaltali að
styrkja sig um 73%.“
Frír prufutími
„Við bjóðum enn upp á fría prufu-
tíma. Það er gaman að fá tækifæri
til að sýna fólki hvað við gerum.
Flestir koma til okkar með margar
spurningar en fara frá okkur
spenntir, glaðir og með skýra sýn
á það hvernig OsteoStrong getur
stutt þá til vaxtar,“ segir Örn. n
OsteoStrong býður upp á prufu-
tíma í Hátúni 12 á fimmtudögum
og Ögurhvarfi 2 á föstudögum.
Prufutíma má bóka í síma 419
9200 og á osteostrong.is
Fann hratt mikinn mun
með OsteoStrong
Helgi Már Þórðarson, íþróttafræðingur og einkaþjálfari, varð hissa þegar hann fann hversu hratt OsteoStrong breytti
líðan hans til betri vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Örn og Svana eru eigendur OsteoStrong og eru sífellt að leita leiða til þess að
færa OsteoStrong út á landsbyggðina.
Helgi segir að eftir æfingarnar hjá OsteoStrong finni hann fyrir miklum lið-
leika og orkan hefur aukist.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og
liðamótum
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Minnka líkur á álags-
meiðslum
ALLT kynningarblað 7LAUGARDAGUR 14. janúar 2023